Færsluflokkur: Spaugilegt
Hvað ef Graham biður fyrir Obama?
Fimmtudagur, 11. október 2012
Graham biður fyrir Romney | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Auglýst eftir atkvæðum fyrir erfðaprins
Sunnudagur, 11. desember 2011
Nýtt fólk meldar sig daglega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Framboð til stuðnings fjórflokknum
Sunnudagur, 9. maí 2010
Fara gegn fjórflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Forseti Landsdóms lítur málið alvarlegum augum
Laugardagur, 19. desember 2009
Það er hverjum manni ljóst að alþingi við Austurvöll er vanhæft til að fjalla um hvort Landsdómur á að taka fyrir mál þingmanna og ráðherra, þ.e. þeirra sjálfra.
Forseti Landsdóms: "Mun taka hlutverk mitt alvarlega"
Fjölluðu um rannsóknarskýrslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dr. Gunnar Tómasson varar alþingismenn við að skuldsetja Ísland meir
Þriðjudagur, 27. október 2009
27.10.2009 | 21:25
Bréf frá Gunnari Tómassyni um núverandi gjaldþrot Íslands.
Ágætu bloggvinir, fékk sendan tölvupóst sem Gunnar Tómasson hagfræðingur sendi upp á Íslands strendur. Gunnar hefur verið mjög gagnrýninn á að stjórnvöld hafa þverskallast við að horfast í augu við vandann og hagað sér að hætti okkar 2007.
Í þessu bréfi tjáir einn virtasti hagfræðingur Bandaríkjanna sig um stöðu Íslands. Hann segir blákalt að við séum gjaldþrota. Þrátt fyrir að allar helstu fréttastofur landsins hafi fengið bréfið frá Gunnari s.l nótt sjá þau enga ástæðu til að fræða okkur almenning um það. Þetta kallast þöggun og stríðir gegn upplýstri umræðu sem er almenningi nauðsynleg. Hverjum gagnast þessi þöggun?
Hér er bréf Gunnars;
Ágætu alþingismenn.
Í fyrradag spurði ég James Galbraith, einn virtasta hagfræðing Bandaríkjanna, um álit hans á því mati AGS (sjá IMF Survey 21. október sl.) að erlend skuldsetning Íslands að jafngildi 310% af vergri landsframleiðslu væri þjóðarbúinu ekki ofviða.
Galbraith svaraði um hæl (í minni þýðingu; enskur texti að neðan):
Það segir sig sjálft: það er fáránlegt að ímynda sér að Ísland eða eitthvað annað land geti tekið á sig gjaldeyrisskuldir sem jafngilda 300 eða 400 prósent af vergri landsframleiðslu (VLF) og forðast greiðsluþrot. Ef skuldir væru 400 prósent og vextir aðeins þrjú prósent þyrfti afgangur á viðskiptajöfnuði og hliðstæður samdráttur innlendrar neyzlu að vera 12 prósent af VLF án nokkurrar greiðslu af höfuðstól. En auðvitað myndi enginn vilja eiga lágvaxta íslenzk skuldabréf vegna áhættunnar á vanskilum.
Ef stjórnvöld reyndu að axla slíka skuldabyrði myndu vinnufærir einstaklingar flytja af landi brott. Útkoman yrði lýðfræðileg eyðilegging Íslands að viðbættu greiðsluþroti. Staðan er því ekki síður alvarleg en sú sem kom upp vegna stríðsskaðabóta í Versalasamningnum eða Morgenthau áætluninni fyrir Þýzkaland 1945. Samningurinn leiddi til óðaverðbólgu en áætlunin var ekki lögð til hliðar fyrr en ljóst varð að hún myndi leiða til brottflutnings eða útrýmingar mikils hluta þjóðarinnar sem lifði af stríðið.
Eins er það augljós skrípaleikur að leggja slíka skuldabyrði á litla þjóð, fyrst með svikum og síðan með hótunum.
Eins og málum er háttað er það siðferðileg skylda Íslands gagnvart alþjóðasamfélaginu að sækja svikahrappana til saka eftir því sem landslög leyfa. Hitt er fyrir stjórnvöld erlendra ríkja, sem brugðust skyldum sínum við bankaeftirlit, að ákveða hvernig deila skuli tapinu sem af því hlaust milli reikningshafa og skattborgara sinna.
Þér er heimilt að koma þessum skoðunum mínum á framfæri við aðra.
Virðingarfyllst,
Gunnar Tómasson, hagfræðingurDr.
Íslandslán rædd á Norðurlandaráðsþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 28.10.2009 kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Ég mæli með Jóhannesi
Sunnudagur, 25. október 2009
Ég fór í bíó í gær og sá Jóhannes. Ég man ekki eftir að hafa hlegið jafn mikið
Óborganleg skemmtun!
Herdís Þorvaldsdóttir fór á kostum
Hver er þessi Jóhannes? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég fauk í vinnuna. Undur og stórmerki!
Föstudagur, 9. október 2009
Ég gáði til veðurs í morgun og ætlaði að liggja í leti svona einn föstudag í óveðrinu en viti menn: Það kom allsnörp vindkviða sem feykti mér af stað og ég fauk alla leið í vinnuna og þar biðu mín verkefni.
Undur og stórmerki!
Snælduvitlaust á Kjalarnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fundarstjórn forseta
Sunnudagur, 6. september 2009
Sigmundur fer mikinn í Æsseif. Æsifengin myndbönd
Laugardagur, 22. ágúst 2009
Hérna er umræðan óstytt: http: http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20090820T225551&horfa=1
Funda um Icesave um helgina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 23.8.2009 kl. 01:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Grunaður um "einhverskonar" kynlíf
Þriðjudagur, 23. júní 2009
Kynlífið endaði með ósköpum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |