Megi þeir stikna í Helvíti

Meðfylgjandi myndir sýna ótrúlaga grimmd. Ég sem hélt að ég væri umburðalyndur í trúmálum.

Konan hér að neðan var nýlega grýtt í Afganistan fyrir þá "sök" að mótmæla fyrirlitlegum og mannfjandsamlegum lögum um nauðganir. Af hverju ec_documents_and_settings_joi_my_documents_my_pictures_gjeir_og_sollaru Vstoningesturlögnd að styðja svona ríkisstjórn?

 

Geir og Ingibjörg á góðri stundu, meðan þau voru með hugann við að komast í öryggisráðið.  Ætli Geir hefði sett upp slæðu fyrir nokkur atkvæði?

woman_stoned_to_deathStoningAMI_468x688


mbl.is Tvítug kona grýtt til dauða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djöfulsins villimenn eru þetta, það á að berjast fyrir því að stöðva svona illsku,þetta er viðbjóðslegt athæfi og þessari þjóð til skammar.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 20:54

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Rétt hjá þér Árni. 

Þeir fara víða illa með konur og við eigum að segja okkar skoðun umbúðalaust. 

Sigurður Þórðarson, 19.11.2009 kl. 20:58

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þessi trúarbrögð andskotans hafa ekkert skánað og munu ekkert skána. Ætli feministarnir sem lesa þetta fari nú ekki að vitna til páfadóms á miðöldum? Þar skortir ekki réttlætinguna og umburðarlyndið.

Árni Gunnarsson, 19.11.2009 kl. 21:05

4 identicon

Sendum bara bandaríkjamenn.

CrazyGuy (IP-tala skráð) 19.11.2009 kl. 23:10

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Helvítis aumingjar!!!!

Sporðdrekinn, 19.11.2009 kl. 23:42

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæll Árni það var nú nógu slæmt að Ingibjörg Sólrún setti upp slæðu fyrir þessa spilltu Afgani. Ég vil ekki trúa því fyrr en ég tek á því að íslenskir femínistar réttlæti þessi ofbeldisverk gegn konum.

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 00:07

7 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er sammála Crazy Guy í því að okkar litla þjóð hefur öðrum hnöppum að hneppa en að senda jeppagengi til Afganistan.

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 00:11

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Auðvitað eru það aumingjar sem haga sér svona kæri Sporðdreki

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 00:12

9 Smámynd: Halla Rut

Að stöðva þetta er svo sannarlega ekki efst á lista femínista okkar lands. Því miður.

Hér segja femínistar að konur eigi RÉTT á að bera slæðuna. Eins og það sé á einhvern hátt þeirra VAL.

Það er eins og réttindi kvenna eigi stundum bara að vera fyrir SUMAR konur.

Halla Rut , 20.11.2009 kl. 00:47

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Sæl Halla, það heyrist alla vega ekki hátt í þeim varðandi þetta. Það virðist líka vera að áhuginn beinist eingöngu að menntuðum konum. Ég hef hugleitt hvort maður ætti ekki frekar að tala um mannréttindi en kvennréttindi? Við  eigum ekki að hika við að gagnrýna þetta.

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 01:00

11 Smámynd: Odie

Því miður eiga kristnir of erfitt með að deila á trúarbrögð annarra.  Sérstaklega þegar sumt sem stendur í þeirra eigin riti er síst betra.  En sem betur fer fara þeir nú ekki eftir því sem þar stendur.

10Þá er einhver drýgir hór með konu annars manns, drýgir hór með konu náunga síns, þá skal líflátinn verða bæði hórkarlinn og hórkonan. (Þriðja bók Móse 20 : 10)

eða 

20En ef það reynist satt, og sönnur verða eigi á það færðar að stúlkan hafi hrein mey verið,
  21þá skal fara með stúlkuna að húsdyrum föður hennar, og borgarmenn skulu lemja hana grjóti til bana, því að hún hefir framið óhæfuverk í Ísrael, með því að hórast í föðurgarði. Þannig skalt þú útrýma hinu illa burt frá þér. (Fimmta bók Móse 22:20-21)
Og Afríku er verið að brenna nornir.  Það er synd hvað mannskepnan getur verið grimm.

 

Odie, 20.11.2009 kl. 10:38

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Odie, þetta er fróðleg lesning en ég tek hana ekki til mín enda ekki kristinn og þaðan af síður gyðingur. Mér þykir það til skammar að fulltrúar okkar þori ekki að segja orð um þessi voðaverk.  Það er líklega rétt sem Halla segir að það er mikill tvískinnungur hjá þessum femínistum.

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 11:15

13 Smámynd: Odie

Fæstir vita hvað stendur í Biblíunni og trúa prestunum þegar þeir segja að þar sem aðeins kærleikur.  Enda treysta þeir því að þú takir ekki bókina í hönd og lesir sem þar stendur.  Það er nefnilega mikill misskilningur að orð guðs sé kærleikur.  En það sem þú bendir á þarna fær að þrífast í nafni trúar.

Hér er ein tilvitnun í viðbót og læt það duga.  En af einhverjum ástæðum finnst guði að það eigi að grýta fólk fyrir að mér finnst litlar sakir.  En hér er dæmi um fórnarlamb nauðgara sem á að drepa með þessari aðferð fyrst að hún kallaði ekki nægjanlega hátt á hjálp.  

23Nú er mey manni föstnuð, og karlmaður hittir hana innan borgar og leggst með henni,
  24þá skuluð þér leiða þau bæði að borgarhliðinu og lemja þau grjóti til bana, stúlkuna vegna þess að hún kallaði ekki, þó að hún væri inni í borginni, og manninn vegna þess að hann spjallaði konu náunga síns. Þannig skalt þú útrýma hinu illa burt frá þér. (Fimmta bók Móse 22:23-24)
  

Odie, 20.11.2009 kl. 11:35

14 Smámynd: Arnar

CrazyGuy: Sendum bara bandaríkjamenn.

Sigurður: Ég er sammála Crazy Guy í því að okkar litla þjóð hefur öðrum hnöppum að hneppa en að senda jeppagengi til Afganistan.

Ehm, veit ekki betur en þetta hafi verið framið í skjóli 'lýðræðis' bandaríkjamanna í Afganistan.

Arnar, 20.11.2009 kl. 11:49

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er ekki Biblíufróður.

Hitt er annað að hvorki Móseók né neitt annað trúarrit réttlætir það að fólk sé grýtt. 

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 15:36

16 Smámynd: Odie

Að sjálfsögðu er ekkert sem réttlætir þetta.  Maður bara veit ekki hvernig trúmenn munu taka á þessu.  Þeir geta alltaf lesið það sem þeir vilja út úr ritningunni.  Ég er mest feginn að siðferði okkar er ekki komin frá guði þó að sumir vilji nú halda öðru fram.

Odie, 20.11.2009 kl. 15:43

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hvaðan er siðferði okkar þá komið ef það er ekki frá guði?

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 16:54

18 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

"Do not believe in anything simply because you have heard it.  Do not believe in anything simply because it is spoken and rumored by many.  Do not believe in anything simply because it is found written in your religious books.  Do not believe in anything merely on the authority of your teachers and elders.  Do not believe in traditions because they have been handed down for many generations.  But after observation and analysis, when you find that anything agrees with reason and is conducive to the good and benefit of one and all, then accept it and live up to it.  ~Buddha"

Ég get ekki orðað þetta betur! ..

Jóhanna Magnúsdóttir, 20.11.2009 kl. 21:06

19 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Það er ekki lengur hægt að tala um feminsma eða feminsta í eintölu, því að eins og kristnir eru orðinn breiður hópur eru feministar það líka. Líklegast bara best að flokka sig ekki undir neinn hóp, en það er hægt að trúa á Jesú á sinn hátt og það er hægt að berjast fyrir kven-og mannréttindum á sinn hátt. Um leið og við förum að binda okkur á einhvern klafa, virðist allt fara í háaloft.

p.s. þó að ekki eigi að trúa einhverju "bara afþví" að stendur í trúarritum, er ekki þar með sagt að þar megi ekki finna eitthvað gott.

Jóhanna Magnúsdóttir, 20.11.2009 kl. 21:12

20 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir innleggin Jóhanna, þú  talar gjarnan rödd skynseminnar.

Ég tek líka undir með þér að það er vel hægt að trúa á Jesú á sinn hátt eins og þú orðar það.  Ég skil þig vel því ég er heiðinn á minn hátt.

Sigurður Þórðarson, 20.11.2009 kl. 23:10

21 Smámynd: Odie

Sigurður:Hvaðan er siðferði okkar þá komið ef það er ekki frá guði?
Frá okkur sjálfum að sjálfsögðu.  Heldur þú t.d. að á Alþingi sitji eintómir guðir.  Mannskepnan er alveg full fær að setja sér lög og reglur og meta hvað er gott siðferði og hvað ekki.  Siðferðið er sífellt að breytast, sem sést vél á því hvað við erum ekki lengur sammála þeim sem notast við siðferðisreglur fyrri alda. 

Odie, 21.11.2009 kl. 03:03

22 identicon

  Úr íslömskum  fræðum.Bindi 2, Bók 23, Númer 413: Frásögn Abdullah bin Umar: Hópur fólks færði spámanninum, mann og konu sem höfðu framið "hórdóm". Hann skipaði svo fyrir að bæði skildu grýtt til bana, nálægt fórnarstaðnum, þar sem greftrunarbænir fóru fram við hliðina á Moskunni.(Athugið að hórdómur  í Múhameðstrú getur verið: framhjáhald, nauðganir  og  kynmök samkynhneigðra.)Úr  lagasafninu   ,,Reliance of the Traveller.“ Grýting kvenna samkvæmt Sharia lögunum íslömsku.   Nr. O12.0. REFSINGIN FYRIR HJÚSKAPARBROT EÐA, HÓRDÓM EÐA SAMKYNHNEIGÐ: O12.1  Hin löglega refsing er skylda  hverjum gagnvart hverjum þeim sem fremur hórdóm eða samkynhneigð. O12.6  Ef refsingin er grýting, þá er afbrotaaðilinn grýttur jafnvel í  ofsa hita eða  kulda, og jafnvel þó að hann þjáist af veikindum, sem hann býst við að fá bata af.  Ófrísk kona er ekki grýtt fyrr en hún hefur fætt og barnið getur komist á brjóst hjá annarri konu eða bjargast á annan hátt. Í sumum löndum eins og ÍRAN   tíðkast einnig að  hengja afbrotafólkið, svo að það er ekki alls staðar farið nákvæmlega eftir því sem stendur í Sharia lögunum, en útkoman er banvæn hvort eð er. sem staðin hafði verið að hórdómi, og leiða hana fram og segja við hann: Meistari, kona þessi er beinlínis staðin að því að drýgja hór. Móse hefur nú boðið oss í lögmálinu, að slíkar konur skuli grýta; hvað segir þú nú um hana?   En þetta sögðu þeir til að freista hans, til þess að þeir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. +En Jesús laut þá niður og ritaði með fingrinum á jörðina. En þar eð þeir héldu áfram að spyrja hann, rétti hann sig upp og sagði við þá: ,,Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana."   Og hann laut aftur niður og ritaði á jörðina með fingrinum. En er þeir heyrðu þetta, gengu þeir burt hver eftir annan, öldungarnir fyrstir, og Jesús var einn eftir og konan frammi fyrir honum. Og Jesús rétti sig upp og sagði við hana: Kona, hvar eru þeir?  Sakfeldi enginn þig?  En hún svaraði: Enginn, herra. En Jesús sagði: Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú; syndga ekki upp frá þessu.

Helga Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2009 kl. 22:42

23 identicon

Afsakið  að  síðasta  færslan  fór  í  klessu  hjá  mér  og  greinarskil  hurfu.  Vona  að  það  komi  ekki  að  sök.

Helga Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 09:16

24 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Vandinn í Afganistan, er milli slæms og verra.

Ég held, að Bandaríkjamenn og NATO, þurfi að fara. Það sé ekki séns, að umbreyta þessu þjóðfélagi.

Talibanar, munu þá að sjálfsögðu ná öllum völdum, sem mun að sjálfsögðu gera slíka atburði eins og þann sem þarna var kvikmyndaður, enn algengari. Sennilega að daglegu brauði. En, þ.e. ekki okkar vandi, í strangasta skilningi. Ef, þetta er þ.s. Afganar vilja, þá er það ekki okkar mál, að reyna að berja inn í þá annann skilning.

Helsti vandinn, verður eftir það, að verja Pakistan. En, undir engum kringumstæðum, meiga Talibanar, komast yfir kjarnorkuvopn.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 22.11.2009 kl. 13:58

25 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir góðan pistil Helga greinaskilaleysið bjargast.

Ég er líka samm´la þér Einar. Við leysum engan vanda með krossferðum.

Sigurður Þórðarson, 22.11.2009 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband