Olli Rehn styrkir samningsstöðu VG í stjórnarmyndunarviðræðunum
Miðvikudagur, 29. apríl 2009

![]() |
Þarf ekki einhug um umsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fjölmiðlaelítan dásamar nýju fötin keisarans. Vantar vasareiknivél
Mánudagur, 27. apríl 2009
Steingrímur hafði algerlega rétt fyrir sér. Í hvert sinn sem Evrópuaðild kemst á dagsrá er "Evrópusérfræðingurinn" Eiríkur Bergmann kallaður til að gefa sitt álit sem felst ávalt í því að gera lítið úr ókostum Evrópusambandsaðildar.
Þá er Framsókn í raun búin að hafna Evrópusambandsaðild með því að setja skilyrði um forræði Íslendinga á fiskveiðiauðlindinni. Fjölmiðlamenn vita ekki að ESB mun aldrei samþykkja þetta enda hefur Eiríkur Bergmann ekki sagt þeim frá því.
Fjölmiðlamenn hafa leyft Samfylkingunni að komast upp með að svara engu um efnahagsmál en vísa þess í stað á hugmyndir sínar um aðild að Evrópusambandinu. Andstæðingar ESB aðildar eru í meirihluta bæði meðal þings og þjóðar.
Eini flokkurinn sem vill sjkja um án skilyrða er Samfylkingin sem hefur 20 þingmenn Borgarahreyfingin er með óljósar hugmyndir en vill skjóta málinu til kjósenda 4 þingmenn Evrópusinnar samt: 24 þingmenn
Andstæðingar Evrópusambandsaðildar eru mun fleiri:
Framsóknarmenn vilja sækja um að uppfylltum skilyrðum um forræði Íslendinga yfir fiskimiðunum, nokkuð sem ESB mun aldrei samþykkja 9 þingmenn
Sjálfst æðismenn telja hag Íslands best borgið utan ESB 16 þingmenn
VG þelja hag Íslands best borgið utan ESB 14 þingmenn
Andstæðingar aðildar Samtals 39 þingmenn
![]() |
Elítan vill í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fyndinn kjörseðill
Sunnudagur, 26. apríl 2009
Í kosningunum vann ég fyrir yfirkjörstjón Reykjavík suður við að fara yfir utankjörfundar vafaatkvæði sem úrskurða þurfti gild eða ógil. Flest urðu atkvæðin ógild vegna smávegilegs klaufaskapar á formsatriðum sem þarf að fylgja en stundum stungu ógildu seðlarnir virkilega í stúf.
Einn seðill merktur tilteknum flokki voru eftirfarandi skilaboð: Ég kýs ykkur núna í þetta sinn og vona svo að þið getið gert eitthvað fyrir mig í staðin. Lalli Johns
![]() |
Davíð eyðilagði landsfundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Franskir útgeramenn halda með Samfylkingunni
Föstudagur, 24. apríl 2009
Eftir að bankafroðan fauk í burtu og þjóðin situr eftir með skuldirnar veðum við sem aldrei fyrr að treysta á gömlu undirstöðuatvinnugreinarnar ekki síst fiskveiðiauðlindina. Það tók franska sjómenn tvo mánuði að klára kvótann sem ESB úthlutaði þeim. Þeir horfa nú vonaraugum til Samfylkingarinnar, að hún nái völdum í hruninu og ringulreiðinni hér. Látum það ekki gerast á kjördag X-F fyrir auðlindir í almannaeigu.
![]() |
AFP: Íslensk sjómennska í blóma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fönikíumenn vildu feitar konur
Föstudagur, 24. apríl 2009
![]() |
Horuð eða falleg? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannlegir skildir mútuþega.
Fimmtudagur, 23. apríl 2009
![]() |
Neitar að gefa upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ósammála - Ég er ósammála þeim sem vilja gefa fiskimiðin
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
ESB andstæðingar skráið ykkur á ósammála.is!
Ég vildi athygli allra sem eru ósamála því að Ísland innlimist í ESB og afnemi fiskveiðilögsögu Íslands um leið og tekin er upp fiskveiðilögsaga ESB á að þeir geta skráð sig hér á ósammála.is! Endilega skráið ykkur og látið alla vita sem eru ekki hlynntur ESB aðild.

![]() |
Ósammála punktur is |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 23.4.2009 kl. 07:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
VG vill hvalveiðar feigar
Laugardagur, 18. apríl 2009
Sjávarútvegsráðherra hefur gert samkomulag við Hagfræðistofnun um að leggja þjóðhagslegt mat á hvalveiðum í þeim tilgangi að finna réttlætingu til að draga úr eða stöðva hvalveiðar. Þannig á Hagfræðistofnun að reikna út áhrif á ferðaþjónustu án þess að hafa til þess nokkrar forsendur. En Hagfræðistofnun er ekki ætlað að rannsaka hagræn áhrif þess að halda vexti hvalastofna í skefjum þó vitað sé að hvalir éta í það minnsta 15 sinnum meira en við veiðum. Þannig er Hagfræðistofnun ætlað að reikna út og meta huglægar forsendur en sleppa þekktum stærðum.
![]() |
Mat lagt á þjóðhagsleg áhrif hvalveiða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Fyrir hvað borgaði Eykt 5 milljónir til Framsóknarflokksins?
Sunnudagur, 12. apríl 2009
Það vekur athygli að fyrirtæki keppast við að fá fjölmiðla og helst af öllu sjónvarp til að mynda sig í bak og fyrir ef þau gefa nokkra hundraðþúsundkalla til líknarfélaga. En þau reyna að leyna því nánast eins og mannsmorði ef þau "styrkja" einhvern flokk sem er í valdastöðu til að endurgreiða "styrkinn". Þannig þurfti Framsókn að suða í marga daga í styrkveiðendum sínum til að fá leyfi til að birta nöfn þeirra, enda höfðu fyrirtækin sum hver fjárfest í trausti þess að styrkurinn yrði ekki gefinn upp. Nú hefur það þó verið gert undir miklum þrýstingi og því liggur beint við að spyrja: Fyrir hvað var Eykt að borga 5 milljónir beint í Framsókn? Þeir sem fylgst hafa með borgarmálum vita að Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi hefur margítrekað gagnrýnt að núverandi meirihluti gerði afar óhagkvæman samning við Eykt um leigu á Höfðatorgi til 25ára upp á 4 milljarða vísitölutryggt. Fyrir utan þessa upphæð til flokksins hefur Óskar Bergson fulltrúi Framsóknarflokksins, viðurkennt að hafa mótekið peninga beint frá Eykt en ekki viljað gefa upp upphæðina. Hvað er upphæðin há Óskar?
![]() |
Framsókn opnar bókhaldið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (56)
Vistmenn á Kvíabryggju snúa baki við Sjálfstæðisflokknum
Sunnudagur, 12. apríl 2009
Sigurjón bróðir minn hefur gert víðreist um Snæfellsnesið, þaðan sem við erum raunar ættaðir, í kosningabaráttunni en hann skipar annað sætið á lista Frjálslyndra í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf átt miklu fylgi að fagna á Snæfellsnesi og eitt sterkasta vígi hans um langa hríð hefur verið á Kvíabryggju. Gleðipinninn Árni Johnsen var þar fyrir skemmstu hrókur alls fagnaðar og naut þar engu minna fylgis en í Vestmannaeyjum. Því hefði fyrirfram mátt búast við að Sigurjón hefði átt við ramman reip að draga en það kom skemmtilega á óvart að því var ekki þannig varið þvert á móti. Fangarnir eru þarna af því að þeir brutu reglur samfélagsins en þeir líta á vist sína sem betrunarvist og eiga það markmið að verða betri menn. Mútuþægni Sjálfstæðisflokksins gagnvart þeim sem ásælast auðlindir þjóðarinnar er þeim ekki aðeins áhyggjuefni heldur stríðir hún gegn lífsgildum fanganna. Eða eins og einn fanginn orðaði það: "Þetta voru mennirnir sem komu okkur á hausinn". Fangelsið Kvíabryggja, er mannbætandi.
![]() |
Segir báða framkvæmdastjóra hafa vitað af styrkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)