Færsluflokkur: Bækur

Sjálfstæðisflokkurinn setur sérhagsmuni ofar þjóðarhagsmunum

Geir Haarde blekkti mig í gærkvöldi þegar hann kom fram í Kastljósinu og sagði að hann ætlaði ekki að láta kúga sig og steypa landinu í skuldafen. Þetta fannst mér ábyrg afstaða, svo ábyrg að mér fannst réttlætanlegt í nafni þjóðarsamstöðu að brennuvargarnir  fengju slökkviliðsbúning  og þjóðin stæði saman sem einn maður. Það var mér því áfall að hlusta á Einar K. Guðfinnsson í hádeginu, sem lýsti því yfir að það kæmi ekki til greina að gera neinar breytingar á kvótakerfinu. Þetta segir Einar þó hann viti að sjávarútvegurinn skuldar nú 400% af ársveltu sinni, veiði dragist stöðugt saman og  fjölmörg þorp að leggjast í eyði. ÞjValur á veiðumóðin hefur ekki efni á við þessar aðstæður að viðhalda kerfi sem felur í sér að mörgum milljörðum sé hent í hafið á hverju ári til þess eins að Sjálfstæðisflokkurinn geti þjónað sérhagsmunum.

Þess vegna verður að boða til kosninga sem fyrst.

Valur á veiðum


mbl.is Sjávarútvegurinn skuldum vafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar á þunnum ís og verða að fara varlega

Sigmar stóð sig frábærlega og Geir var ágætur líka. Fortíðin er að
baki,  nú verða Íslendingar að gæta sín og Geir áttar sig á því. Nú blasir alvaran við, jafnvel
Samfylkingunni, sem getur ekki leikið sér eins mikið í 
utanríkismálunum. Við
verðum að styðja stjórnvöld til allra góðra verka hvað sem okkur kann
að þykja um fyrri verk þeirra. Sjávarútvegurinn skuldar nú 400% af ársveltu sinni, vegna kvótakerfisins. Ef kostirnir eru þeir að lifa við þröngan kost eða steypa komandi kynslóðum í skuldafen ríkissjóðs þar sem meira enn fjórða hver króna fer í vexti af erlendum lánum í amk 50 ár, þá vil ég treysta Geir og vonandi flestum stjórnmálamönnum, til að taka rétta ákvörðun. Geri þeir það mun þjóðin standa með þeim.
mbl.is Við munum ekki láta kúga okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn rústar efnahag þjóðarinnar.

Dýralæknirinn og aðrir ráðherrar sjálfstæðisflokksins eru svo sjálfumglaðir að þeir hafa annað tveggja blásið á alla gagnrýni frá virtum hagfræðingum eða í besta falli stungið henni undir stól. Á skandínavískum netmiðlum hafa verið skoðanakannanir um hvort hjálpa eigi Íslendingum með því að lána þeim. Mjög skiptar skoðanir eru um það en jafnvel þeir sem vilja lána okkur segja að Íslendingar ættu að fá hæstu vexti. En hver er ástæða þessa?  Eru "vinir" okkar svona vondir eins og Geir Haarde heldur fram? Dr. Robert Z. Aliber segir þvert á móti að íslensku ríkisstjórninni og seðlabankanum sé ekki treyst. Þar hafi menn ámóta þekkingu á rekstri þjóðarbúsins og stjarnvísindum. Þegar mest á reið að hækka bindiskilduna var hún afnumin! "Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld," segir Aliber".

Einkathotur-rikisstj-geir_1152654354Er sjálfstæðismönnum í ríkisstjórn virkilega fyrirmunað að skammast sín?

Um Samfylkinguna þarf ekki að ræða hún  hefur fjarvistarleyfi enda var leiðtogi hennar að mestu í útlöndum 

 

 

Glaðbeitt á leið úr einkaþotu

 

39aRikisstjornGHHII

 Óhappastjórnin


mbl.is Stjórnvöld skilningslaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ríkisstjórnin semja Íslendinga í skuldir og fátækt?

1-SUN%20CITY-MCDONALD-heavy%20burden Sjálfstæðisflokkurinn er ekki aðeins að rústa þjóðfélaginu heldur virðast aðilar þar á bæ vera tilbúnir, til að kaupa sér stundarfrið, í samvinnu við Samfylkinguna,  með því að semja næstu kynslóðir í fátækt og skuldaklafa. Ég held að það væri heiðarlegast að viðurkenna að allt er brunnið sem brunnið getur og því er lýðræðislegast að halda kosningar þannig að almenningur fái að hafa eitthvað um það að segja hvort hann vill veðsetja fiskinn og orkulindirnar.
mbl.is Engin niðurstaða enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á að selja orkuna hæstbjóðanda

Þegar samið var um álverið á Reyðarfirði viku arðsemissjónarmið að einhverju leyti fyrir atvinnusjónarmiðum. En þó verðinu hafi kannski þess vegna verið haldið "leyndu" hefur ýmislegt síast út. Ef álverðið fer niður í rúma 1900 dollara fer Landsvirkjun að tapa á Kárahnjúkavirkjun. Álverðið fór hæst í 3300 dollara en er komið niður í 2100 á þremur mánuðum, þessi þróun má því alls ekki halda áfram  ef ekki á illa að fara. Orkuframleiðslan er í samfélagslegri eigu og það er hagur allra landsmanna að fá sem hæst verð. Þess utan getur ekki verið gott  fyrir Íslendinga að hafa öll eggin í sömu körfunni. Álver á Bakka er sjálfsagt hið besta mál. En hvað ef álverðið lækkar eða nauðsynlegt reynist að loka verksmiðjunni af öðrum orsökum?  Sameiginlegt umhverfismat þýðir að einungis má nota orkuna til álvers og ekki í neitt annað. Hefur einhver reynt að  útskýrahengill_220_2040888460 þetta fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur?
mbl.is Fylgjast náið með niðursveiflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur rændur í skjóli vanhirðu ráðamanna

5A

Stuðningsmenn stjórnarflokkana geta kannski sagt að bankarnir hafi brugðist trausti þeirra. Það er þó ekki nema hálfur sannleikur þar sem ráðamenn voru margsinnis aðvaraðir.

Nær væri að segja að stjórnvöld hafi brugðist almenningi og ekki gætt hagsmuna hans, með því að sinna ekki eftirlitsskyldu sinni. geir_H_Harrde_jpg_340x600_q95


mbl.is „Það er búið að þurrausa sjóðinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blótað fyrir Ísland

skjaldarmerki_linaÉg rakst á þessa áhugaverðu færslu hjá honum Jens Guð  í kvöld. Allsherjargoðinn efnir til blóts á morgun kl 17:00  við Þvottalaugarnar í Laugardalnum, til að styrkja fólk og efla samstöðuna. Oft var þörf en nú er sannarlega  nauðsyn. Þarna verða að vanda áhugaverð og þjóðleg tónlistaratriði og ég væri illa svikinn ef landvættir, sem reynst hafa okkur svo heilladrjúgar í átökum við Breta, létu ekki sjá sig c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_erpurnúþegar svo mikið liggur við. laug-sverrir4


Ísland vann með því að tapa atkvæðagreiðslunni

slide_help_hope_400x308Það eru sannarlega mikil gleðitíðindi að Ísland hafi tapað með afgerandi hætti í kosningu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.  Með þessu er okkur bjargað frá þeirri skömm sem misvitrir stjórnmálamenn, sem nú eru góðu heilli hættir, komu okkur í. Mikill meirihluti þjóðarinnar var alltaf eindregið á móti þessu en stjórnvöld létu það sig engu varða.  Mér er kunnugt um að mikill fjöldi trúaðs fólks  bað fyrir farsælum lyktum og hefur allt þetta fólk nú verið bænheyrt. Haleluja!  

Til hamingju Íslendingar


mbl.is Ísland náði ekki kjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldeyrissparandi eiturlyfjaframleiðsla

Fíkniefnaverksmiðjan sem var verið að loka í Hafnarfirði var með framleiðslugetu upp á margar milljónir evra. Ég veit ekki hvað þessi markaður er stór eða hvort þetta var ætlað til útflutnings. En ef þetta hefur verið ætlað til að þjóna innanlandsmarkaði þá er ljóst að verksmiðjan hefði sparað milljónir evra í  beinhörðum gjaldeyri. Aðalatriðið er auðvitað að draga úr eiturlyfjaneyslu. En spurningin er hvort lokun einnar verksmiðju, í okkar heimshluta, stuðli að því? 485899901_aca7d2b54f_o
mbl.is Framleiðslugeta fyrir milljónir evra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB býðst til að skuldsetja Íslendinga í 7 ættliði

Fyrr í dag bárust fréttir af því að leiðtogar ESB vildu styðja Ísland. Fregnin hafði ekki fyrr birst en samfylkingarsinnar þustu út á götur og fögnuðu. Sjálfur bloggaði ég um að hér byggi eitthvað annað og meira undir og hefur það nú komið á daginn. Bretar hafa í krafti hryðjuverkalaga og hótana við íslensk fyrirtæki t.d. Baug reynt að þvinga Íslendinga til að greiða meira en 4.000 milljarða og jafnvel  boðist til að lána íslenska ríkinu fyrir þessum drápsklyfjum á Íslendinga næstu 200 árin. Nú hefur þeim borist mikilvægur liðsauki frá  Brussel sem vill liðka fyrir lánum en krefst þess að "Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar".  Hvern fjandann þýðir þetta? Bretar stunda grófa fjárkúgun og nota ESBcolour%20national%20logo%20no%20web%20address
mbl.is Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband