Góð mæting ávísun á betri Icesave samninga
Sunnudagur, 28. júní 2009
Oft var þörf en nú er nauðsyn. Bretar sendu harðsnúna samningamenn gegn íslenskum viðvaningum, niðurstöðuna þekkja allir. Þjóðin er andsnúin þessu hörmulega samningsuppkasti en bæði ráðamenn og hún sjálf er dofin. Stjórnmálamenn sem hafa gert óteljandi mistök virðast ekki með sjálfum sér. Hættan er sú að mönnum sé svo mikið í mun "að komast í 7 ára skjól" að þeir semji komandi kynslóðir í skuldaánauð. Það má ekki gerast! Þess vegan verðum við að mæta og sýna stjórnmálamönnunum okkar, sem eru upp til hópa gott fólk, stuðning og aðhald. Þannig og einungis þannig ná þeir betri samningum.
![]() |
Borgarafundur um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 19:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Útsala á náttúruauðlindum hafin?
Laugardagur, 27. júní 2009
Ýmislegt bendir til að útsala á náttúruauðlindum Íslands sé í þann mund að hefjast. Margir útrásarvíkingar sem stóðu að stofnun Geysis Green Energy standa ekki vel í dag en mörg sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu standa engu betur. Þetta skapar góðar aðstæður fyrir erlenda útrásarvíkinga sem ásælast hlut í Hitaveitu Suðurnesja enda rauður hún yfir gríðarlega auðugu háhitasvæði. Það er kanadíska fyrirtækið Magma sem stendur í raun á bak við Geysir Green Energy. Þetta er því miður bara forsmekkurinn því sem koma skal ef alþingi samþykkir að greiða Icesave skuldirnar. Icesave skuldirnar eru miklu hærri en svo að ríkið geti greitt af þeim í erlendum gjaldeyri og því er afhending náttúruauðlindanna eini möguleikinn til að gera þær upp.
Með því er mörkuð sú stefna að Íslendingar framtíðarinnar skuli vera Indíánar í eigin landi.
![]() |
Kanadískt félag kaupir í HS Orku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Athyglisverð grein um ábyrgð í Icesave
Föstudagur, 26. júní 2009
Egill Jóhannsson ritar athyglisverða grein á bloggi sínu um pólitíska ábyrgð á Icesave sjá hér.
Margir okkar færustu lögmanna hafa fært fyrir því rök að okkur beri ekki að borga Icesave. Gegn þessu stendur klúður ríkisstjórnar Geirs Haarde, loforð ráðamanna og neyðarlögin. Við gætum haldið því fram að frá því að neyðarlögin voru sett þar til Kaupþing féll leið ein vika og þar komu til aðstæður sem menn sáu ekki fyrir. (heimskreppa & hryðjuverkalög Breta)
Ef allt þetta bregst eigum við til þrautavara traust haldreipi sem er hugtakið "grið" í þjóðarrétti með vísan til Versalasamningana. Það er nú viðurkennt að Versalasamningarnir voru ósanngjarnir og að ekki megi þvinga þjóð eða stjórnvald ríkis til nauðungarsamninga sem eyðileggja ríkið. Maður veitir því athygli að í Icesave samningnum eru ákvæði þar sem Íslendingar afsala sér sem þjóð griðum og þar að auki rétti til málshöfðunar!
Því verður ekki trúað að Evrópuþjóðirnar neiti okkur um að láta reyna á rétt okkar en ef þær gera það ættum við að beina viðskiptum annað. Alþingi getur ekki skrifað undir ríkisábyrgð fyrir mun hærri upphæð en hægt er að standa við og í leiðinni afsalað okkur málsskotsrétti og griðum.
Millileiðin væri sú að leyfa samningnum að standa og án ríkisábyrgðar, afsals málskotsréttar og griða. Þá gæti þjóðin borgað þangað til allir vasar eru tómir og blæðir undan nöglunum í einhverja áratugi. Geta "vinaþjóðir" okkar farið fram á meir?
![]() |
Ber okkur í raun að borga? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
Jón Hannes Smárason í opinskáu viðtali: Útskýrir hvert peningarnir fóru
Miðvikudagur, 24. júní 2009
![]() |
Hannes segist ekki hafa brotið lög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tími Jóhönnu er liðinn
Miðvikudagur, 24. júní 2009
Erlent ríki krefst þess að Íslendingar borgi skaðabætur sem eru mun hærri en þjóðin fær risið undir og fyrir liggja samningsdrög þar sem Ísland afsalar sér málskotsrétti og griðum
Land sem hefur forsætisráðherra sem heldur ekki fram málstað landsins, heldur tönglast í sífellu á málstað gagnaðilans getur ekki vænst stuðnings erlendis.
Öll lögfræðiálitin frá allra færustu sérfæðingum þessa lands. Dr. Elvíra, Prof Stefán Már, Dr. Herdís Þorvaldsdóttir, Próf Sigurður Líndal bara svo einhver nöfn séu nefnd af þeim mikla fjölda lögmanna auk núverandi og fyrrverandi hæstaréttardómara hníga að því að Íslendingar sem þjóð eigi ekki að sæta ábyrgð fyrir afglöp útrásarvíkingana.
Gegn þessu stendur eitt keypt minnisblað frá manni sem stendur ekki með tærnar þar sem hinir hafa hælana.
![]() |
Hagstæð ákvæði Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Jóhanna á móti tortryggni gagnvart Icesave
Þriðjudagur, 23. júní 2009
Jóhanna varar við tortryggni gagnvart Icesave en hún hefði betur sýnt meiri aðgæslu varðandi þessa afleitu samninga því nú hefur henni verið bent á að vaxtagreiðslur upp á 300 milljarða er ekki forgangskrafa í eignir Landsbankans. Jóhanna segir samt að fólk skilji bara ekki hvað endurskoðunarákvæðið sé svakalega gott og raunar alveg einstakt. Þess vegna verður að kaupa lögfræðiálit væntanlega frá einhverjum samfylkingarlögfræðingum til að útskýra sinn skilning á því. Það er þó merkilegt´miðað við allan þann fjölda lögmanna sem tjáð hafa sig um málið að enginn virðist vilja hæla þessu í sjálfboðavinnu Hún segist sjálf svekkt yfir að þurfa að borga þetta en ef lánið verður ekki gjaldfellt fellur það ekki með fullum þunga fyrr en hún verður komin vel á níræðisaldurinn.
Nú þarf velviljað fólk að forða þessari fullorðnu og góðu konu frá því að fremja þennann gjörning svo hún þurfi ekki að þjást í hárri elli yfir að hafa komið þjóð sinni á vonarvöl.
![]() |
Tortryggni í samfélaginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Finnur ekki í persónulegum ábyrgðum
Þriðjudagur, 23. júní 2009

![]() |
Langflug gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mega fjárglæframenn gefa út ríkisábyrgð?
Þriðjudagur, 23. júní 2009
![]() |
Sögðu ríkið ábyrgjast Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Grunaður um "einhverskonar" kynlíf
Þriðjudagur, 23. júní 2009

![]() |
Kynlífið endaði með ósköpum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Grunn umfjöllun RUV um ESB
Mánudagur, 22. júní 2009
Nokkur aðildarríki ESB hyggja gott til glóðarinnar að fá Ísland á hnjánum inn í bandalagið og fá auðlindir hafsins sem töpuðust þeim í þorskastríðum nú á silfurfati. Hérlendis hafa handlangarar þeirra, fjölmiðlarnir, verið sporléttir við að fegra fyrirheitna landið.
Undanfarið hefur RUV verið með svokallaða umfjöllun sem er vægast sagt ótrúlega grunn. Kallaður hefur verið til ESB-sinni og dubbaður upp sem álitsgjafi. Hann hefur ranglega haldið því fram að engin hætta sé á að við þurfum að deila fiskistofnunum hérlendis með öðrum löndum. Með þessu er álitsgjafinn að setja undir sama hatt grunnlög sambandsins og tímabundnar reglugerðir sem auðvelt er að breyta.
Núna kemur þessi sami undarlegi álitsgjafi og heldur því fram að matvælaverð muni stórlega lækka hérlendis einungis við að landið gangi í ESB.
Við erum nú þegar í tollabandalagi með ESB í gegn um EES þannig að almenna reglan er að það eru engir tollar á vörur frá ESB. Varðandi sumar landbúnaðarvörur þá eru takmarkanir í formi kvóta og heilbrigðisreglna.
Hvernig getur RUV haldið því fram að vöruverð lækki? Þvert á móti mun vöruverð hækka vegna þess að tolla- og fríverslunarsamningar okkar t.d. við Asíulönd munu falla úr gildi. ESB aðild mun líka hækka tolla á fiski frá okkur t.d. til Kína og Kóreu.
![]() |
Ekki víst að ESB setji hvalveiðar fyrir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)