Færsluflokkur: Bækur
Það sem fiskihagfræðingarnir vita ekki
Fimmtudagur, 4. mars 2010
Sjávarþorpin eru þar sem þau eru vegna nálægðar við staðbundin fiskimið. Þetta vita fiskihagfræðingar ekki, þeir kunna heldur ekkert í líffræði en þeir kunna aftur á móti á Exel sem þeir geta matað með viðurkenndum hagfræðiformúlum og búið þannig til kökur, gröf, línurit og súlur.
Ekkert af .þessu hefur neitt með raunveruleikann að gera.
Fiskihagfræðingarnir létu misnota sig af kvótabröskurum til að réttlæta eyðingu sjávarþorpanna. Af hverju leggja þeir ekki til að slegið verði 5 sinnum á Suðurlandi og hætt að heyja í öðrum landshlutum?
Ragnar Árnason fiskihagfræðingur
Bannað að selja burt kvóta úr þrotabúum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Í upphafi skyldi endinn skoða
Þriðjudagur, 2. mars 2010
Gerðu menn ráð fyrir að missa allar tekjur af erlendum félögum á Íslandi?
Heilbrigð skynsemi segir að 100% skattur skili engum tekjum. Ætli Exelforrit fjármálaráðuneytisins geri ekki ráð fyrir því að skattstofninn minnkar þegar skattprósentan er hækkuð?
Tryggingargjaldið var hækkað til að standa undir auknum greiðslum í atvinnuleysisbætur. Hækkun tryggingargjaldsins veldur auknu atvinnuleysi.
Vonandi er ekki verið að fara inn í spíral.
Lagabreytingar fæla á brott skattgreiðendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Evrópuhugsjón "hins feita þjósns"
Laugardagur, 27. febrúar 2010
Sannur evrópuhugsjónamaður er sá er vill fórna auðlindum eigin þjóðar og fá vinnu í Brussel
Í boðsferð ESB til Brussel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Guð gefi Íslendingum kjark og vit
Föstudagur, 26. febrúar 2010
Íslendingar sagðir hafa gengið af fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fær 400.000 kr á mánuði fyrir gaspur!
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010
Englendingur sem Samfylkingi skipaði í prningastefnunefnd Seðlabankans hefur lagt tvennt til málanna sem eftir hefur verið tekið:
1. Að Ísland sé of lítið til að vera sjálfstætt.
2. Að Íslend geti vel greitt Englandi og Hollandi Icesave samkvæmt kröfum þessara þjóða.
Þessi undarlegi Englendingur heitir Anne Sibert þiggur 400.000 kr í laun á mánuði auk greiðslna fyrir flug og gistingu.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tveir milljarðar + Icesave í viðræður um ekkert
Miðvikudagur, 24. febrúar 2010
1. Ekkert land með gjaldeyrishöft fær aðild að Evrópusambandinu og gjaldeyrishöftin munu standa næstu árin að mati seðlabankans.
2. skuldar 130% af vergri þjóðarframleiðslu og því er tómt mál að tala um Evruaðild fyrir utan Jöklabréfin, sem eru 600 milljarðar.
3. Allar tollaívilnanir íslands með fisk við lönd utan ESB falla niður.
4. Samkvæmt Rómarsáttmálanum lúta allar fiskveiðiheimildir innan ESB- fiskveiðilögsögunnar (íslenska fiskveiðilögsagan félli niður) sameiginlegri stjórn.
Þeim liggur ekkert á og þá ekki okkur heldur.
Tveim milljörðum er puðrað í gagnslausar viðræður til þess eins að friða Samfylkinguna.
Ísland fær ekki flýtimeðferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bíðum kosninga í Bretlandi
Mánudagur, 22. febrúar 2010
Stjórnarandstaðan í Bretlandi hefur gagnrýnt Gordon Brown fyrir framgöngu hans í Icesave og fyrir setningu hryðjuverkalaganna. Flokksmenn hans hér á landi eru honum þó auðsveipir og vilja ganga að hvaða tilboði sem bresk flokkssystkini þeirra leggja fram, þetta sýnir reynslan.
Ríkisstjórnin hefur því ekki viljað beita sínu beittasta vopni sem er málsókn og samvinna við stjórnarandstöðuna í Bretlandi vegna setningu hryðjuverkalaganna.
Breytt vaxtakjör nægja ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 04:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hermann Valson myndugri en Sóley
Miðvikudagur, 17. febrúar 2010
Hermann studdi Ólaf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Íslensk fiskveiðilögsaga ekki framseld til öfgamanna
Miðvikudagur, 10. febrúar 2010
Það er mikilvægt að íslensk stjórnvöld séu ekki svo ístöðulaus að þau hlaupi eftir órökstuddum óskum um að þjóðin fái ekki að nýta náttúruauðlindir sínar með sjálfbærum hætti.
Ef látið verður undan kröfum öfgamanna um að við megum ekki veiða hval er stutt í að okkur verði bannað að veiða sel (það er nú þegar bannað í Evrópusambandinu). Ef þjóðin gengi í Evrópusambandið flyst stjórn fiskveiða til Brussel og þá eiga sjómenn lífsaðkomu sína undir duttlungum spjátrunga.
Stefnubreyting í hvalveiðimálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég búinn að kjósa
Mánudagur, 8. febrúar 2010
Stjórnmálamenn ræða nú hvernig hægt sé að losna við þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Ég mætti snemma í morgun hjá sýslumanninum í Reykjavík og greiddi atkvæði um Æsseif.
Það er um að gera að neyta á meðan á nefi stendur.
166 búnir að kjósa um Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)