Færsluflokkur: Bækur

Sjálfstæðisflokkurinn klofinn Varaformaðurinn með bakland í samstarfsflokknum

frettamannafundur

Varaformaðurinn er ókrýndur leiðtogi þeirra sjálfstæðismanna sem vilja fórna hagsmunum sjávarútvegsins með því að ganga í ESB í von um baunadisk.  Hópur menntamanna innan Samfylkingarinnar, sem aldrei hefur flakað ýsu hvað þá pissað í salt vatn skilja ekki möguleika sjávarútvegsins en sjá sjálfan sig í hyllingum sem vellaunaða starfsmenn í Brussel, fulltrúa fátæks og skuldsetts grjóthólma í N- Atlantshafi. Valdabarátta er hafin innan Sjálfstæðisflokksins og varaformaðurinn á tryggt bakland í samstarfsflokknum.

 Bretar voru hundfúlir að þurfa að hætta að veiða við Íslandsmið. Þess vegna vilja þeir ólmir fá okkur í ESB til að ná fyrri stöðu. Getur verið að þeir Gordon Brown og Darling hafi vísvitandi komið Íslendingum á hné til að aðstoða íslenska flokksbræður sína að klára verkið?

 


mbl.is Tilbúin að endurskoða afstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfó buffar samstarfsflokkinn sem er vankaður

Þetta er mögnuð staða. Samfylkingin nýtur þess að vera bæði í stjórn og stjórnarandstöðu t.d. með því að framámenn hennar taka þátt í opinberum mótmælum. Sjálfstæðismenn eru vankaðir og milli steins og sleggju því þeir vilja umfram allt ekki kosningar.   Þetta rifjar upp boxlýsingu hjá Bubba og ÓmariBubbi æpir: "Hann ver sig ekki" "Hann ver sig ekki". Ómar ákveðinn:  Búð spil,  Bubbi æstur: Hann er vankaður.  Ómar: Hægri, vinstri, upphögg.  Bubbi: Þetta er tær snilld.  Ómar: Þetta er það flottasta sem ég hef séð lengi, nei sjáðu hann er nefbrotinn. Bubbi: "Gargandi snilld"


mbl.is Samfylking afneitar Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð svaka fyrndinn sjá myndband

Sjáið þetta skemmtilega myndband hér

davidodds

Annars virðist það lenska hjá mörgum að kenna Davíð um allt sem aflaga fer. Það gengur þó fulllangt að ráðherrar Samfylkingarinnar kenni honum um það sem þeir gera sjálfir samanber vaxtaákvörðunina sjá eftirfarandi yfirlýsingu seðlabankans hér


Íslensku stelpurnar flottastar

Maður getur ekki annað en verið stoltur af "stelpunum okkar". Þær voru mikklu betri en írsku stelpurnar, bæði tæknilega og í styrk. Baráttuandinn hjá stelpunum er greinilega meiri á heimavelli þar sem þær finna stuðning.Alidkv2004-0363
mbl.is Ísland á EM 2009
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LÍÚ óskar eftir meiri kvóta til að veðsetja

Einn stærsti vandi Íslendinga felst í því að meðlimir LÍÚ eru búnir að veðsetja sameign þjóðarinnar í útlöndum þannig að greinin skuldar nú 400% af ársveltu.  Það er sjálfsagt allt í lagi að auka við veiðiheimildir en það er ástæðulaust að gera það þannig að það auki skuldir landsins í útlöndum.c_documents_and_settings_kristinn_my_documents_my_pictures_jesus-apostles-01_165538
mbl.is LÍÚ óskar eftir meiri kvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti fjárfestingarkosturinn Fjárfest í heilsu

Ég fór á frábæran kynningarfund á Grand hótel í kvöld þar sem komu góðir erlendir gestir frá USA og fjölluðu um hvernig mæetti virkja og styrkja ónæmiskerfið. Ástæðan fyrir því að þeir sáu sér fært að koma var sú að þeir millilentu hér á leið sinni á stóra ráðstefnu í Noregi. Aðalfyrirlesari var Doktor Don Knox sem fjallaði um nýjustu rnannsóknir sínar á slökkvuliðsmönnum en sú rannsókn var styrkt af fjölmörgum háskólum og bandaríska flughernum. Niðurstöður allra rannsóknanna benda í sömu átt að  sjá  wellmune   dragi úr steitu og fækki veikinndadögum.  Aðrar rannsóknir beda allar í sömu átt. 

Í Skandinavíu heitir varan Immiflex sjá 


Geir þiggur allan pening

Ríkisstjórnin gerir nú víðreist um heiminn til að biðja um lán. Geir segir að þessir peningar 6 milljarðar frá Færeyjum dugi skammt en sé ótrúlega höfðinglegt miðað við höfðatölu þeirra.


mbl.is Mikill drengskapur Færeyinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færeyingar brjóta sparibaukinn fyrir Íslendinga

1386089751_32e67df259Færeyingar brjóta sparibaukinn fyrir Íslendinga. Risstjórnin er á ferð og flugi um allan heim að snapa lán, Geir er mjög glaður og tekur fegins hendi við öllum peningum sem honum eru réttir. Ríkisstjórnin er ekkert að láta það trufla sig hvort komandi kynslóðir geti borgað þessa skuldasúpu, það er seinna. Eitt sinn átti ég frænda sem var útigangsmaður og gaf honum alltaf eitthvað klink þangað til móðir hans skammaði mig fyrir að halda honum fullum. Færeyingar eru ekkert að spyrja Geir og Sollu hvort þau noti peninginn í sendiráð í Afríku. Þeir gera þetta af góðum hug. En hvort sem þessi hjálp er til góðs eða ekki er ég þakklátur Færeyingum.

 


mbl.is Siðferðileg skylda að hjálpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparnaðurinn hirtur

Það er langur vegur frá því að peningamarkaðsbréfin hafi verið kynnt fyrir almenningi sem einhver áhættufjárfesting. Þvert á móti eru hefur þetta sparnaðarform verið kynnt sem öruggt sparnaðarform þar sem hægt væri að nálgast peningana með dags fyrirvara að hámarki. Mér var til að mynda ráðlagt að fyrst ég þyrfti nauðsynlega að nálgast peningana með skömmum fyrirvara skyldi ég taka þá út af bundinni bók og setja inn á þennan reikning númer 9 hjá Glitni. Og eftir að ríkið keypti hlut í bankanum var öllum sagt að nú væri allt í himnalagi.  Það er líka dapurlegt að starfsfólkinu var uppálagt að segja þetta.loser
mbl.is Fá 60-74 prósent af virði peningabréfanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn á fátækaheimili í Óðinsvéum

Vegna fjármálakreppunnar hefur verið sett upp neyðaraðstaða til að gefa Íslendingum í Óðinsvéum súpu. Aðstoðin fer fram í húsakynnum hjálpræðishersins í borginni og er jafnframt hægt að fá gjafakort fyrir Íslendinga í matvörubúðir. Á meðan ferðast ríkisstjórnin á fyrsta farrýni og háum dagpeningum um allan heim til að biðja um lán hjá erlendum seðlabönkum. Væri ekki nær að senda ríkisstjórnina til vistar og framfærslu hjá Hjálpræðishernum í Danmörku?_41252468_homeless_ap203
mbl.is Neyðaraðstoð fyrir Íslendinga í Óðinsvéum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband