Hollendingar vita að Íslendingar geta ekki borgað Icesave
Þriðjudagur, 8. júní 2010
Þó hluti ríkisstjórnarinnar telji að það sé leikur einn að greiða Æsseif þá vita Hollendingar betur.En hvers vegna er Bretum og Hollendingum svona mikið í mun að plata Íslendinga til að skrifa undir skuldbindingar sem þeir geta augljóslega aldrei greitt?
Svarið liggur í augum uppi þeir vilja að Íslendingar greiði með því eina sem þeir eiga þ.e. auðlindirnar.
![]() |
Íslendingar geta ekki borgað Icesave" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eru laun Más kjarni efnahagsvandans?
Mánudagur, 7. júní 2010

![]() |
Breytt að ósk ráðuneytis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ísland framleiðir ekki fyrir vöxtunum
Sunnudagur, 6. júní 2010
Vaxtastefna sem kennd er við seðlabankans en í raun stjórnað er af AGS þýðir að Ísland framleiðir ekki fyrir vöxtunum. Þetta þýðir á mannamáli að skuldastaða Íslands versnar með hverjum degi sem haldið er áfram á þessari braut.
![]() |
Hefur kostað yfir 350 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hverjir fengu 800 milljónir í styrkinn?
Laugardagur, 5. júní 2010
Í fjárlagafrumvarpinu 2008 er gert ráð fyrir ýmsum kostnaði beint og óbeint í tengslum við framboð Íslands í öryggisráðið, þ.m.t. 800 milljónir til smáeyja. Í vikunni sem hrunið var tilkynnt undi ISG sér ekki hvíldar þar sem hún flaug í einkaþotu Kristínar Ólafsdóttur eiginkonu Björgólfs Thor Björgólfssonar milli smáeyja í Karabíska hafinu til að afla framboði Íslands til öryggisráðsins stuðnings.
Til allrar guðsmildi náði Ísland ekki kjöri. Þar sannaðist hið fornkveðna að "betri er hálfur skaði en allur".
![]() |
Guðlaugur fékk hæstu styrkina frá Baugi, Fons og FL Group |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hafró þakkað sólskinið en ekki regnið
Föstudagur, 4. júní 2010
Á þeim 25 árum sem kvótakerfið hefur verið við lýði er talið að þorskstofninn hafi minnkað um 50% en nú telur Hafró að stofninn sé örlítið stærri en á síðasta ári. Atli Gíslason formaður sjávarútvegsnefndar á ekki orð yfir hrifningu sína og segir þetta "augljós merki þess að Hafrannsóknarstofnun sé á réttri leið".
Fyrir skemmstu fannst engin ýsa í togararalli, Hafró hafði sem sé týnt ýsunni sem var um allan sjó fyrir þremur árum. Man einhver eftir því að Atli Gíslason hafi tjáð sig um það?
![]() |
Hafró á réttri leið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bankarnir spila enn í lottó.
Fimmtudagur, 3. júní 2010

![]() |
Bankarnir uppfylla ekki reglur FME |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samfylkingin forystulaus!
Miðvikudagur, 2. júní 2010

![]() |
Samfylking finni nýja forystu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |