Færsluflokkur: Enski boltinn
Siðtæknileg mistök og önnur alvarlegri mistök
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Með afsögn Bjarna Harðarsonar, hverfur af þingi þjóðlegur Sunnlendingur, það er skarð fyrir skildi á hinu háa Alþingi því Bjarni er einn núlifandi þingmanna sérfróður um drauga. Bjarni féll í þá freistni að ætla að dreifa nafnlaust gagnrýni á pólitískan andstæðing innan Framsóknarflokksins. En þegar hann sendi handlangara sínum bréfið áttaði hann sig ekki á að fjölmiðlarnir voru allir merktir bcc (blind copy) sem þýðir að þeir fengu afrit. Bjarna varð sem sagt að falli að hann er ekki jafn sérfróður um tölvur og hann er um drauga. Nema einhver draugur hafi verið að gera honum lífið leitt.
Bjarni hefur þó framsóknarmaður sé ekki tekið þátt í pólitískri spillingu svo vitað sé. Valgerður hefur aftur á móti unnið þjóð sinni mikið ógagn t.d. þegar hún var bankamálaráðherra og tók virkan þátt í helmingaskipavæðingu bankana. Hún féll frá kvöðum að tilboðsgjafar yrðu að eiga bankana í minnst 2 ár. Þannig að fyrirtæki í eigu aldraðrar móður samráðherra hennar gat skipt á bréfum í Búnaðarbankanum innan hálfs mánaðar frá því kaupin voru gerð og fengið bréf í VÍS, sem voru verðmeiri. Öll þessi "siðtæknilegu" mistök hafa leitt hörmungar yfir þjóðina.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Guðni: Bjarni axlar ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Geir þiggur allan pening
Miðvikudagur, 29. október 2008
Ríkisstjórnin gerir nú víðreist um heiminn til að biðja um lán. Geir segir að þessir peningar 6 milljarðar frá Færeyjum dugi skammt en sé ótrúlega höfðinglegt miðað við höfðatölu þeirra.
Mikill drengskapur Færeyinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ríkisstjórn á fátækaheimili í Óðinsvéum
Þriðjudagur, 28. október 2008
Neyðaraðstoð fyrir Íslendinga í Óðinsvéum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
IMF í boði ISG brettir upp ermarnar
Þriðjudagur, 28. október 2008
Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ótrúleg lygasaga, þóttist vera þýfi
Mánudagur, 27. október 2008
Svíi laug að lögreglunni að sér hefði verið rænt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vill ISG ekki stefna flokksbróður sínum, hr. Gordon Brown?
Föstudagur, 24. október 2008
"Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði að það væri ekki endilega skilvirkasta leiðin til að endurreisa orðstír Íslendinga að fara í mál vegna hryðjuverkalaganna."
Óttalegt rugl er þetta! Málið snýst um að sækja skaðabætur fyrir tjón sem breska stjórnin hefur valdið Íslendingum og talið er geta numið hundruðum milljarða. Íslendingar eru skuldum vafðir og landið er það langskuldugasta í Evrópu. Er Ingibjörg enn með hugann við öryggisráðið?
Furðulegt að samtalið skyldi leka í fjölmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Í dag er ég fullur í dag vil ég gefa
Föstudagur, 24. október 2008
Mjög erfiðir tímar framundan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er Einar Guðfinnsson ábyrgur sjávarútvegsráðherra?
Fimmtudagur, 23. október 2008
Það var mesta óhappaverk síðustu ríkisstjórnar að setja smábáta í kvóta sem leiddi til mikillar veðsetningar og vandræða í greininni auk brottkasts sem áður var óþekkt á smábátum. Ég get því ekki verið sammála Einari K. Guðfinnssyni þegar hann lýsir sjálfum sér sem "ábyrgum sjávarútvegsráðherra". Þá er dapurlegt að hlusta á ráðherrann leggja á ráðin um að auka kvóta. Þegar frændur okkar Færeyingar voru í mikilli efnahagskreppu fóru þeir þá leið að afnema kvótakerfi sem var sambærilegt við það íslenska, þetta leiddi til afnáms brottkasts og velsældar.
Gott fiskveiðistjórnarkerfi gengur út á að taka úr hafinu með hagkvæmum hætti það sem við teljum óhætt. En til þess þurfum við að vita hvað sé í hafinu og það verður ekki gert nema a.m.k. hluti flotans sé í sóknarstýringu. Þetta eru almenn sannindi sem allir ættu að geta skilið. EKG, kýs að láta sem hann skilji þetta ekki og það er ekki ábyrgt þegar mikið liggur við fyrir íslenska þjóð.
Lausn efnahagsvandans hjá Færeyingum fólst í afnámi kvótans.
Aukinn þorskkvóti ekki útilokaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjálfstæðisflokkurinn setur sérhagsmuni ofar þjóðarhagsmunum
Fimmtudagur, 23. október 2008
Geir Haarde blekkti mig í gærkvöldi þegar hann kom fram í Kastljósinu og sagði að hann ætlaði ekki að láta kúga sig og steypa landinu í skuldafen. Þetta fannst mér ábyrg afstaða, svo ábyrg að mér fannst réttlætanlegt í nafni þjóðarsamstöðu að brennuvargarnir fengju slökkviliðsbúning og þjóðin stæði saman sem einn maður. Það var mér því áfall að hlusta á Einar K. Guðfinnsson í hádeginu, sem lýsti því yfir að það kæmi ekki til greina að gera neinar breytingar á kvótakerfinu. Þetta segir Einar þó hann viti að sjávarútvegurinn skuldar nú 400% af ársveltu sinni, veiði dragist stöðugt saman og fjölmörg þorp að leggjast í eyði. Þjóðin hefur ekki efni á við þessar aðstæður að viðhalda kerfi sem felur í sér að mörgum milljörðum sé hent í hafið á hverju ári til þess eins að Sjálfstæðisflokkurinn geti þjónað sérhagsmunum.
Þess vegna verður að boða til kosninga sem fyrst.
Valur á veiðum
Sjávarútvegurinn skuldum vafinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjálfstæðisflokkurinn rústar efnahag þjóðarinnar.
Mánudagur, 20. október 2008
Dýralæknirinn og aðrir ráðherrar sjálfstæðisflokksins eru svo sjálfumglaðir að þeir hafa annað tveggja blásið á alla gagnrýni frá virtum hagfræðingum eða í besta falli stungið henni undir stól. Á skandínavískum netmiðlum hafa verið skoðanakannanir um hvort hjálpa eigi Íslendingum með því að lána þeim. Mjög skiptar skoðanir eru um það en jafnvel þeir sem vilja lána okkur segja að Íslendingar ættu að fá hæstu vexti. En hver er ástæða þessa? Eru "vinir" okkar svona vondir eins og Geir Haarde heldur fram? Dr. Robert Z. Aliber segir þvert á móti að íslensku ríkisstjórninni og seðlabankanum sé ekki treyst. Þar hafi menn ámóta þekkingu á rekstri þjóðarbúsins og stjarnvísindum. Þegar mest á reið að hækka bindiskilduna var hún afnumin! "Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld," segir Aliber".
Er sjálfstæðismönnum í ríkisstjórn virkilega fyrirmunað að skammast sín?
Um Samfylkinguna þarf ekki að ræða hún hefur fjarvistarleyfi enda var leiðtogi hennar að mestu í útlöndum
Glaðbeitt á leið úr einkaþotu
Óhappastjórnin
Stjórnvöld skilningslaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |