Sjómenn þvingaðir til að henda makríl í stórum stíl

Fréttir berast nú af því af miðunum að sjómenn séu þvingaðir til að henda makríl í stórum stíl því Fishing%20herring makríllinn má ekki vera nema 10% aflans.  Þar sem makríllin og síldin eru saman er útilokað að sortera tegundirnar og ekki er betra að sleppa síldinni því hún er öll dauð eftir að búið er að herpa nótina. Þetta er gert til að þóknast Evrópusambandinu, sennilega af því að Ísland er skuldugt og búið að skila inn umsókn.  Væri ekki nær að veiða makrílinn og nota peningana til að borga skuldirnar?
mbl.is Síldveiðiskip umkringd makríl um alla lögsögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jú, það væri nær að reyna að gera verðmæti úr makrílnum. Alveg rétt hjá þér. Vonandi sjá fleiri þetta, sérstaklega hann Júdas J.  sjávarútvegsráðherra.

Hér þarf að laga reglurnar að raunveruleikanum því raunveruleikinn lagar sig ekki að reglunum. Vonandi bregðast menn skjótt við og gera sér mat úr aðstæðum. Ég heyrði sjómenn kvarta undan miklu magni makríls nýlega í fréttum og einnig var gert að því skóna í fréttinni að allur þessi markíll væri nýr á okkar hafsvæði og gæti haft skaðleg áhrif á vistkerfið.

Jon (IP-tala skráð) 6.8.2009 kl. 14:44

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þessi fiskur er kominn til að vera í íslenskri lögsögu og það er allt fullt af makríl t.d. í Breiðafirðinum. Makríllinn étur bæði loðnu og sandsíli og það er skelfing að ekki megi veiða hann.

Sigurður Þórðarson, 6.8.2009 kl. 15:37

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Við verðum að veiða af öllum tegundum svo það haldist jafnvægi í lífríkinu. Algjörlega sammála þér að við þurfum að veiða makríl og einnig hval og borga skuldirnar okkar með stæl með afurðum okkar.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.8.2009 kl. 21:13

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þreir hugsa ekki um að skapa tekju heldur að taka lán sem komandi kynslóðum er ætlað að borga.

Sigurður Þórðarson, 6.8.2009 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband