Leiguliði lýsir kvótakerfinu:

Leiguliðar athugið!

Ólafur R. Sigurðsson skrifar:

 

Kvótakerfinu var, illu heilli, komið á fyrir um 24 árum síðan.

 

Yfirlýstur tilgangur þess var að vernda fiskistofnana og tryggja byggðir við sjávarsíðuna.

 

Skemmmst er frá því að segja að hvorugt markmiðið hefur náðst. 
 

Vegna kvótakerfisins er þorskstofninnn ekki svipur hjá sjón og margar byggðir eiga í vök að verjast.

 

Þrátt fyrir að fiskverð hafi margfaldast að raungildi hafa skuldir sjávarútvegsins aukist með enn risavaxnari skrefum. Þannig hafa skuldir sjávarútvegsins aukist um 350% á tíu árum þó umsetningin sé nánast sú sama. Eina leið stjórnvalda til að taka á brottkasti og sóun í kvótakerfinu er að setja upp rándýrt en gagnslaust eftirlitskerfi og refsa þeim sem eru svo heiðarlegir að viðurkenna brot sín. Þrátt fyrir þetta augljósa árangursleysi hefur verið haldið áfram á sömu braut.

Ekki hef ég getað varist þeirri hugsun að raunverulegur tilgangur þeirra er réðu för hafi verið sá að koma á lénskipulagi í sjávarútvegi. Eða eigum við kannski að trúa því að það sé hrein tilviljun að guðfaðir kvótakerfisins hafi komið þeim breytingum á að "sameign þjóðarinnar" erfðist og hann yrði þannig lénsherra í fyllingu tímans?

Óvenju lítið fer þó fyrir umræðu um sjávarútvegsmál þó sá atvinnuvegur skili enn, meira en helmingi þjóðartekna okkar Íslendinga. Ekki er öll sú umræða frumleg enda hafa allir flokkar að undanskildum Frjálslynda flokknum gefist upp fyrir þeirri sögulegu nauðsyn að brjótast út úr kerfinu.

Þessa dagana eru flokkarnir í óða önn að viðra fjaðrirnar fyrir kjósendum.

Sumir flokkarnir reyna, að því er virðist, fremur af vilja en mætti að hafa skoðun á öllum málum, s.s. sjávarútvegsmálum. Jafnvel Vinstri grænir eru þar engin undantekning.

 

Kosningaloforð þeirra í sjávarútvegsmálum er að gera upptæk í ríkissjóð 5% af leigukvóta. Þetta myndi draga úr framboði leigukvóta og hækka hann til muna. Hagsmunir okkar leiguliðanna eru þeir, að meðan við þurfum að búa við þetta kerfi, sé nægt magn kvóta til leigu og á skikkanlegu verði.

Í dag þurfum við að borga 7 krónur af hverjum 10 til kvótagreifanna. Af þessum 30% sem eftir eru þurfum við að greiða allan útgerðakostnað. Af þessu má sjá að þetta forréttindakerfi hefur ekki skapað okkur neitt sældarlíf. Ef Vinstri grænir gefa sig út fyrir vera flokk jafnaðar, þá heggur sá er hlífa skyldi, því tillögur þeirra miða að því að auka á þjáningar okkar leiguliðanna og skaða byggðirnar.

 

Leiguliðar, oft var þörf en nú er nauðsyn, tölum við vini og vandamenn og kjósum F fyrir frelsi 12. maí.

Ólafur R. Sigurðsson, skipstjóri Grindavík.


mbl.is Nýtt fiskveiðiár mörgum erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergur Thorberg

Eins og talað úr mínum munni. ( Nema þetta með F).

Bergur Thorberg, 31.8.2008 kl. 06:30

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir síðast Bergur.  Gott og vel, hvaða flokkar og hvaða stjórnmálamenn vilja afnema þetta kerfi?

Sigurður Þórðarson, 31.8.2008 kl. 07:07

3 Smámynd: Bergur Thorberg

Sömuleiðis Siggi minn. Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör.

Bergur Thorberg, 31.8.2008 kl. 07:11

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þar sem þú hefur búið erlendis skal ég hjálpa þér aðeins. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur komu þessu kerfi á.  Nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar hafa talað gegn kerfinu fyrir kosningar einkum Karl Matthíassonar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir harmaði niðurstöðu prófkjörs sem leiddi til að séra Karl komst á þing. Ég held að ISG hafi engan áhuga á sjávarútvegsmálum en helst er á henni að skilja að hún styðji kvótakerfið.

Sigurður Þórðarson, 31.8.2008 kl. 07:45

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Siggi minn.

Þessi grein er sannleikanum samkvæm.

"Vegna kvótakerfisins er þorskstofninn ekki svipur hjá sjón og margar byggðir eiga í vök að verjast."

Þessi setning segir allt sem segja þarf. Hér er ekki unninn fiskur frystihúsinu. Ömurleg þróun. Þökk sé kvótakerfinu.

Vertu Guði falinn.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.8.2008 kl. 19:37

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þorskur er góður matur sérstaklega í bollum 

Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 20:22

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Því miður Guðlaugur, er þetta rangt hjá þér, þorskleysið hefur með kvótakerfið að gera og "arfavitlausum" rannsóknaraðferðum HAFRÓ Sjá nánar hér.

Jóhann Elíasson, 5.9.2008 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband