Stórglæsilegt framtak!
Miðvikudagur, 30. júní 2010
Við hljótum öll að fagna því að eina útvarpsstöðin sem ekki er hagsmunatengd skuli hafa eflst svo mjög að hún sé nú af eigin rammleik að opna fréttastofu. Ég treysti því að almenningur muni taka þessu framtaki fagnandi.
Ég sendi Arnþrúði og öllu starfsfólkinu hamingju- og velfarnaðaróskir.
![]() |
Ný fréttastofa í loftið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vilja inn um hundalúguna en í þágu hverra?
Mánudagur, 28. júní 2010
"Lengi getur vont versnað" Já ótrúlegt en satt:
Jafn afleitt og kvótakerfið er hér á Íslandi, færum við fyrst úr öskunni í eldinn með því að hér yrði innleitt Brusselfiskveiðikerfið. Og þá myndi fáráðlingahátturinn ná nýjum hæðum ef þjóðin afhendi fiskimiðin, lífsbjörgina, til Evrópusambandsins og þeir fáu húskarlar sem hér strituðu fyrir mat, þyrftu að halda uppi heilu stóði af hámenntuðum íslenskum möppudýrum sem nytu lífsins í Brussel þar sem menn sópa göturnar fyrir 300.000.
![]() |
Víglínur skýrast gagnvart ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Páfi vill ekki lögreglurannsókn
Sunnudagur, 27. júní 2010
Páfinn krefst þess að lögreglan í Belgíu hætti að rannska kynferðisglæpi presta.
Ég votta kaþólskum mönnum samúð mína vegna þessar undarlegu hegðun páfa.
![]() |
Páfi gagnrýnir belgísku lögregluna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Össur hefur sterkar þjóðir með sér
Miðvikudagur, 23. júní 2010
![]() |
Össur: Höfum sterkar þjóðir með okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vill þingmaður Samfylkingarinnar að ríkið styrki vogunarsjóðina?
Þriðjudagur, 22. júní 2010
Að öllu jöfnu þýðir dómur Hæstaréttar að í gengistryggðum lánum að gjaldeyrisstaða landsins batnar vegna minni skulda og vaxtabyrði til erlendra kröfuhafa. Dómurinn þýðir líka stórauknar tekur ríkisins vegna þess að fyrirtæki sem hafa haft háa fjármagnsliði munu greiða skatta af umtalsverðum hagnaði.
Þess vegna kemur það á óvart að Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar vilji snúa við dómi Hæstaréttar og skuli bera því við að ósanngjarnt sé að skattgreiðendur borgi skuldir þeirra sem tóku gengislán.
Er nokkur önnur skýring á þessum málflutningi þingmannsins önnur en sú að hann vilji að skattgreiðendur borgi tap erlendra vogunarsjóða sem eiga bankana?
![]() |
Vill verðtryggingu á lánin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Jón Bjarnason beygi af blindgötunni
Miðvikudagur, 16. júní 2010
Eftir að sápukúlur bankanna sprungu og skildu eftir sig skuldaklístur hefur enn og aftur komið í ljós að Íslendingar lifa af sjávarútvegi. Vitað er að sjávarspendýr éta 20 x meira magn en við veiðum. Íslendingar eiga því tilveru sína undir því að fá að halda jafnvægi í lífríkinu.
Nú hefur komið á daginn sem við vöruðum við að Evrópusambandið myndi banna sel- og hvalveiðar ef og þegar það tæki við stjórn landhelginnar. Afrakstur af hvalveiðum hefur dugað fyrir rándýru aðildarviðræðuferli. Þessu vilja aðildarsinnar fórna og telja sig geta fengið styrk frá Evrópusambandinu fyrir viðræðukostnaði. Sérfræðingar munu fá vinnu í Brussel en almenningur tapar lífsbjörginni.
Vonandi tekst Jóni að koma Össuri í skilning um þetta.
![]() |
Vilja að við hættum hvalveiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2/3 Íslendinga vilja draga umsóknina að ESB til baka
Mánudagur, 14. júní 2010
Í nýrri könnun sem MMR gerði kemur fram að mikill meirihluti landsmanna vill draga umsókn landsins að ESB til baka. Sjá könnun hér
Ennfremur kom í ljós að mikill meirihluti landsmanna telur að peningum til umsóknar að Evrópusambandinu sé illa varið.
Evrópusambandið situr við sinn keip og ætlar að hefja aðildarviðræður í óþökk þjóðarinnar 17. júní en setur þau skilyrði að Ísland verði fyrst að semja um Æsseif
![]() |
Reiðubúnir að hefja aðildarviðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Reynum að koma í veg fyrir landflótta
Föstudagur, 11. júní 2010
![]() |
Óttast landflótta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færeyingar og Íslendingar sameinist!
Föstudagur, 11. júní 2010
Nú er allt útlit fyrir að Danir muni greiða atkvæði gegn hagsmunum Færeyinga í þágu Evrópusambandsins með því að gera málamiðlun um hvalveiðar. Vinir okkar Færeyingar eru æfir út í Dani fyrir þennan lúgahátt. Við eigum að sameinast Færeyingum og fela þeim stjórn sjávarútvegs- og efnahagsmála sem þeir ráða mun betur við.
Færeyskir stjórnmálamenn spretta úr atvinnulífinu og skammast sín ekki fyrir að spyrða fisk ef engin eftirspurn er eftir þeim lengur, ólíkt íslenskum stjórnmálamönnum sem krefjast þess að verða sendiherrar eða seðlabankastjórar. Þetta ráðslag Íslendinganna þenur út utanríkisráðuneytið og hvetur til þess að sótt sé um aðild að öryggisráðinu þó það sé dýrt og Evrópusambandinu þó þjóðin tapi á því.
![]() |
Færeyingar æfir út í Espersen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kína kastar líflínu til Íslands
Miðvikudagur, 9. júní 2010
Utanríkisráðherra verður að manna sig upp í að klára fríverslunarsamninginn við Kína sem er búinn að vera nánast tilbúinn í nokkur ár. Hvað er hann að dreyma?
ZZZZ
Fríverslunarsamningur myndi veita veita Íslendingu öfluga stöðugagnvart Evrópusambandinu þegar það reynir að innlima Ísland.
Ef svo illa tækist til að Ísland yrði innlimað í Sambandið myndum við í fyrsta lagi tapa mikilvægum mörkuðum fyrir vörur sem við getum ekki selt í Evrópu.
(Allir fríverslunarsamningar falla niður, og markaðir munu lokast fyrir loðnuhrogn, hvalaafurðir sæbjúgu úthafskarfa ofl ofl.)
Í öðru lagi bannar Evrópusambandið allar veiðar á sjávarspendýrum sem éta 20 sinnum meira en við veiðum.
Í þriðja lagi missum við forræði yfir okkar mikilvægustu auðlind þ.e. fiskinum í hafinu.
Fylgismenn aðildar, virðast ekki vita af þessu og hafa þess utan ekki getað bent á neinn raunverulegan ávinning. Helst hefur verið talað um evru og lægra matarverð en það eru fuglar í skógi, sem erfitt er að sýna hvað þá að handsama.
![]() |
Gjaldeyrissamningur við Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)