Færsluflokkur: Enski boltinn

Má ríkisstjórnin semja Íslendinga í skuldir og fátækt?

1-SUN%20CITY-MCDONALD-heavy%20burden Sjálfstæðisflokkurinn er ekki aðeins að rústa þjóðfélaginu heldur virðast aðilar þar á bæ vera tilbúnir, til að kaupa sér stundarfrið, í samvinnu við Samfylkinguna,  með því að semja næstu kynslóðir í fátækt og skuldaklafa. Ég held að það væri heiðarlegast að viðurkenna að allt er brunnið sem brunnið getur og því er lýðræðislegast að halda kosningar þannig að almenningur fái að hafa eitthvað um það að segja hvort hann vill veðsetja fiskinn og orkulindirnar.
mbl.is Engin niðurstaða enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vorkenni líka Íslendingum

iceland-Geir_Haarde 610x Ég vorkenni líka Íslendingum fyrir að eiga "vini" eins og Breta. Við getum vel sleppt yfirflugi þeirra hér í desember enda þurfum við enga óvini, eigandi að slíka forláta vini. Sendiherra Breta nýtti tækifærið til að vera með aulahúmor um að hann vorkenni Íslendingum að fá ekki að vera með í öryggisráðinu. Geir Haarde veit ekki að þjóðin vildi ekki fara í öryggisráðið og hann fattar ekki háðið hjá breska sendiherranum og er því þakklátur honum
mbl.is Bretar vorkenna Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég set allt mitt traust á Austurríki og Tyrkland

Þegar ég leggst  með eyrað á koddann í kvöld ætla ég að biðja til almættisins um að Austurríki og Tyrkland vinni sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á föstudaginn. Það sama gerir mikil meirihluti þjóðarinnar, sem hugsar til þess með hryllingi ef ríkisstjórninni tekstGOD að komma okkur í ráðið.
mbl.is Kosningabarátta Íslands í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnum Bretum og endurheimtum mannorðið

Þeir Íslendingar sem eiga einhver samskipti við útlönd, hvort sem það er vegna ferðalaga búsetu eða viðskipti hafa með einum eða öðrum hætti mætt andstreymi. Rétt eins og seðlabankastjóri upplifir almenningur í útlöndum útrásarvíkingana og  bankamennina sem "óreiðumenn". Það er sama hvort maður opnar fyrir Sky, BBC eða gluggar í eitthvað blað alltBritishEmpire er á eina bókina lært: Íslendingar eru dólgar sem bresk stjórnvöld reyna að hemja. Á þessu forsendum beittu bresk stjórnvöld hryðjuveralögum og knésettu stærsta fyrirtæki Íslendinga.  Íslendingar eiga bara einn kost í stöðunni þeir verða að stefna Bretum. Breski fjármálaráðherrann afsakar hegðun sína með því að  vitna í tveggja manna tal sitt við íslenskan starfsbróður sinn. Árni segir Darling afflytja samtalið og getur vitnað í upptöku því  til stuðnings. Ég trúi okkar manni 

Stefnum Bretum, með því fá Kaupþingsmenn bætur og við Íslendingar endurheimtum mannorðið. 


mbl.is Vilja ekki íslensku sinfóníuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fóru olíupeningarnir!

Jæja, þar fóru olíupeningarnir í bili. Sjeik Muhamed Bin er hættur við í bili að fjárfesta í Alfesca, hann er hálf sjokkeraður eftir að hafa tapað 25,6 milljörðum í Kaupþingi síðan í síðasta mánuði. En hann tekur það þó fram að hann er ekki hættur við að fjárfesta á Íslandi en ætlar að bíða þangað til óróinn fer yfir. Kunnugir halda því fram að það myndi hjálpa ef við leyfum muslimum að reisaBluMoskAtNiteRamazan mosku í Reykjavík.


mbl.is Sjeik hættir við Alfesca
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framboð til öryggisráðsins vonandi dregið til baka

Mörgum hefur runnið til rifja sá uppskafningsháttur sem felst í framboði Íslands til öryggisráðsins, sem hefur það hlutverk að ákveðja við hvaða lönd eigi að fara í stríð við.  Þetta er afkáralegt enda höfum við ekki aðra leyniþjónustu en greiningardeild BB og annan her en Hjálpræðisherinn. Vonir standa nú til að framboð Íslands til öryggisráðsins verði nú loks dregið til baka. Það hefur líklega kostað einhverja milljarða með öllu en betri er hálfur skaði en allur.         Ingibjörg Sólrún í útrás.                                                  

c_documents_and_settings_andres_jonsson_my_documents_kratabloggi_kratabloggsmyndir_isg_og_evropa


mbl.is Áhrif á framboð til öryggisráðsins óljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er rétt að pynta eða refsa einkabílstjóra?

Einkabílstjóri Osama Bin Laden, Salim Hamdan, sem sætt hefur einangrun og pyntingum í 6 ár mætir nú í fyrsta skipti fyrir herdómstól  í svokölluðum "réttlætisbragga" í Guantanamo búðunum. Salim sætir nú ákæru fyrir að hafa verið einkabílstjóri Osama og gæti fengið líftíðardóm fyrir að aðstoða hryðjuverkamenn. Hinn meinti einkabílstjóri er ómenntaður tveggja barna faðir og telur verjandi hans að hann skilji hvorki upp né niður í þessu máli.  Einhverjar líkur eru á sýknu vegna þess að dómarinn hefur úrskurðað að játningar sem fengnar voru með grófum pyntingum skuli ekki teknar gildar.  En það mun þó ekki leysa mál Salim því þó hann verði sýknaður mun hann ekki losna því ekkert land tekur við föngum frá Guntanamó.  Hefur þessi maður ekki kvalist nóg?

guantanamo460Guantanamo2guantanamointerrogation_pic


mbl.is Áfram í Guantánamo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðar Helguson er í uppáhaldi hjá mér

Ég er köttari og ég hef alltaf haldið mikið upp á þennan frábæra dalvíska  knattspyrnumann, síðan hann lék með Þrótti. Heiðar hefur oft átt mjög góða leiki með landsliðinu og það er gaman að fylgjast með honum úti séheidar_helguson staklega þegar honum gengur vel.
mbl.is Heiðar skoraði fyrir Bolton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð / Golíat -Vonandi gengur litla íslendingaliðinu vel

Ég verð í fermingu bróðurdóttur minnar á morgun þegar litla íslendingaliðið Reading sækir stórliðið Liverpool heim á Anfield kl:15:00. Það verður í nógu að snúaast hjá Ívari Ingimundarsyni fyrirliða, sem jafnframt er lykilmaður í vörninni. Ég ætla engu að spá um úrslitin. En bið Liverpool aðdáendur forláts að ég óska litla íslendingaliðu heilla á morgun.                        getfilegetfile

 

 

Brynjar Björn til vinstri er á sjúkralista.

 

Ívar Ingimarsson th verður fyrirliði á morgun.                      Vonandi tekst vörninni að halda hreinu gegn firnasteku Liverpoolliðinu


mbl.is Ívar vonast eftir góðum úrslitum á Anfield
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar "ofursendiherra"

Fáir ef nokkur Íslendingur hefur jafn víðtæk  alþjóðleg sambönd og forseti lýðveldisins, Ólafur Ragnar  Grímsson.  Ólafur kann að hafa verið umdeildur vegna skoðana en sannarlega ekki vegna  hæfni.

01indprezicelandprez

 

 

Forsetar Íslands og Indlands á Þingvöllum

 

 

 

 Dr. Ólafur hafði áður gegnt stöðu prófessors í stjórnmálafræði, verið formaður stjórnmálaflokks, þingmaður og ráðherra. Vegna starfa sinna í alþjóðasamtökum þingmanna hefur hann gríðarleg tengsl um allan heim. Þetta hefur greinilega komið fram í samskiptum við upprennandi stórveldi Asíu.

En Ólafur hefur líka ágæt tengsl í Mexikó en þar býr gamall vinur hans Róbert Guðfinnsson fyrrum stjórnarformaður Þormóðs ramma.

img_1057

 

 

 

Róbert Guðfinnsson á skíðum 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Samvinna Mexíkó og Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband