Auglýst eftir atkvæðum fyrir erfðaprins

Nú liggur fyrir að Fjórflokkurinn mun bjóða fram klofið, því einn að ástsælustu erfðaprinsum hans hefur tekið höndum saman við Besta flokkinn. Þetta gums auglýsir nú eftir nafni, stefnu, stuðningsmönnum og frambjóðendum.  Gumsið er samt ekki alveg stefnulaust því það vill allskyns grín t.d. ganga í Evrópusambandið sem þó er ekki beinlínis grín. Grænn hagvöxtur og sjálfbær hagkvæmni er forystumönunum hugleikin en en mestu skiptir þó að kjósendur styðji flokkinn svo  frambjóðendur komist á þing.
mbl.is Nýtt fólk meldar sig daglega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er nú vandamálið við erfðaprinsinn að hann lítur ekki út fyrir að vera nokkur foringi heldur villuráfandi sauður, nóg af slíkum fyrir í pólitíkinni.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 11.12.2011 kl. 13:01

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"Gums" - virkar jafn vel og hvað annað til að lýsa þessu.

Guðmundur Ásgeirsson, 11.12.2011 kl. 13:06

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Guðmundur Steingrímsson er veikur maður á sálinni og er með þá veiku von að verða eins og Pabbi hans var..

Vilhjálmur Stefánsson, 11.12.2011 kl. 14:27

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir innleggin. Kristjáni finnst erfðaprinsinn líta út eins og villuráfandi sauður. Ég veit ekki hvort það er rétt en ég vona að það sé merki um að hann sé sauðmeinlaus.

Sigurður Þórðarson, 11.12.2011 kl. 18:15

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ekki finnst mér sanngjarnt að dæma Guðmund út frá Pabba sínum. Hver einstaklingur er sjálfstæð persóna.

En ég set spurningarmerki við veru hans í Samfylkingunni og Framsókn, sem honum hugnaðist svo ekki? Var stefnan ekki skýr hjá báðum þessum flokkum?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.12.2011 kl. 01:18

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gummi var í hinum evrópusinnaða Halldórsarmi í Framsóknarflokknum og þingmálin hans segja allt sem segja þarf, óþarft gums.

Sigurður Þórðarson, 14.12.2011 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband