Færsluflokkur: Ljóð

Íslensku stelpurnar flottastar

Maður getur ekki annað en verið stoltur af "stelpunum okkar". Þær voru mikklu betri en írsku stelpurnar, bæði tæknilega og í styrk. Baráttuandinn hjá stelpunum er greinilega meiri á heimavelli þar sem þær finna stuðning.Alidkv2004-0363
mbl.is Ísland á EM 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LÍÚ óskar eftir meiri kvóta til að veðsetja

Einn stærsti vandi Íslendinga felst í því að meðlimir LÍÚ eru búnir að veðsetja sameign þjóðarinnar í útlöndum þannig að greinin skuldar nú 400% af ársveltu.  Það er sjálfsagt allt í lagi að auka við veiðiheimildir en það er ástæðulaust að gera það þannig að það auki skuldir landsins í útlöndum.c_documents_and_settings_kristinn_my_documents_my_pictures_jesus-apostles-01_165538
mbl.is LÍÚ óskar eftir meiri kvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færeyingar brjóta sparibaukinn fyrir Íslendinga

1386089751_32e67df259Færeyingar brjóta sparibaukinn fyrir Íslendinga. Risstjórnin er á ferð og flugi um allan heim að snapa lán, Geir er mjög glaður og tekur fegins hendi við öllum peningum sem honum eru réttir. Ríkisstjórnin er ekkert að láta það trufla sig hvort komandi kynslóðir geti borgað þessa skuldasúpu, það er seinna. Eitt sinn átti ég frænda sem var útigangsmaður og gaf honum alltaf eitthvað klink þangað til móðir hans skammaði mig fyrir að halda honum fullum. Færeyingar eru ekkert að spyrja Geir og Sollu hvort þau noti peninginn í sendiráð í Afríku. Þeir gera þetta af góðum hug. En hvort sem þessi hjálp er til góðs eða ekki er ég þakklátur Færeyingum.

 


mbl.is Siðferðileg skylda að hjálpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IMF í boði ISG brettir upp ermarnar

isgrice-004 Stjórn seðlabankans (les stjórn IMF) hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 6%.  Búast má við því að þessi ákvörðun muni flýta fjöldaatvinnuleysi, þar sem mörg fyrirtæki sem standa nú þegar höllu fæti munu kikna undan þessum drápsklyfjum.  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verður ekki sökuð um að hafa komið landinu á hausinn, hún hefur það sem af er kjörtímabilinu sinnt brýnum erindum í Afganistan, Palestínu og víða í Afríku.  Um leið og hún frétti að landið væri í vandræðum lýsti hún því yfir að við ættum strax að taka lán hjá IMF en Davíð vildi leita annarra leiða. Ingibjörg og Samfylkingin hljóta því að fagna þessari vaxtahækkun.                     Ingibjörg 4f9112b997040e62ab746969cf96249b_300x225
mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg lygasaga, þóttist vera þýfi

Hann er meir en lítið undarlegur þessi Svíi sem þóttist hafa verið rænt en átti í raun í hjónabandserfiðleikum sem kannski er ekki svo undarlegt. Þetta minnir mig á seinheppinn mafíósa sem hafði í mörg ár sloppið undan réttvísinni með því að skipta um dulargerfi, eða þangað til að þóttist vera barn.  kthompson-340-sad-child_1_ how_the_mafia_works
mbl.is Svíi laug að lögreglunni að sér hefði verið rænt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síldin við hafnarkjaftinn

Sildveidar_i_GrundarfirdiMeðan pólitíkusarnir eru úti í heimi við hvers mans dyr að slá lán berast fréttir frá Bíldudal að þar sé fjörðurinn fullur af fiski en íbúarnir sitja hnípnir með hendur í skauti því enginn í plássinu hefur kvóta.  Úr Hólminum berast líka góðar fréttir þar er vaðandi feit síld við hafnakjaftinn, sem hægt er að moka upp en þorskurinn gleðst yfir þessu líka því nú getur magur þorskurinn fitað sig. 

Þetta er góð búbót nú í kreppunni og menn gleðjast yfir því að þurfa ekki að eyða þessum peningum í öryggisráðið.

Myndin er tekin þegar síldin var fyrir utan Grundarfjörð


mbl.is Síldin við hafnarkjaftinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segja seðlabankastjórar núna

Fyrsta frétt Stöðvar 2 í gær fjallaði um þá fullyrðingu Björgólfs Thor Björgólfssonar um að Bretar hafi viljað stuðla að flýtimeðferð á flutningi Icesave reikningunum til Bretlands en íslenski seðlabankinn hafi staðið gegn því. Bretarnir hafi ekki farið fram á nema 40 milljarða sem er smáaupphæð í samanburði við hvað í húfi var og Landsbannkinn hafi boðið fimmfaldar tryggingar í ríkisskuldabréfum.  Þegar seðlabankinn neitaði hafi  Bretar reiðst. Afleiðingarnar eru mesta efnahagshrun nokkurrar þjóðar. Og ekki bætir úr skák að viðkomandi þjóð er sú skuldugast í veröldinni eftir 17 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins. 

Hvað segir seðlabankastjóri? Hvað segir ríkisstjórnin?


Stjórnmálaskýring: Stjórnmálin eiga eftir að umturnast.

Ég er sannfærður um að Ísland verður ekki samt eftir þær hremmingar sem nú eru að fara í hönd. Sú mikla viðhorfsbreyting sem þegar hefur átt sér stað er að litlu leyti komin fram í fylgi flokka.  Aukið fylgi við Evrópusambandsaðild kemur alltaf eins og dagur á eftir nótt í kjölfar efnahagslægða en hverfur svo  í kjölfar uppgangs. Í því ljósi má skilja uppgang Samfylkingarinnar sem hefur verið bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Samfylkingin hefur verið með hugann við útþenslu utanríkisþjónustunnar og er jafn sek Sjálfstæðisflokknum en eftir að allt fór í kaldakol skóp hún sér sérstöðu með því að vilja semja strax við Breta, IMF, ganga í Evrópusambandið. Flestir átta sig á að kapp er best með forsjá í jafn mikilvægum samningum og vonandi hefur ríkisstjórnin manndóm í sér til að stefna Bretum. Samfylkingin hefur engar tillögur í sjávarútvegsmálum aðrar en þær að skapa störf í símaþjónustu fyrir konur í sjávarþorpum sem eru að fara á hliðina vegna kvótakerfisins. Að öðru leyti hefur hún engar tillögur í atvinnu- og efnahagsmálum aðrar en að ganga í ESB sem myndi koma í veg fyrir að Íslendingar gætu haldið aftur af ofvexti hvalastofna. Auk þessa hefur flokkurinn nú fundið blóraböggul í Davíð Oddssyni seðlabankastjóra, sem þerripappír til að draga athygli frá viðskipta- og bankamálaráðherra. Þessi taktík mun ekki duga til langframa.  Önnur viðhorf hafa breyst. 1. Eftir að karlaveldun í viðskiptalífinu brugðust verða konur líklega meira áberandi. 2. Fólk hefur áttað sig á að einhæfni í atvinnulífi er varasöm og við megum ekki eiga allt undir áli. 3. Síðast en ekki síst er fólki farið að skiljast hversu mikilvægur sjávarútvegurinn er. án hans ættum við enga möguleika á að vinna okkur úr vandanum. Við eigum möguleika á ná miklu meiri arðsemi í greininni með því að innleiða sóknarstýringu sem kæmi m.a. í veg fyrir brottkast tugmilljarða verðmæta á ári hverju. Frjálslyndi flokkurinn er eini flokkurinn á Alþingi sem hefur einarðlega unnið að því. Framtíð þjóðarinnar veltur að miklu leyti á því að talsmenn flokksins nái að leggja mál sitt fyrir hana.
mbl.is Minnihluti styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömmur eru mikilvægastar

Haw+Im John McCain hamast eins og óður maður, sem á lífið að leysa á kosningaferðalögum um norðvesturríkin og Florida. Hver mínúta er skipulögð þar sem  hann heldur marga fundi á dag  og taugaveiklunin er farin að skína í gegn.  Þegar aðeins rúm vika er til kosninga tekur Obama sér hins vegar frí til að heimsækja mikið veika ömmu sína. Hawai er öruggt vígi Demókrata þannig að hann þarf ekki að vinna fylgi þar.  Þetta minnir okkur á hvaða gildi eru mikilvægust í lífinu.obamgram
mbl.is Obama heimsækir Hawaii
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í dag er ég fullur í dag vil ég gefa

Finnst ykkur ekkert bogið við þá stjórnmálamenn sem halda því fram einn daginn að þeir séu fulltrúar ríkis sem býr við velmegun og ríkidæmi og láta allar sparnaðartillögur sem vind um eyru þjóta?  En koma svo eins og heimatrúboðsmenn með þá kenningu að landið eigi að ganga í ESB,  taka risalán og segja okkur til sveitar hjá alþjóðasamfélaginu.c_documents_and_settings_eythor_desktop_blog_is_geir_og_ingibjorg
mbl.is Mjög erfiðir tímar framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband