Kína kastar líflínu til Íslands

c_documents_and_settings_ibm_my_documents_my_pictures_ssur_885375Utanríkisráðherra verður að manna sig upp í að klára fríverslunarsamninginn við Kína sem er búinn að vera nánast tilbúinn í nokkur ár. Hvað er hann að dreyma?euro-logotype

ZZZZ

Fríverslunarsamningur myndi veita veita Íslendingu öfluga stöðugagnvart Evrópusambandinu þegar það reynir að innlima Ísland.

Ef svo illa tækist til að Ísland yrði innlimað í Sambandið myndum við í fyrsta lagi tapa mikilvægum mörkuðum fyrir vörur sem við getum ekki selt í Evrópu.

(Allir fríverslunarsamningar falla niður, og markaðir munu lokast fyrir loðnuhrogn, hvalaafurðir sæbjúgu úthafskarfa ofl ofl.)

Í öðru lagi bannar Evrópusambandið allar veiðar á sjávarspendýrum sem éta 20 sinnum meira en við veiðum.

Í þriðja lagi missum við forræði yfir okkar mikilvægustu auðlind þ.e. fiskinum í hafinu.

Fylgismenn aðildar, virðast ekki vita af þessu og hafa þess utan ekki getað bent á neinn raunverulegan ávinning. Helst hefur verið talað um evru og lægra matarverð en það eru fuglar í skógi, sem erfitt er að sýna hvað þá að handsama.


mbl.is Gjaldeyrissamningur við Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Áttu vð að við inngöngu í Evrópusamb. mundum við tapa mörkuðum osfrv.   eða að við munum tapa á að tengjast Kína? 

Þetta er óljóst af orðanna hljóðan!¨

Kveðja,

Ragnar

PS. Hefurðu fundið nokkuð um vísuna um "Ameríska úrvalsliðið sem iðkar kálfasmíð"???

R

Ragnar Eiríksson, 9.6.2010 kl. 09:19

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir ábendinguna maður hugsar víst hraðar en maður skrifar.

Jú þú meinar þá vísu um amerísku úrvalshermennina sem laumuðust í fjós.

" Ef að þetta úrvalslið//iðkar kálfasmíði//

hverju ætli úrkastið// í Ameríku ríði?"

Sigurður Þórðarson, 9.6.2010 kl. 10:24

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ragnar: Ef við værum í ESB þá gætum við einfaldlega ekki gert svona samninga við önnur ríki, því þá færi Brüssel með samningsvaldið. Ég vil góðfúslega benda ykkur á að skoða stefnuskrá Samtaka Fullveldissina, en ég tilheyri sjálfur þeim samtökum. Eins og gefur að skilja erum við andsnúin ESB-aðild, meðal annars á þessum forsendum að halda sjálfstæði í utanríkismálum, og höfum einmitt bent á Kína sem mögulegan annan valkost í þeim efnum. Þrátt fyrir allt getum við áfram haft viðskipti við Evrópu, meðal annars gegnum EES, og höldum fullu samningsfrelsi gagnvart þeim. Þannig getum við komið okkur í lykilstöðu til að brúa bil milli þessara tveggja risa, en það hefur alltaf reynst Íslandi mjög hagstætt að geta komið sér í slíka stöðu eins og kom á daginn í kalda stríðiðinu svo dæmi sé tekið.

P.S. Ég sagði það í gríni við félaga minn í samtökunum um daginn, að ef farið hefði verið eftir stefnuskrá okkar frá því hún var lögð fram, og t.d. verið sleppt því að eyða púðri í IceSave eða ESB og aðra slíka tímaeyðslu, þá hefðum við náð að komast á þremur mánuðum á sama stað og ríkisstjórnin er komin núna, heilu ári seinna. Næst þegar ég hitti þennan félaga minn á ég eftir að segja við hann að ég taki grínið til baka, en í staðinn meini ég þetta nú í fúlustu alvöru!

Guðmundur Ásgeirsson, 9.6.2010 kl. 17:06

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk kærlega fyrir þitt góða innlegg Guðmundur. Mér líst vel á´stefnuskrá Samtaka fullveldissinna en ég hef ekki tíma til að stafa í fleiri samtökum og með þakklæti óska ég ykkur velfarnaðar.

Sigurður Þórðarson, 9.6.2010 kl. 21:42

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg kristaltært að ef Ísland gengur í ESB þá DETTA ALLIR milliríkjasamningar, sem Ísland hefur gert upp fyrir og samningar sem ESB á aðild að taka gildi.

Jóhann Elíasson, 10.6.2010 kl. 08:50

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir þetta Jóhann. Þó ótrúlegt sé þá virðast þingmenn ekki vita þetta alla vega ekki þingmenn Samfylkingarinnar.

Sigurður Þórðarson, 10.6.2010 kl. 12:38

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þeir vita þetta alveg, og það er einmitt það sem þeir virðast vilja, þ.e. að loka okkur fyrir innan hrörnandi borgarmúra Evrópu. Stefna Samfylkingarinnar er þannig í raun og veru einangrunarstefna!

Guðmundur Ásgeirsson, 10.6.2010 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband