Færsluflokkur: Heimspeki
Svín með vængi geta líka flogið!
Mánudagur, 23. nóvember 2009
Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur kallað virta hagfræðinga til vitnis um að Íslendingar eigi ekki möguleika á að borga Icesave. Eftir pólitíska íhlutun tókst seðlabankanum samt í þriðju tilraun að búa til bjartsýnismódel þar sem þetta gekk upp. Svín með vængi geta líka flogið.
Þjóðin vill ekki fara í ESB. Þá er spurningin hvort Skattfylkingunni takist að snúa á þjóðina með því að skuldsetja hana inn í ESB með ÆSSEIF?
Gæti sparað 185 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 06:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
"Spánverjar vilja sanngjarnan hlut við Íslandsmið"
Sunnudagur, 22. nóvember 2009
Ríkisstjórnin var ekki fyrr búin að senda inn umsókn í ESB en spánski utanríkisráðherrann fagnaði og sagði að Spánverjar vildu fá "sinn sanngjarna hlut við Íslandsmið"
Þessu mótmæltu íslensk stjórnvöld ekki enda er mjög gaman hjá Össuri núna.
Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
LÍÚ vill veðsetja makrílinn
Laugardagur, 21. nóvember 2009
LÍÚ vill meiri makríl en Jón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Megi þeir stikna í Helvíti
Fimmtudagur, 19. nóvember 2009
Meðfylgjandi myndir sýna ótrúlaga grimmd. Ég sem hélt að ég væri umburðalyndur í trúmálum.
Konan hér að neðan var nýlega grýtt í Afganistan fyrir þá "sök" að mótmæla fyrirlitlegum og mannfjandsamlegum lögum um nauðganir. Af hverju eru Vesturlögnd að styðja svona ríkisstjórn?
Geir og Ingibjörg á góðri stundu, meðan þau voru með hugann við að komast í öryggisráðið. Ætli Geir hefði sett upp slæðu fyrir nokkur atkvæði?
Tvítug kona grýtt til dauða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Nýtt bréf Gunnars Tómassonar til alþingismanna
Sunnudagur, 15. nóvember 2009
Á bloggsíðu Sigurbjörns Svavarssonar er birt nýtt bréf Gunnars Tómassonar til Alþingis.
Þar eru forsendur Icesave skýrðar og viðbrögð stjórnvalda breskra og íslenskra rakin.
Augljóst er að Bretar og forysta Evrópusambandsins gerir allt aðrar kröfur til tryggingasjóðsins á Íslandi en sambærilegra sjóða í sínum löndum.Heimspeki | Breytt s.d. kl. 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Grá, hvít, mórauð og svört!
Fimmtudagur, 12. nóvember 2009
Minnihlutastjórn gæti forðað Icesave
Miðvikudagur, 11. nóvember 2009
Það er nokkuð ljóst að Íslendingum er ofviða að borga Icesave, afleiðingarnar yrðu fátækt, landflótti og líklega þjóðargjaldþrot. Samfylkingin mun samt leggja allt í sölurnar til að fá að borga Icesave svo hún komi landinu í Evrópusambandið. Ásættanleg lausn mun því fyrirsjáanlega ekki fást í þessu deilumáli með Samfylkinguna í stjórn.
Stjórnarkreppa er ekki kostur í stöðunni og myndun nýrrar meirihlutastjórnar er erfið og jafnvel vonlaus eftir það hrun sem gerst hefur. Sá kostur sem blasir við er minnihlutastjórn. Nú reynir á þjóðhollustu og ábyrgðartilfinningu Alþingis Íslendinga.
Nú ættu formenn flokkana að fara undir feld og hugleiða hvernig hægt sé að feta Ísland út úr þeim vanda sem við blasir.
Viðurkenna lífskjararýrnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 05:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Leigupennar Davíðs Oddssonar
Þriðjudagur, 10. nóvember 2009
"Gjafir eru yður gefnar" (ábending um furðulega bloggfærslu)
Sunnudagur, 8. nóvember 2009
Séra Baldur Kristjánsson fer með himinskautum og skrifar lofgjörð um Evrópusambandið á blogginu :
Takið hinni postullegu kveðju hér
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Íslendingar átta sig
Fimmtudagur, 5. nóvember 2009
Ég hef eytt talsverðum tíma í að kynna mér þessi mál og er sannfærður um að ESB aðild hentar ekki ríkjum sem eiga fiskveiðiauðlind og þaðan af síður löndum sem vilja flytja út fisk til landa utan ESB. Við þekkjum hvernig skriffinnskuapparatið er búið að rústa fiskveiðar Skota og Íra og með inngöngu myndu tollar sjávarafurða til Kína, Kóreu og annarra landa utan ESB skrúfast upp í 40-60%.
Þeir sem átta sig ekki á hagsmunum Íslands og vilja inn nefna Evruna en það væri dýru verði keypt að fórna strax hagsmunum Íslands fyrir að geta kannski tekið upp Evru eftir 30 ár.
29% vilja ganga í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |