Sjálfstæðismenn óttaslegnir við afsögn Steinunnar

Steinunn Valdís setur með afsögn sinni gríðarlegan þrýsting á á þá sjálfstæðismenn úr borgarstjórn, sem sóttu sér svipaða og jafnvel hærri styrki frá hagsmunaaðilum.  Meðal þeirra eru auðvitað Hanna Birna, Guðlaugur Þór og Gísli Marteinn, sem öll voru frek til fjárins. Málið er ekki síður vandræðalegt fyrir Dag B Eggertsson sem fylgdi Steinunni fast eftir.frettamannafundur
mbl.is Eftirsjá af Steinunni Valdísi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það hætta á að baugar sjáist undir augum á morgun.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 28.5.2010 kl. 01:17

2 Smámynd: TómasHa

Dagur B. þáði hærri fjárframlög per prófkjör en Steinunn. Hann hlýtur að vera að hugsa mál sitt eða hvað? Dagur eyddi einnig tæplega tvöfalt meira í sitt prófkjör en Hanna Birna.

TómasHa, 28.5.2010 kl. 01:36

3 Smámynd: Lýður Árnason

Já, Sigurður, nú fer þetta að vera spennandi, pólitíkusarnir hanga á stönginni eins og krakkarnir í skólahreystinni og falla nú einn af öðrum.

Lýður Árnason, 28.5.2010 kl. 02:33

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Já Axel það verður góð sala í eyelift.

Sigurður Þórðarson, 28.5.2010 kl. 09:02

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir innleggin Tómas og Lýður.

Þessi fallegi Dagur sem segir aldrei neitt er sérkennilegur fugl. Hann þykist vera fálki, jafnvel rjúpa sem ekkert veit. Samfylkingin hefur ekkert lært hún kaus Steinunni formann allsherjarnefndar og Dag til að sitja eins og páfagaukur á priki varaformanns. Hann var flottur á einum fæti en hangir nú á goggnum

Sigurður Þórðarson, 28.5.2010 kl. 09:18

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Siggi minn! Þetta er góð byrjun .

Auðvitað kom þetta fyrsta skref ekki frá þeim sem stærri syndir hafa á samviskunni! (það er að segja ef siðblindan gerir það að verkum að þeir hafa ekki samvisku)?

Ég hugsa hlýlega til Bjarna Harðar á Selfossi, sem sagði af sér  þingmennsku vegna miklu minni mistaka (eiginlega ósýnilegra mistaka, miðað við svo margt annað)?

Þannig þekkjum við samvisku breyskra og heiðarlegra manna og kvenna!

Það segir alfarið af sér þingmennsku, en ekki bara tímabundið eins og sumir gömlu svikararnir?

Og þannig hagar heiðarlegt fólk sér af ábyrgð í lands-pólitík í þróuðum og siðvæddum þjóðfélögum!!! Það hefur samvisku til að segja af sér og ekki bara tímabundið! Hafðu það sem best Siggi minn og megi réttlætið og heiðarleikinn ráða á Íslandi! M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.5.2010 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband