Íslendingar átta sig

burdenÉg hef eytt talsverðum tíma í að kynna mér þessi mál og er sannfærður um að  ESB aðild hentar ekki ríkjum sem eiga fiskveiðiauðlind og þaðan af síður löndum sem vilja flytja út fisk til landa utan ESB.   Við þekkjum hvernig skriffinnskuapparatið  er búið að rústa fiskveiðar Skota og Íra  og með inngöngu myndu tollar sjávarafurða til Kína, Kóreu og annarra landa utan ESB skrúfast upp í 40-60%.

Þeir sem átta sig ekki á hagsmunum Íslands og vilja inn nefna Evruna  en það væri dýru verði keypt að fórna strax hagsmunum Íslands fyrir að geta kannski tekið upp Evru eftir 30 ár. 

 


mbl.is 29% vilja ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæll; Sigurður, æfinlega !

Vel mælist þér hér; sem oftar, fornvinur góður.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.11.2009 kl. 20:51

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk Óskar

Sigurður Þórðarson, 5.11.2009 kl. 21:52

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Einum var mikið niðri fyrir og upplýsti að Möltubúum hefði tekist að halda sinni fiskveiðiauðlind utan við samninginn við ESB. Sú auðlind mun draga nokkuð langt upp í þokkalegan togarafarm.

Árni Gunnarsson, 6.11.2009 kl. 21:51

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Eða eins og ein trilla fiskar á ári.

Sigurður Þórðarson, 6.11.2009 kl. 22:11

5 Smámynd: Haraldur Hansson

Möltu tókst ekki að halda fiskveiðum utan við ESB samninginn.

Það var samið um "sérlausn" sem byggð er á verndarsjónarmiðum, þ.e. aðeins er heimil notkun smábáta innan 12/25 mílna. Smábátar róa ekki á maltversk mið frá öðrum löndum, vegna fjarlægðar.

Tekið er skýrt fram að lausnin veiti ekki undanþágu frá reglu um jafnan aðgang og ekki undanþágu frá sjávarútvegsstefnu ESB. Útgerðarmenn frá öðrum ríkjum geta keypt veiðileyfi þar ef áhugi stendur til þess.

Tillögur um kvóta fyrir Möltu eru gerðar af Framkvæmdastjórn ESB, að fenginni ráðgjöf. Kvótinn er ákveðinn af Ráðherraráðinu. Allt gert í Brussel eftir reglum sambandsins.

Ef Ísland semdi á þessum nótum væri það hrein og klár bilun.

Haraldur Hansson, 7.11.2009 kl. 12:34

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessi athugasemd þín Haraldur er mikilvægara innlegg í deiluna um nýtingu fiskistofna okkar en þig kannski grunar. Fari svo hörmulega að við neyðumst til að ganga inn í þetta svarthol reglugerðanna verður tekist á um fiskistofnana. Þá gæti skipt höfuðmáli að við hefðum áður styrkt sjávarbyggðinar að mun umfram það sem nú er með skilyrðislausum forgangi að auðlindinni allt að 12 mílum.

Árni Gunnarsson, 7.11.2009 kl. 12:54

7 Smámynd: Haraldur Hansson

Árni; þetta kemur fram í skýrslu Evrópunefndar forsætisráðuneytisins. Þú getur séð hana hér. Sérlausnir í sjávarútvegi eru á blaðsíðu 103-104. Þetta er nokkuð vel útskýrt.

Haraldur Hansson, 7.11.2009 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband