Hlýr hugur til björgunarsveitarmanna

Ég er afar þakklátur björgunarsveitarfólkinu sem er alltaf tilbúið til að láta til sín taka, í þágu annarra þegar þörf krefur. Þeim fylgja mínar bestu óskir með von um að starf þeirra verði gifturíkt.
mbl.is Fátæka Ísland fyrst til Haítí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hannes

Ég vona að þeim gangi vel en langar að vita hvað það kostar ríkið að senda þá út.

Hannes, 14.1.2010 kl. 00:31

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég var nú ekki farinn að hugleiða það, veit ekki einu sinni hvot ríkið borgar en er sannfærður um að við borgum í margt vitlausara sem ég myndi frekar sleppa.

Sigurður Þórðarson, 14.1.2010 kl. 00:38

3 Smámynd: Hannes

Þar er ég sammála þér en einhverstaðar þarf að byrja.

Það á að leggja niður öll leikhús og listastyrki og það strax enda finna fáir mikið fyrir því.

Hannes, 14.1.2010 kl. 00:41

4 identicon

25-30 milljónir er kostnaðurinn víst. Fannst mér heyra það í RUV í kvöld. Ekki mikið, finnst ykkur?

Egill Þór Sigurgeirsson (IP-tala skráð) 14.1.2010 kl. 00:53

5 identicon

Hannes það er sennilega rétt hjá þér það finna sennilega ekki nema bara þau nokkur hundruð sem að vinna beint eða óbeint við leikhúsin fyrir því að þau missi vinnuna. Jú og svo tryggingasjóður við að borga þeim atvinnuleysisbætur.

Silli (IP-tala skráð) 14.1.2010 kl. 01:13

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef keyptir voru FLUGELDAR fyrir áramótin, hvar voru þeir keyptir???????

Jóhann Elíasson, 14.1.2010 kl. 09:08

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég hef það eftir syni mínum að Hjálparsveitirnar fjármagni sig sjálfar með sjálfboðavinnnu og flugeldasölu.

Það eru margar betri sparnaðarleiðir Hannes. Það  mætti að ósekju skera niður utanríkisráðuneytið. Og bara umsóknin um ESB kostar einn til tvo milljarða sem er algörlega út í hött. Annars held ég að menn þyrftu nú aldeilis að skera ef þeir ætla að vera svo raunarlegir að samþykkja Æsseif því bara vexirnir á þessu ári eru 70 milljarðar eða stjötíu þúsund milljónir og það í gjaldeyri.

Þá þyrfti ekki niðurskurðarhníf heldur sveðju. 

Sigurður Þórðarson, 14.1.2010 kl. 09:28

8 identicon

Ja hvort er það ríkið eða björgunarsveitirnar sjálfar sem borga þessar 30 millur í kostnað?

skattborgari (IP-tala skráð) 14.1.2010 kl. 11:22

9 identicon

Finnst ykkur ekki mannlíf skipta máli? Við getum verið án leikhúss í nokkur ár, ef það þýðir að við getum hjálpað fólki í neyð.

Bogga (IP-tala skráð) 14.1.2010 kl. 19:46

10 Smámynd: Ibba Sig.

Gleymum því ekki að kostnaðurinn við ferðina er ekki mikill þar sem allir sem fara eru sjálfboðaliðar. Og búnaðurinn allur er keyptur af björgunarsveitum. Það hafa farið margar stundir í fjáröflun og þjálfun svo þessi för væri möguleg. Og allt í sjálfboðavinnu.

Ibba Sig., 14.1.2010 kl. 21:07

11 Smámynd: Hannes

Silli. Getur þú sagt mér hvað réttlæti það að ríkið niðurgreiði leikhúsin þegar stór hluti þjóðarinnar notar þau aldrei? Fólk á að fá að ráða sjálft hvaða afþreyingu að kaupir.

Það er dýrara að halda fólki í vinnu sem gerir ekkert af viti nema þykja ríkisstyrki en að hafa það á atvinnuleysisbótum.

Hannes, 15.1.2010 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband