Bíðum kosninga í Bretlandi

gordon-brownStjórnarandstaðan í Bretlandi hefur gagnrýnt Gordon Brown fyrir framgöngu hans í Icesave og fyrir setningu hryðjuverkalaganna. Flokksmenn hans hér á landi eru honum þó auðsveipir og vilja ganga að hvaða tilboði sem bresk flokkssystkini þeirra leggja fram, þetta sýnir reynslan.

Ríkisstjórnin hefur því ekki viljað beita sínu beittasta vopni sem er málsókn og samvinna við stjórnarandstöðuna í Bretlandi vegna setningu hryðjuverkalaganna. 

 


mbl.is Breytt vaxtakjör nægja ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hermann Valson myndugri en Sóley

pic Vinstri græn hafa skynsama stefnu t.d. í umhverfismálum og þar er mikið af hæfu fólki því er með öllu óskiljanlegt að Sóley Tómasdóttir, sem er helst þekkt fyrir að vera öfgafullur femínisti, sem vill kynjakvóta á öllum sviðum þjóðlífsins, jafnvel íþróttafélögum, ákafur stuðningsmaður Æsseif og að forsetinn segi af sér eigi að leiða listann meðan jafn hæfir einstaklingar og Hermann Valson eru mun neðar.
mbl.is Hermann studdi Ólaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorleifur fórnarlamb femínsta

Ef marka má eftiráskýringar formanns kjörnefndar VG þá var framkvæmd og reglur kosninganna núna þær sömu og árið 2007.  Kjörnefndin áttaði sig á þessu, eftir að ljóst var að stuðningsmenn Sóleyjar Tómasdóttur höfðu farið á svig við fyrirmæli kjörnefndar sem keppinautur hennar virti.

 Nú hefur háskólakennari birt málsvörn sína þar sem fram kemur að Þorleifur sé miðaldra karl.

crop_260xÞeir sem gerst þekkja þykjast þó vita að kyn og aldur hins geðþekka  Þorleifs, sé ekki það eina sem hann hafi unnið sér til óhelgi hjá þeim sem ráða í flokknum.

 

Þorleifur er alþýðlegur og viðmótsþýður maður sem getið hefur sér gott orð fyrir sín störf.

 

 


mbl.is Ágreiningur eftir forval VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk fiskveiðilögsaga ekki framseld til öfgamanna

GrundarfjordurÞað er mikilvægt að íslensk stjórnvöld séu ekki svo ístöðulaus að þau hlaupi eftir órökstuddum óskum um að þjóðin fái ekki að nýta náttúruauðlindir sínar með sjálfbærum hætti.

Ef látið verður undan kröfum öfgamanna um að við megum ekki veiða hval er stutt í að okkur verði bannað að veiða sel (það er nú þegar bannað í Evrópusambandinu). Ef þjóðin gengi í Evrópusambandið flyst stjórn fiskveiða til Brussel og þá eiga sjómenn lífsaðkomu sína undir duttlungum spjátrunga. 


mbl.is Stefnubreyting í hvalveiðimálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem höfðingjarnir hafast að, hinr halda að sér leyfist það.

Bandarískur hermaður beitt vatnspyntingum á 4 ára dóttur sína, kannski vegna þess að "klerkastjórnin" í Washington var búin að segja að vatnspyntingar séu ekki pyntingar.
mbl.is Beitti 4 ára dóttur sín vatnspyntingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég búinn að kjósa

michael-jackson-noseStjórnmálamenn ræða nú hvernig hægt sé að losna við þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Ég mætti snemma í morgun hjá sýslumanninum í Reykjavík og greiddi atkvæði um Æsseif.

Það er um að gera að neyta á meðan á nefi stendur.

 


mbl.is 166 búnir að kjósa um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vinalöndin" og systurflokkar.

Ólafur Ísleifsson í fréttum Ríkisútvarpsins að Norðurlöndin gengu lengst í að styðja Breta í kúgun þeirra  gagnvart Íslendingum.

 

Í ferð þremenninganna sem fóru út á vegum Attac til Noregs að það er einungis systurflokkur Samfykingarinnar, Arbejderpartiet, sem stendur gegn Íslandi.  Hver er ástæðan? 

Eru kratarnir að taka afstöðu gegn Íslendingum eða með Samfylkingunni?


mbl.is AGS vill ekki tengja Icesave við lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóherinn tekur (bítla)-lagið


Merkilegar fréttir. Línur skýrast í Noregi

Gunnar Skúli Ármannsson einn þremenninganna sem funda nú í Noregi skrifar merkilega bloggfærslu hér

Andstæðingar eb aðildar 'i noregi hafa mikinn skilning a malstað Islands:


mbl.is Ekki formlega rætt við Noreg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ATTAC samtökin berjast fyrir Ísland

einar_marÓlíkt hafast þau að forsætisráðherrann sem lætur aðstoðarmann sinn atyrða Evu Joly fyrir að taka málstað Íslands og ATTAC  samtökin sem kosta för þriggja Íslendinga til Noregs til að tala máli Íslands milliliðalaust við norsk stjórnvöld og forystumenn norskra stjórnmálaflokka. Markmiðið er að losa Ísland úr klóm fjárkúgunar AGS fyrir Breta og Hollendinga.

 

               Sjá:     www.attac.is

gunnar


mbl.is Ræða við fulltrúa Noregsstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband