Færsluflokkur: Trúmál
Guð blessi Ísland
Laugardagur, 31. október 2009
Ég hlakka til að horfa á Útsvar í kvöld. Guð blessi Ísland.
Átti að vera vinaleg kveðja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Drög að uppgjafaskilmálum
Sunnudagur, 18. október 2009
Svo sem við mátti búast eru íslensk stjórnvöld tilbúin til að falla frá fyrirvörum Alþingis og fallast á uppgjafaskilmála við Breta. Erlendir hagsmunaaðilar treysta nú á AGS að það aðstoði við að koma auðlindum landsins í þeirra eigu, þegar Ísland ræður ekki lengur við afborganirnar. Baráttan um Ísland er hafin.
Morgunblaðið telur sig hafa heimildir fyrir því að ríkisstjórnarforystan sé bjartsýn á að koma þessu í gegn um þingið. Vonandi hefur ríkisstjórnin eða Morgunblaðið rangt fyrir sér í þeim efnum. Ég treysti á þjóðhollt fólk í VG. Ögmundur hefur ekki enn orðið viðskila við samvisku sína og verður það vart úr þessu. Nú er kominn tími til að rifja upp bænirnar sem amma kenndi mér í æsku.
Icesave-fyrirvörum breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Breytt s.d. kl. 02:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hver á að sjá um morgunbænirnar?
Föstudagur, 9. október 2009
Prestsembætti í Köben aflagt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Breytt s.d. kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Gyðinahatursparanoja?
Sunnudagur, 23. ágúst 2009
Segir Norðmenn hata gyðinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Örlaganornirnar og icesavesamninganefndin
Fimmtudagur, 30. júlí 2009
Sífellt koma fram fleiri ábendingar um vankunnáttu og axarsköft hjá Icesave samninganefndinni. Nú hefur komið í ljós að rótina má rekja til misskilnings nefndarmanna á fornri þjóðtrú.
Urður er myndgervingur fortíðarinnar, Verðandi nútímans, og Skuld framtíðarinnar.
Skálarræðan:
Það er lykillinn að hamingju og dyggð að elska örlög sín, nauðugur viljugur.
Lánið stoppar á Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Athyglisvert viðtal við Svavar Gestsson
Mánudagur, 6. júlí 2009
Vegna aðildar Íslands að EES vorum við skuldbundin til að leyfa Icesave. Tryggingasjóður innlánsstofnana var líka hannaður s.k.v. evrópskum stöðlum sem við vorum skylduð til að taka upp. Sérfæðingar telja því að sökin liggi hjá Evrópusambandinu a.m.k að stærstum hluta. Í viðtali í Morgunblaðinu skömmu eftir undirritun samningsins sagði Svavar Gestsson að enginn þrýstingur hafi verið að ljúka samningum. Orðrétt sagði hann þetta: "Ég var bara orðinn leiður á að hafa þetta hangandi yfir mér" Svo hló hann.
Í máli hans kom fram að ef þetta hefði ekki verið gert upp hefði allt innistæðukerfi Evrópu hrunið. En nú þurfi menn ekki lengur að hafa áhyggjur af því. "Við erum í rauninni að bera burt syndir heimsins, eins og sagt var um Jesú Krist" sagði aðalsamningamaður Íslands.
Hvað segja guðfræðingar um þetta?
Trúmál | Breytt 7.7.2009 kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
Áætlun ríkistjórnarinnar: Úr hugleiðslu í kóma?
Fimmtudagur, 4. júní 2009
Meðal þess sem ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu kjósendum fyrir kosningar var að aflaheimildirnar, sem er úthlutað til eins árs í senn skyldu fyrntar á 20 árum. Nú mánuði eftir kosningar boðar ríkisstjórnin að skipa nefnd til "að hugleiða hagræn áhrif svonefndar fyrningarleiðar" og formaður sjávarútvegsnefndar, Atli Gíslason, er byrjaður að draga í land varðandi kosningaloforðin og stjórnarsáttmálann og afsalar sér ábyrgðinni til nefndarinnar, sama hver niðurstaða hennar verður.
Því hefur verið fleygt að Dali Lama hafi haft svo mikil áhrif á suma stjórnarþingmenn að þeir stefni úr hugleiðslu í kóma. Vonandi er það ekki rétt.
Nefnd skoðar áhrif fyrningarleiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mannúðarmál: Er Alsírbúinn afkomandi Íslendinga?
Laugardagur, 16. maí 2009
Hælisleitandinn Hitchems Mansrís frá Alsír er enn í hungurverkfalli og líður að sögn mjög illa. Efnahagsástand í Alsír er mjög ótryggt og atvinnuleysi mikið. Sú var tíðin að Alsírbúar rændu Íslendingum frá Vestmannaeyjum og áttu þeir niðja sem blönduðust íbúum þar syðra samkvæmt rannsóknum Úlfars Þormóðssonar. Nú hafa stuðningsmenn Hitchems Mansrís leitt að því líkum að hann kunni að eiga íslenska forfeður og sótt um hæli af mannúðarástæðum.
Fái leyfið af mannúðarástæðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ríkisstjórnin og kynskiptingar.
Föstudagur, 15. maí 2009
Ríkisstjórnin er vel meinandi í jafnréttismálum og henni tókst vel til með því að velja eingöngu konur í störf þingforseta. Henni tókst miður í stefnuyfirlýsingu sinni þar sem fram kemur að ríkisstjórnin styðji kröfur kynskiptinga. Þar yfirsást ríkisstjórninni að ein helsta krafa kynskiptinga er að vera ekki kallaðir kynskiptingar heldur transgender. Þannig að stuðningur ríkisstjórnarinnar við kynskiptinga virðist ekki fara vel af stað.
Styður ríkisstjórnin allar kröfur kynskiptinga af heilum hug?
Allir þingforsetar konur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Afnám kvótakerfisins, skýr leið úr kreppunni
Fimmtudagur, 19. mars 2009
Fyrir um 14 árum var djúp banka- og efnahagskreppa í Færeyum en þeir þeir komust út úr henni með því að afnema kvótakerfið. Núna styrkja Færeyingar Íslendinga. Jón Kristjánsson fiskifræðingur skrifar um þetta hérna.
Ekkert kvótakerfi, landburður af afla án brottkast er ávísun á stórauknar þjóðartekjur.
Sjáið frábæran Komásþátt hérna
Arðbærar fiskveiðar, skýr leið úr kreppunni.
Ár þar til þorskurinn verður vottaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)