90 ára fullveldi Íslands

auglysing2Íslendingar búa að auðugustu fiskimiðum heims, sem Bretar og önnur ESB lönd hafa lengi ásælst. Sakir einfeldningsháttar hefur Samfylkingin stutt þessi ríki með því að hvetja til innlimunar Íslands í sambandið og þar með afsals auðlindanna.

Það yrði sannarlega kaldhæðni örlaganna ef gáleysi ráðherra Samfylkingarinnar ásamt óbylgjörnum kröfum ESB á hendur Íslendingum í kjölfar þeirra mistaka, verði til að brjóta andlegan  þrótt þjóðarinnar svo hún afhendi auðlindir sínar án endurgjalds, í veikri von um að Ísland geti  kysst á vöndinn og sagt sig til sveitar hjá ESB. 

Mætum öll í Salinn í Kópavogi 1. des


mbl.is Fagna fullveldinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég vona að við höfum vit á því að ganga aldrei inn í ESB.  Ég er alfarið á móti því.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.11.2008 kl. 01:22

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gott að heyra þína skynsömu rödd. Sjáumst á Austurvelli

Sigurður Þórðarson, 29.11.2008 kl. 01:34

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Ég stend alltaf framarlega á mótmælafundunum.  Og verð með brúna húfu með 4 dúskum

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.11.2008 kl. 01:51

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sko, fyrst förum við á hausinn, það er verið að stefna að því leynt og ljóst sýnist mér.  Þá verður praktískt hreinlega að ganga í ESB.  Því það er samband þjóða á bótum.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.11.2008 kl. 16:55

5 Smámynd: Jens Guð

  Ég hef grun um að Styrmir ætli að lesa úr bókinni sem hann er að rita um bankahrunið í samvinnu við Davíð Oddsson.

  Annars er þetta hinn áhugaverðasti fundur.  Diddú klikkar ekki í baráttunni gegn inngöngu Íslands í ESB.

Jens Guð, 30.11.2008 kl. 01:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband