Færsluflokkur: Ferðalög

Ég fauk í vinnuna. Undur og stórmerki!

Ég gáði til veðurs í morgun og ætlaði að liggja í leti svona einn föstudag í óveðrinu en viti menn:   Það kom allsnörp vindkviða sem feykti mér af stað og  ég fauk alla leið í vinnuna og þar biðu mín verkefni.

Undur og stórmerki!

storm


mbl.is Snælduvitlaust á Kjalarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur með tvo til reiðar

0Steingrímur Sigfússon fer utan á morgun á fund AGS í Istanbul með tvo Evrópusinna til reiðar, þá Má Guðmundsson seðlabankastjóra og Jón Sigurðsson samfylkingarmann, sem stýrt hefur lánaviðræðum við Íslands við norrænu ríkin.  Þrátt fyrir að samfylkingarráðherrar þræti eins og sprúttsalar þá vita allir að Bretar og Hollendingar munu þvælast fyrir inngöngu Íslands í ESB ef þjóðin verður ekki skuldsett.

Því spyr maður sig hvort þar sé að finna skýringu á að þessir menn taka málstað Breta og Hollendinga?


mbl.is Steingrímur á fund AGS í Istanbúl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsbankinn er hættur starfsemi!

Nú hafa bresk stjórnvöld góðfúslega tekið Landsbankann af skrá yfir hættuleg hryðjuverkasamtök.  "Tak skal De ha"  Vita þau ekki að Landsbankinn er löngu hættur starfsemi og fyrrum eigendur hafa misst forræði yfir búinu? Til hvers að vera með þrotabú á lista yfir hryðjuverkasamtök?  Vilja þeir ekki frekar setja fyrrum stjornendur bankans á slíkan lista?  

En hverslags lista á að setja stjórnvöld sem ætla að skudsetja komandi kynslóðir þannig að þær fái ekki við það ráðið?crop_500x

 


mbl.is Landsbanki ekki lengur á lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes dreginn á flot

Enn er Hannes Hólmsteinn Gissurarson dreginn á flot!

hannesholmsteinn2 Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að prófessorinn sé nú staddur í Chile til að prédika ágæti efnahagsundursins, kvótakerfinu,  yfir þarlendum.  Þá er því slegið upp að HHG mæli sérstaklega með því að smábátar séu settir í kvóta. En það var einmitt framkvæmt fyrir  um 5 árum á Íslandi  og var eitt mesta óhappaverk sem íslensk ríkisstjórn hefur gert.

Fyrir fjölda ára skrifaði Hannes fjölda hástemmdra lofgreina um  Pinoche og hina illræmdu herforingjastjórn sem ríkti í Chile. Er HHG nokkuð illa við Chilebúa? 

HHG sagði eitt sinn að hægrimenn vildu þéna á daginn en drekka gott vín á kvöldin.   Hver kostar Hannes í svona för?  


mbl.is Kreppan grefur undan mannréttindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoskir sjómenn hlakka til að fá fullan aðgang að Íslandsmiðum

thumbnailHaft er eftir Bertie Armstrong, framkvæmdastjóra skoska sjómannasambandsins, að skoskir fiskimenn hafi verið reknir af Íslandsmiðum eftir tvö þorskastríð á áttunda áratug síðustu aldar. „Við lítum til þess, að Íslendingar eru nú að fara bónarveg til Evrópusambandsins og vonum að það verði til að við fáum aðgang að þeirra sjávarútvegi."

Alistair Carmichael, sem er þingmaður á enska þinginu fyrir Orkneyjar og Hjaltland, segir að aðild Íslands að ESB muni hrista upp í stjórnkerfi sambandsins  vegna þess að íslenska ríkisstjórnin muni ekki þola núverandi kerfi miðstýringar og gagnsleysis en endurskoða á sjávarútvegsstefnu ESB á næstu árum. Atkvæðavægi Íslands verður væntanlega u.þ.b. hálft prósent.


mbl.is Skoskir sjómenn vilja að Ísland gangi í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Báðir hóparnir mótmæla eignaspjöllum

 Á Íslandi hefur  um nokkra hríð ríkt spilling og siðleysi með þeim afleiðingum að Íslendingar eru langskuldugasta þjóð veraldar. Flestir hagfræðingar eru sammála um að allt hafi þetta byrjað með kvótakerfinu.  Allir mótmælendur eiga það sameiginlegt að mótmæla eignaspjöllum. Stærstu mótmælin eru auðvitað mótmæli almennings gagnvart þeim stjórnvöldum sem hafa gert Ísland gjaldþrota hvort sem það hefur verið gert með vilja eða fyrir gáleysi. Þau mótmæli hafa góðu heilli farið ótrúlega friðsamlega fram og er það vel. Á því eru nokkrar undantekningar og full ástaða er til að mótmæla þeim líka og koma í veg fyrir  að slík mistök endurtaki sig. Það er örugglega best gert með öflugri og virkri samvinnu lögreglu og forystu mótmælenda. Þess sjást nú merki að mótmælin séu byrjuð að skila sér en vel að merkja ekki fyrr en meiri harka hljóp í þau, hvort sem menn flokka það sem tilviljun eða ekki.  Þannig virðist hik komið á stjórnvöld að afskrifa skuldir velþóknanlegra. Ennfremur hafa flestir fallist á kosningar og einn ráðherra hefur sagt af sér. Fregnir eru af að hundruð og jafnvel þúsundir milljarða af illa fengnu fé hafi með vitund stjórnvalda verið flutt í öruggt skattaskjól. Þetta er útilokað að rannsaka nema ný stjórnvöld komi að málum.

Burt með spillingaliðið hvar í flokki sem það stendur.

Áfram Ísland

 

hannesholmsteinn2

 

 

 

 Ráðsmaður í seðlabankanum fylgist áhugasamur með mótmælum.


mbl.is Mótmælt á tveimur stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hestakerrur komast aftur í tísku

Það er handagangur í öskjunni hjá útlendingum sem koma hingað og kaupa nýlega og vel með farna bíla á brunaútsölu. Það er mál manna að fólk hafi varla efni á að borga af myntkörfulánunum hvað þá að kaupa bensína á hákana. Ef fram heldur sem horfir munu fjölskyldufeður fara með fjölskylduna í sunnudags hestakerruferð að Geithálsi í staðin fyrir sunnudagsbíltúr í Hveragerði.200731064217_horse-drawn-cart
mbl.is Ætla að kaupa hundruð bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinn reyndi að hleypa fundinum upp

astthor_tru_ur.jpgÁ tímabili lá viðað syði uppúr á sáttafundinum í Iðnó, þegar friðarsinninn Ástþór Magnússon kom í jólasveinabúning og gerði sitt besta til að hleypa fundinum upp.  Jónasveininum var að lokum vísað á dyr og róaðist fundurinn þá og endaði í friði og spekt. Segja má að mikill órói sé nú í kring um jólasveina því ISG var um það bil búin að koma sér út úr húsi í Samfylkingunni með því að lýsa yfir eindregnum stuðningi við jakkafataklæddan jólasvein í ríkisstjórninni. big-ArniMMathiesenI4Y1715___jpg_550x400_q95 Asthor_Magnusson_a_birosagon
mbl.is Fundi lokið í sátt og samlyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðlaust að kveikja í pung eiginmannsins!

Ég er yfir mig hneykslaður á  þessar konu að kveikja í kynfærum eiginmannsins. Svona verknað framkvæmir engin lifandi manneskja nema sem haldin er siðblindu og  takmarkalausum kvalalosta.  Giftar konur vita vel að þetta er viðkvæmasti hluti mannslíkamans  (á körlum). Kannski var það eins gott að maðurinn dó fyrst þetta þurfti að koma fyrir.

Myndin sýnir sérþjálfaðan bandarískan  pyntingameistara að störfum í Íraknew%20torture%202Nazi-SADISTIC_fun


mbl.is Kveikti í eiginmanninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafísinn er óvenju fjarri Íslandi

hafísHafísröndin er hvergi nær landi en hundrað kílómetrar. Þetta er mjög óvenjulegt miðað við árstíma og ekkert útlit er fyrir að breyting verði á þessu. Það má því búast við algerum verkefnaskorti hjá Þórunni Sveinbjarnardóttur,  enda ekki útlit fyrir að nokkur ísbjörn nái landi þetta árið.img_59962

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband