Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Villifé eða villimennska við Tálkna?

Oli%203%20kindur%20fjallstong Dýraverndunarráð ásamt Bændasamtökunum hafa af  lýst yfir stuðningi við að villiféið við Tálkna verði hundelt og því fargað.  Af mannúðarástæðum má villifé á Tálkna ekki ganga frjálst eins og það hefur gert í hálfa öld eða lengur. Í staðinn er það hrakið fyrir björg -- af mannúðarástæðum, væntanlega, eða handsamað sturlað af hræðslu áður en það er drepið. Ef útiganga sauðfjár er óforsvaranleg, hvað þá með útigöngu hreindýra, hafarna, hrafna eða sela? Er ekki rétt að taka öll villidýr á landinu í hús ef útigangan er svona ómannúðleg? Eða skjóta þau að öðrum kosti? Eða getur verið að þetta sé misskilin mannúð, mistúlkuð og slitin úr samhengi? Væri of mikið að kalla þetta villimennsku?
mbl.is Styðja smölun villifjár í Tálkna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitinu komið fyrir Æsseifsinna?

Nú virðast stjórnarsinnar hafa fallist á að kanna málstað Íslendinga gegn því að sátt verði um þingstörfin. Ekki eru allir á eitt sáttir á þetta. Meðfylgjandi mynd er af æstum Æsseifsinna sem vill ekkert gefa eftir.

A-Lunatic-Behind-Bars


mbl.is Samkomulag um afgreiðslu Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðmenn afnema skilyrði láns við Icesave!

Í umræðum á norska Stórþinginu í dag kom fram að í máli norska utanríkisráðherrans að Norðmenn setja ekki lengur samþykki Icesave sem skilyrði fyrir afgreiðslu lánsins.  Þar með er fallin helsta röksemd stuðningsmanna Icesave fyrir því að frumvarpið skuli samþykkt

 Einn af þeim sem ýtti þessum bolta af stað er Gunnar Skúli Ármannsson með því að rita framkvæmdastjóra AGS um skuldaþol Íslands og Icesave. Sá snéri sér út úr málinu með því að koma sökinni á Norðurlöndin. Þetta setti óþægilega pressu á stjórnmálamenn. Norski utanríkisráðherrann hefur nú brugðist við.   Norski utanríkisráherrann Jonas Gahrstc3b8re-by-berity-hessen1


Vinnueftirlið skoði undarlega stóla alþingis

Það hefur verið hrífandi að lesa og hlýða á kraftmikla og innihaldsríka pistla öflugra fótgönguliða í VG á borð við Einar Má Guðmundsson, sem hafa ýtt við þjóðinni. Það er því dapurlegt að fylgjast með því hvað sumir liðsmenn Vinstri grænna á þingi ætla að vera léttir í taumi Samfylkingarinnar í ICESAVE/ASG/ESB herleiðingu þjóðarinnar.    Vinnueftirlitið þarf að skoða hvort stólar Alþingis eyðileggi bakið á einstaka þingmönnum. Hjá sumum fer hryggjarsúlan að gefa sig við tilhugsunina eina saman. Þetta er varla eðlilegt?                                c_documents_and_settings_ibm_desktop_olafur_20thor_20gunnarsson_20net Einar-Mar-Gudmundss_1269677245
mbl.is Kýs líklega með Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigupennar Davíðs Oddssonar

noEU_320 Það er ekki ofsögum sagt að Davíð Oddsson er fyrirferðamikill í hugum margra. Frændi minn Haraldur Johannessen geldur þess og hefur verið dæmdur til að vera papparitstjóri í hugum þessa fólks (sbr. pappalöggur). Þannig að ef eitthvað birtist í ritstjórnargreinum er aldrei spurning um að það var skrifað af Davíð. Ég er búinn að vera nokkurn tíma á Moggablogginu vegna þess að umhverfi þess er vel hannað og aðgengilegt.  Eftir ritstjóraskiptin hafa sumir andstæðingar hans hætt.  Steininn tekur úr þegar menn eru farnir að halda því fram að við sem alltaf höfum verið gagnrýnir á Evrópusambandsaðild Íslands án þess að þekkja nokkuð til Davíðs Oddssonar séum handbendli hans. 

Ósjálfstæðissinnaðir sjálfstæðismenn í samninganefndina

Samfylkingin hefur fundið ósjálfstæðissinnaða sjálfstæðismenn til að sitja í samninganefnd Íslands við Evrópusambandið. johanna-sig


mbl.is Ekki var við ugg í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki málið að auka frjósemina?

r%C3%B3tarbolur-(2)Ófrjósemi er vaxandi vandamál á Vesturlöndum ef til vill vegna mengunar eða lífshátta. Margir bregðast við þessu með því að ættleiða börn frá fjarlægum heimshlutum. En það eru til aðrar leiðir sem gætu gagnast sumum. Það er vitað að ginseng er mjög öflugur afeitrari, þetta hefur verið sannað en þetta þekkja líka allir sem hafa tekið inn ginseng þykkni undir áhrifum áfengis. Dr. Yamamoto sýndi fram á hvernig ginseng jók frumuskiptingu og kjarnasýruframleiðslu kynkirtla.En hver sem ásæðan er liggur þetta fyrir:

Á japönsku sjúkrahúsi stjórnaði Ishigami rannsókn á karlmönnum sem voru barnlausir vegna ónógrar sæðisframleiðslu. Þeim var gefið Rautt eðalginsengi frá Kóreu og fékk rúmur helmingur þeirra bót á meini sínu eftir inntöku ginsengsins í 4-8 vikur.

kassi-copy-%C3%AD-lit-(1)


mbl.is Ættleiðingum fjölgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Makríllinn eyðir seiðum eins og engisprettufaraldur

geldEvrópusambandið og Norðmenn vilja að við fóðrum makrílinn fyrir þá en veiðum hann ekki þó hann sé í okkar lögsögu. Helst af öllu myndu þeir vilja að við rækjum hann aftur út úr lögsögu okkar eftir að hann er orðinn sýlspikaður af seiðaáti. Makríllinn fer um í tugþúsund tonna torfum í efstu lögum sjávarins og étur seiði, loðnu og raunar alla fiska sem eru smærri.  Þessi krafa Evrópusambandsins er fráleit og ekki dytti okkur í hug að banna Grænlendingum að veiða þorsk sem syndir frá Íslandi í grænlenska lögsögu.

 Makakíllinn er í risatorfum um allan sjó, loðnan er flúin vegna hlýinda og síldin er veik. Íslendingar eru búnir að þéna 12 milljarða á þessu ári fyrir makríl en gætu hæglega margfaldað þá tölu. Auknar tekjur styrkja krónuna og þær má nota til að minnka skuldir þjóðarinnar og verja velferðarkerfið

Ríkisstjórnin verður að velja á milli að afla tekna eða taka lán.


mbl.is Makríllinn hefur reynst útgerðinni mikil búbót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti ráðherrann hættur

Allir sem þekkja Ögmund Jónasson vita að hann er grandvar hugsjónamaður sem hefur hagsmuni umbjóðenda sinna, þjóðarinnar í fyrirrúmi. Þegar það fór ekki saman að fylgja sannfæringu sinni varðandi Ísklafann og að halda ráðherraembættinu lét hann af ráðherradómi. Ögmundur er maður að meiri en skarð hans verður vandfyllt.
mbl.is Ögmundur segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna fúl út í landstjórann.

Jóhanna er greinilega orðin pirruð út í landstjóra AGS á Íslandi sem fór til útlanda og skildi landið eftir stjórnlaust á meðan.  Landstjórinn Franek Roswadowsky, sem vill halda stýrivöxtum óbreyttum og sagði Svavari Gestssyni að Íslendingar geti vel borgað.. AGS_bmp_550x400_q95
mbl.is Jóhanna: Þolinmæðin á þrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband