Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ilmur Kristjánsdóttir gróf. Heldur áfram sem Gísli Marteinn!

Kastljós var með óvenjulegu sniði í kvöld þegar þau Ilmur Kristjánsdóttir, í gervi Gísla Marteins og Guðmundur Steingrímssonar mættu til að fara yfir fréttir vikunnar. Þátturinn var rosalega fyndinn, allavega til að byrja með en endaði með talsvert gráu gamni. Helgi Seljan 24_fer þekktur fyrir að vera  talsvert óvægin við pólitíkusa, þó ég hafi hingað til verið sáttur við hann en núna fannst mér hann ganga of langt í gráu gamni: Í fyrstu lagði Ilmur Gísla þau orð í munn að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið í veg fyrir að fulltrúar hinna flokkana gæfu auðmönnum Orkuveitu Reykjavíkur. En steininn tók út þegar hún lagði borgarfulltrúanum þau orð í munn að Arni M. Mathiessen hafi staðið rétt að skipun héraðsdómara, með því að setja son Davíðs í embættið þó aðrir hæfari en lakar ættaðir hefðu sótt um. Og ekki var síður gróft af henni að leggja Gísla þau orð í munn að sjálfsagt sé að deila við umboðsmann Alþingis.  Þarna gekk Ilmur alltof langt!  Hvað á þetta einelti að þýða? Er Kastljós að reyna að rústa pólitískri framtíð Gísla?

 

Hvers á Gísli að gjalda?


Jólasveinn reyndi að hleypa fundinum upp

astthor_tru_ur.jpgÁ tímabili lá viðað syði uppúr á sáttafundinum í Iðnó, þegar friðarsinninn Ástþór Magnússon kom í jólasveinabúning og gerði sitt besta til að hleypa fundinum upp.  Jónasveininum var að lokum vísað á dyr og róaðist fundurinn þá og endaði í friði og spekt. Segja má að mikill órói sé nú í kring um jólasveina því ISG var um það bil búin að koma sér út úr húsi í Samfylkingunni með því að lýsa yfir eindregnum stuðningi við jakkafataklæddan jólasvein í ríkisstjórninni. big-ArniMMathiesenI4Y1715___jpg_550x400_q95 Asthor_Magnusson_a_birosagon
mbl.is Fundi lokið í sátt og samlyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglan fundar með grímuklæddum manni! Stöndum öll saman

Það   er sneisafullt út úr dyrum í Iðnó í kvöld þegar aðgerðasinnar funda með lögreglunni um mótm´æli og borgaralega óhlýðni.  Það kraumar mikil óánægja í þjóðfélaginu yfir ástandinu. Ég er einn þeirra sem tel að helstu ástæður þess að hrunið varð jafn afdrifaríkt og raun ber vitni sé gríðarleg spilling og andvaraleysi stjórnvalda. Ég tel að þess vegna að mótmælin séu ekki bara eðlileg heldur nauðsynleg til að þoka fram breytingum. Það liggur í augum uppi að það eina sem hindrar spillt stjórnvöld í að afskrifa skuldir velviðdamanna sinna eru vökul augu borgarana.

Eitt skulum við öll hafa á hreinu og það er að lögreglan er jafn miklir þolendur og hverjir Iraqi%20Police%20Masked%20Face%20Fallujah%202aðrir borgarar í landinu. Þeim finnst nákvæmlega jafn sorglegt og okkur að börn okkar skuli vera skuldsett í marga áratugi og jafnvel út lífið. 

Yfirmenn lögreglunnar eru heiðursmenn og það er þeim að þakka og lögreglunni allri að ekki hefur farið verr í þeim átökum sem þó hafa orðið.  

Fundurinn í kvöld var haldinn til að auka á skilning manna á milli og koma í veg fyrir að átök verði. Höldum áfram að mótmæla spillingu en stöndum með lögreglunni, hún er fólkið og vinnur fyrir fólkið.  


mbl.is Fullt út úr dyrum í Iðnó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld hafa klúðrað öllu hingað til og fara varla að breyta því.

Stjórnvöld afsöluðu sér illu heilli réttinum til að fara í icesave málssókn, því annars hefðum við ekki fengið lánið frá IMF. Þetta var gert að kröfu ESB. Með því að ganga að þessum afarkostum var verið að ýta málinu inn í framtíðina og margfalda vanda komandi kynslóða.  Íslenska ríkið hefur hins vegar dregið lappirnar í málsókn vegna hryðjuverkalaga á kaunþing og sinclar (ef ég stafset þetta rétt) sem var breskur banki.   Fresturinn til þeirrar málshöfðunar rennur út á miðvikudaginn kemur.

Helst hefur verið lífsmark með stjórnvöldum í sambandi við öryggisráðið en annars hafa þau verið dauðadái í meira en ár. Því er heldur ólíklegt að þau rumski yfir þessu.  Kannski vakna dyggir flokksmenn til að afskrifa skuldir  velþóknanlegra Sjá hér

og hér


mbl.is Fresturinn að renna út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er markleysa

Sjálfstæðisflokkurinn mun gera allt sem í hans valdi stendur til að forðast kosningar, bæði vegna þess að hann stendur illa í skoðanakönnunum og ekki síður vegna þess að gríðarlegar Geir_Haardeeignir eru nú að færast til ríkisins sem forysta flokksins vill ráðstafa til sinna manna.  Ingibjörg Sólrún hefur sett Sjálfstæðisflokknum skýra kosti: Samþykki landsfundurinn ekki ESB aðild mun hún slíta stjórnarsamstarfinu og efna til kosninga.

Því er sjálfstæðismönnum nauðugur einn kostur þ.e. þeir verða að samþykkja ESB tillögur Samfylkingarinnar. Þess vegna er landsfundurinn sjónarspil og markleysa.


mbl.is Segir utanríkisráðherra vinna gegn ESB umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álverð þokast uppávið Ísland á ýmsa möguleika

Íslendingar eru að sigla inn í kreppu og eru undir miklum þrýstingi að finna góð atvinnutækifæri. Undanfarið misseri hefur ál verið á brunaútsölu og lægst fór það fyrir um 3 vikum niður í 1465$ fyrir tonnið en hefur nú hækkað um rúma hundrað dali frá því verði eða í 1570$ pr tonn. Því er ljóst að samningsstaða Íslands gæti verið betri svo ekki sé meira sagt. Undanfarið hafa verið byggð álver í Kasakstan, Indlandi og Kína en búist er við frekari lokunum í Kanada og Bandaríkjunum snemma á þessu ári. Þess vegna má búast við að raforkusala Landsvirkjunar, sem rekin er með tapi fari aftur að skila hagnaði í næsta mánuði, enda eru framvirkir samningar hærri. Sjá hér 

 

Fyrir skömmu ræddi Þórólfur Árnason forstjóri SKÝRR um þróun og möguleika hugbúnaðarins á Íslandi. Hann sagði að hugbúnaðarfyrirtækin hafi þrifist þrátt fyrir  mjög hátt gengi en nú blómstruðu þau mörg hver, þar sem þau fengju helmingi fleiri krónur fyrir sömu vinnu. Hugbúnaðarfyrirtæki hafa vaxið án atbeina stjórnvalda og sá iðnaður er ein fárra atvinnugreina sem er að bæta við sig fólki núna.   

 

Færeyingar sýndu fram á að sjávarútvegurinn getur skilað mun meiri arði ef hann losnar úr viðjum kvótans.  Þannig myndi brottkastið hverfa og hægt væri spara dýrt og óskilvirkt eftirlitskerfi. Þá er hægt að veiða mun meira með því að grisja hval þó ekki væri nema lítilsháttar. 

Verðsveiflurnar á áli sýna að við ættum ekki að  sækjast eftir því sérstaklega að hafa fleiri álegg í einni og sömu körfunni enda er raforka eftirsótt í ýmislegt.

 Losnum við úrræðalausu ríkisstjórnina og leyfum þúsund blómum að spretta

  Lifi Ísland

 


mbl.is Helguvík í gang 2011
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Víkingasveit Seðlabankans" lætur finna fyrir sér

c7fb4476ae5df9eccb35619765ed7dffEins  og sést á gekk hanskaklæddi maðurinn á myndinni um á vettvangi ógnaði og sló til mótmælenda. Þessi ógnvænlegi maður er enginn annar en Ólafur Klemensson hagfræðingur seðlabankans sem þarna kom uppábúinn til slagsmála ásamt bróður sínum. Vitni á staðnum sáu til ofbeldismannsins reyna að sparka í liggjandi mann, sem verið var að stumra yfir vegna piparúða.

Í lögum um opinbera starfsmenn er í 14. grein kveðið á um að starfsmanni sé utan starfsvettvangs óheimilt að aðhafast nokkuð það sem varpað geti rýrð á starf hans eða starfsgrein. í 21. grein sömu laga segir að verði starfsmaður uppvís að ósæmilegri, óhæfilegri hegðun eða ósamrýmanlegri starfinu skuli forstöðumaður veita honum skriflega áminningu.
Úr lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

Opinberar starfskyldur þessa manns eru ekki þær að koma fram sem víkingasveit fyrir hönd bankans.  Með þessari háttsemi hefur maðurinn rýrt álit seðlabankans og því ber Davíð að veita honum skriflega áminningu.  Mun Davíð standast það álagspróf?

 motmaelanda_ogna_-1

 Hagfræðingur seðlabankans Ólafur Klemensson, lætur hendur skipta


mbl.is Mótmælendum ógnað á gamlársdag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raddir Fólksins hafa talað: Árni búinn að tæma bikarinn

Árni Mathiessen er endanlega búinn að vera í pólitík eftir þennan úrskurð Radda Fólksins.  big-ArniMMathiesenI4Y1715___jpg_550x400_q95 Árni var nú reyndar ekki vinsæll fyrir en þetta gerði endanlega út um feril hans sem stjórnmálamanns. Maður spyr sig af hverju viðskipta- og bankamálaráðherra var hlíft?  En það þíðir ekki að deila við Raddir Fólksins. Ráðamenn sem eru rúnir öllu trausti almennings, ættu að fara en ekki þumbast við.
mbl.is Krefjast afsagnar Árna Mathiesen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt ár, ný fyrirheit Hvernig þróast Ísland?

Flestir Íslendingar kveðja árið 2008 með blendnum huga. Langvinn spilling og óstjórn í landinu leiddi það af sér að efnahagslægðin kom óvenju hart niður á íslensku þjóðinni og Flugeldar-twilight-01mun hún þurfa að glíma við afleiðingar þess næstu áratugina. Vonandi reynist Páll Skúlason sannspár í því að þjóðin muni nú kasta fyrir róða þeim sérhagsmunagildum sem komu henni á vonarvöl.  En hvernig koma menn á nauðsynlegri siðbót sem fólkið þyrstir eftir og er söguleg nauðsyn ef þjóðin á að komast á lappirnar. Kannski munu menn reyna að laga einhvern þeirra flokka sem fyrir eru. Kosturinn við þetta er sá að flestir flokkarnir hafa góða stefnuskrá og markmiðasetningu. Gallinn við það er sá að  þar sitja á fleti fyrir menn sem ýmist eru sekir um núverandi ástand eða hafa sýnt ótrúlega meðvirkni og hafa engu meiri skilning á þörf byrir breytingar en sjálfir gerendurnir. Ef til vill verður stofnaður nýr stjórnmálaflokkur einn eða fleiri. Þetta er ekki áhlaupaverk, m.a. vegna þess að núverandi stjórnmálaflokkar hafa skapað sér forskot. En á móti kemur að nýir aðilar þurfa ekki að dragnast með fortíðarvanda annarra. Því er það kannski besti kosturinn?

Sjálfur vona ég að ég geti verið betri við fólkið mitt og komið ýmsu þörfu til leiðar sem setið hefur á hakanum alltof lengi  sakir leti. 

 

Ég óska bloggvinum mínum

Gleðilegs árs og vona að komandi ár verði þeim gjöfult og hamingjusamt í einkalífi.

 


mbl.is Gleðilegt nýtt ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir telur ólíklegt að honum hafi orðið á

c_documents_and_settings_jens_gud_my_documents_my_pictures_traust_efnahagsstjorn_geirsGeir telur frekar ólíklegt að honum hafi orðið á.

Setur þó þennan varnagla:

„Hafi mér orðið á þá þykir mér það leitt,“

Það stefnir því allt í að auglýsingin verði notuð áfram. 


mbl.is Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband