Færsluflokkur: Menntun og skóli

Vill Hillary Clinton innrás í Saudi Arabíu?

hillary_clinton_1101 getfile Hillary Clinton öldungadeildarþingmaður frá New York, yfirbauð Bush forseta um daginn og hótaði að Bandaríkin myndu "teppaleggja" Íran með loftárásum og leggja landið í rúst réðist það á Ísrael. Þessar ógeðfelldu yfirlýsingu fylgir frúin nú eftir með stríðsglöðu kosningaloforði um að verði hún kosin muni hún "halda í höndina á Sádum" með öðrum orðum að kúa þá til hlýðni.  Verður það hlutskipti Íslendinga, nái þeir sæti í öryggisráðinu, að lýsa yfir stuðningi og heimila árás á Saudi Arabiu og skapa okkur óvild í Arabalöndunum? Eiga íslenskir skattgreiðendur að greiða fyrir þessa vitleysu?
mbl.is Clinton vísar til Íslands á kosningafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn er geðveikur

Datt virkilega einhverjum í hug að þessi maður væri heilbrigður?  Eða á maður að trúa því að fólki finnist  eitthvað normalt við  hegðun þessa manns?  Mín skoðun er sú að að það sé meiriháttar brenglun að geta gert annarri manneskju það sem hann gerði , hvað  þá  sínu eigin afkvæmi. austria-josef-cp-476283
mbl.is Segir Fritzl ósakhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðlaunatillagan er della

Það var nú alveg nógu undarlegt að verðlauna þessar skringilegu tillögur þessara Skota, sem eru góðir í teikningu en þekkja ekki til umferðar og aðstæðna í höfuðborginni. Í fyrsta lagi er vaxandi meirihluti borgarbúa og raunar allra landsmanna á móti því að færa flugvöllinn. Í öðru lagi hefur ekkert annað flugvallarstæði fundist sem sérfræðingar í flugi telja að jafnist á við Vatnsmýrina.  Í þriðja lagi er ekki pólitísk sátt um að flugvöllurinn fari.  En jafnvel þú flugvöllurinn færi úr Vatnsmýrinni þá er kjánaskapur að veifa tillögum sem ekki gera ráð fyrir umferð frá mikilvægum stofnunum eins og  Háskóla Íslands svo ekki sé talað um  Landspítalann. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri tekur ekki þátt í slíkum pólitískum aulahætti. 

mbl.is Borgarstjóri gagnrýnir vinningstillöguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Enginn er spámaður í eigin föðurlandi"

AsthorMagn_1Ástþór Magnússon er ef til vill skýrasta lifandi birtingarmynd þessara gömlu sanninda úr Biblíunni. Nú hefur þessi óvenjulegi ástríðu- og hugsjónapólitíkus ákveðið að leggja niður vopn í baráttu fyrir kosningu til embættis forseta lýðveldisins. Þess í stað hefur hann tekið sér stöðu í baklandi Ólafs Ragnars Grímssonar og gefur honum góð ráð í þágu málstaðarins, sem er heimsfriður. Ólíkt sitjandi forseta sem er "main streem" maður fer Ástþór óvenjulegar leiðir til að vekja athygli í brýnum málstað sínum og vekja, það sem honum finnst, sofandi almenning og siðblinda ráðamenn.  Og hvað svo sem mönnum finnst um aðferðir hans þá er eitt víst að hann hefur haft áhrif og áorkað ýmsu. Ástþór hefur til að mynda komist oftar í heimspressuna en allir sendiherrar og öll utanríkisþjónusta Íslands samanlögð. Þar er nærtækast að taka "jólasveinaflugið" til Bagdad, sem helt athygli heimspressunnar í 5 daga.  Mikilsverðasta  og kannski vanmetnasta framlag Ástþórs í þágu  Íslands var þegar hann vakti athygli á áætlunum Halldórs og Davíðs að nýta farþegavélar Flugleiða til að flytja vopn og hermenn  til  stríðsreksturs í Írak.  Sem betur fer fyrir öryggi íslenskra flugfarþega var hætt við þessa  ákvörðun. Asthor_Magnusson_a_birosagon clinton


mbl.is Ástþór býður sig ekki fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málið er frágengið

Þorleifur Gunnlaugsson, dúkari og borgarfulltrúi Vinstri grænna virðist ekki átta sig á að málið er frágengið.  Húsið var selt Novator, fyrirtæki Björgólfs Björgólfssonar, fyrir k.r. 650.000.000-  Upphaflegt tilboð var 150.000.000 hærra en í því fólust breytingar aðkeyrslu til hússins sem ekki var einhugur um.  Hallargarðurinn og húsið sjálft verður eftir sem áður opið fyrir almenning. Breytingarnar felast m.a. í því að húsinu sem eitt sinn var það langglæsilegasta á landinu verður nú viðhaldið af kostgæfni, af  nýjum eiganda sínum sem er langafabarn Tors Jensen, sem byggði það. Nýr eigandi mun borga opinber gjöld af húsinu auk þess að halda því við í þágu almennings.


mbl.is Fríkirkjuvegur 11 ekki seldur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarstjórinn brettir upp ermar fyrir vorhreingerningar

20-10-2002-4812 Margrét Sverrisdóttir, getur tæplega leynt reiði sinni þar sem hún situr á launum sem varaborgarfulltrúi F-lista Frjálslynda flokksins og bíður þess nánast úrkula vonar að Ólafur F. Magnússon veikist. En ólíkt hafast þau að: Borgarstjórinn er ekki fyrr búinn að hleypa af stokkunum skipulagðri áætlun um að gefa miðborginni langþráða andlitslyftingu, eftir margra ára niðurníðslu, þegar hann fer fyrir sínum mönnum til vorhreingerninga í höfuðborginni, á björtum sumardegi. Borgarstjórinn er sólarmegin í lífinu, ég óska honum langlífis og góðrar heilsu. Þess vegna ætla ég að færa honum Rautt eðalginseng næst þegar ég hitti hann.

mbl.is Hreinsunarátak í höfuðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar leysa Palestínumálið! Nú mun brátt birta yfir Betlehem

Ríkisstjórnin á heiður skilinn fyrir að láta ekki yfirvofandi banka- og efnahagskreppu slá sig út af laginu.  ThordurAegirOskarssonNú þegar Íslendingar eru á góðri leið með að leysa vandamál Íraks og Afganistan er rétt að huga að nýjum verkefnum fyrir hina öflugu og ört vaxandi utanríkisþjónustu. Fyrst um sinn mun Þórður Ægir Óskarsson, sendiherra í Japan sinna þessu í hjáverkum, eða þangað til Ingibjörg Sólrún opnar nýtt sendiráð í Palestínu. Vonandi fara Palestínumenn samt ekki að gera íslenskum skattgreiðendum þann óleik að kjósa okkur í öryggisráðið. 

 

Þórður Ægir Óskarsson, mun sinna þessu með annarri hendinni til að byrja með.  


mbl.is Íslenskur sendifulltrúi í málefnum Palestínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í stjórnmálasamband við mannætu

Þó syrti í álinn í efnahagslegu tilliti geta Íslendingar ornað sé við  þann gríðarlega vöxt sem orðið hefur í utanríkisþjónustunni í tengslum við metnaðarfull áform ríkisstjórnarinnar að komast í öryggisráðið. Stjórnvöld hafa sýnt ráðdeild og hugvitssemi t.d. þegar þau skutu keppinautunum ref fyrir rass með því að efna til stjórnmálasambands við mannætu. Helsti kosturinn við þetta er sá að ef einhverjir stjórnmálamenn verða ekki endurkjörnir t.d. vegna mistaka í efnahagsstjórnun verður hægt að koma þeim fyrir öryggisráðinu.post-3031-1159912126





Halldór Ásgrímsson stóð sig frábærlega sem utanríkisráðherra og engin ástæða er til að ætla að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði eftirbátur hans. 


mbl.is Alvarleg staða efnahagsmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

Trúar- og kynþáttaofsóknir

vekja hjá mér sorg

ég á ekki orð

og segi ekki orð. 


mbl.is Grafir múslíma svívirtar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóræningjar eru plága

Þetta rifjar upp fyrir mér margar andvökunætur sem ég átti með riffil í hönd fyrir utan Lagos þegar ég var stýrimaður á Laxfossi 1981. Við komumst oft í tæri við sjóræningja, sem reyndu fyrir sér á hverri nóttu. Þetta var taugastríð sem gekk út á það að þeir komu ljóslausir að okkur en hurfu frá þegar við settum sírenur og skipsflautur í gang jafnframt því að blinda þá með sterkum ljóskösturum.  Þrautalendingin var að láta þá vita að byssur væru um borð.  Áhafnirnar reyndu líka að verja sig með því að láta skipin reka saman í hnapp til að verja hvert annað. alltaf þótti mikill fengur í að vera nálægt sovéskum, bandaríkum og ísraelskum skipum, sem alltaf voru vel vopnuð. Við gátum fylgst með sjóræningunum á radar og maður missti aldrei augun af þeim enda átti áhöfnin líf sitt undir árvekni okkar.  Það sýnir spillinguna best þarna að sjóræningjarnir voru vel upplýstir um farmskrá skipanna. Ástandið skánaði mikið eftir að í land var komið en það var samt ekki hættulaust. Eitt sinn var rúmlega helmingur áhafnarinnar handtekin af tollvörðum og látið liggja að því að við myndum ekki sjá þá næstu árin. Þá kom fulltrúi frá SÍF sem mútaði tollvörðunum og fóru þeir þá hlæjandi í burtu. Þessi handtaka snéri að misskilningi útflytjandans varðandi mútur ef ég man þetta rétt þurfti að múta lögreglunni til að verjast tollvörðun, hernum til að verjast lögreglunni og að lokum sjóhernum til að verjast hernum en það var jafnframt dýrast.

ss03367_01

 

 

 

Myndin sýnir systurskip Laxfoss, sem ég sigldi á með skreið til Nígeríu


mbl.is Sjóræningjarnir stefna í suður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband