Færsluflokkur: Bækur
Útrásarvíkingur með öklaband
Fimmtudagur, 18. desember 2008
Bernard Madoff, bandarískur útrásarvíkingur, einn af virtustu fjármálamönnum New York gengur nú með ökklaband eftir að hafa orðið uppvís að því að svíkja út 6500 milljarða króna. Nokkrir kunnir Íslendingar eru meðal fórnarlamba hans. Þetta er áttföld sú upphæð sem við skuldum í Jöklabréfum en hann er samt ekki nema hálfdrættingur miðað við íslensku bankana. Vel af sér vikið fyrir mann á áttræðisaldri!
Bernard Madoff er góðlátlegur útrásarvíkingur
![]() |
Madoff í stofufangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Auðveldara að taka upp bandarískan $ en Evru
Þriðjudagur, 16. desember 2008
Lilja Mósesdóttir tók nýlega saman þær skuldir sem íslenska ríkið lagði á þegna sína að borga að kröfu Evrópusambandsins og reiknaði út að þær næmu um 11 milljónum á hvert mannsbarn og rúmlega helmingi hærri upphæð á hvern vinnandi mann á Íslandi. Dálítið rausnarlegt hjá ríkisstjórninni því þetta er rúmlega meðal íbúðaverð á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Að vísu eru lánin afborgunarlaus í fyrstu þrjú árin svo ríkisstjórnin getur andað léttar í bili. Hvað um það þá er talsvert mikið fyrir almenning að greiða í ofanálag þessa háum stýrivexti sem hér eru. Ef við horfum til að skipta um mynt er mun auðveldara að taka upp bandaríkjadal. þar sem stýrivextir eru einungis 0,5% en evru því annars eigum við á hættu að vera þvinguð til að ganga í evrópska tollamúrabandalagið, því þá myndu tollar hækka á fiskafurðir frá Íslandi til Asíu.
Lilja Mósesdóttir lagði á sínum tíma til að við tækjum Rússalán og slepptum IMF láninu, þessu var ISG ósammála, og því munu ófædd börn og komandi kynslóðir þurfa að athafna sig í skuldahlekkjum eða flytja af landi brott.
![]() |
Vextir 0-0,25% í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Að selja allar jólagjafirnar í janúar
Þriðjudagur, 16. desember 2008

![]() |
Gjöfin til Hillary fór á 115 þúsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Marklaus Evrópunefnd
Mánudagur, 15. desember 2008
Þorgerður Katrín varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt að Íslendingar hafi ekkert val, þeir verði að ganga í Evrópusambandið. Samfylkingin hefur sett Sjálfstæðisflokknum skilyrði um að þeir verði að fallast á aðild að ESB. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að láta ríkisstjórnina halda eins lengi og þeir geta helst út kjörtímabilið. Niðurstaðan liggur fyrir: Einn kostur ekkert val. Til hvers er þá verið að skipa Evrópunefnd, fyrst þetta er málamyndatilbúningur? Svarið liggur í augum uppi: Þetta er lýtaaðgerð af svipuðum toga og almannatengslaráðgjöfin sem kostar hundruð milljóna. Hvað munar um einn kepp í sláturtíðinni?
![]() |
350 milljónir í ráðgjöf og almannatengsl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hver verður þróun álverðs? Sennileg hækkun í febrúar
Mánudagur, 15. desember 2008
Ein og sjá má á meðfylgjandi töflum hér hefur álverð hríðlækkað undanfarna 6 mánuði og með ógnarhraða síðustu tvo mánuð, og er nú komið undir 1500$ tonnið, Og þó verð eigi að vera viðskiptaleyndarmál er alveg ljóst að Landsvirkjun er byrjuð að borga með Kárahnjúkavirkjun miðað við óbreytt álverð. Ný álaver hafa verið byggð í Kasakstan, Indlandi og Kína en undanfarna mánuði hafa mörg álver dregið úr framleiðslu og önnur, einkum Kanada og Bandaríkjunum, eru að loka í ársbyrjun 2009. Áhrif þessara lokana ættu að koma fram í verðlagið í febrúar á næsta ári
![]() |
Hætt við stækkun í Straumsvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mun Garrí Kasparov bjarga Íslandi?
Laugardagur, 13. desember 2008

![]() |
Kasparov stofnar Samstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt 14.12.2008 kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Solla með hreðjatak á Geir Haarde
Laugardagur, 13. desember 2008
Sjálfstæðisflokkunin stendur mjög höllum fæti núna og utanríkisráherra tekur vængbrotinn samstarfsflokkinn engum vettlingatökum og lætur hné fylgja kviði: "Hún sagði líklegt að boðað yrði til þingkosninga áður en kjörtímabilinu lyki ef niðurstaðan yrði sú að ekki verði sótt um aðild að Evrópusambandinu í upphafi næsta árs." Geir Haarde stendur sem sagt frammi fyrir afarkostum annað hvort verði sótt um aðild á næsta ári eða boðað til kosninga þar sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur höllum fæti. ISG með
hreðjatak
![]() |
Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hærri skattar dýpka kreppuna
Föstudagur, 12. desember 2008
Það eru gömul og ný sannindi að lækkun skatta hleypir lífi í efnahagslífið og með sama skapi munu hærri skattar dýpka kreppuna sem við stefnum ofaní. Ríkisstjórnin sker einnig grimmt niður vegaframkvæmdir, allt eru þetta ákvarðanir sem meðvitað leiða til mikils atvinnuleysis og dýpkunar kreppu. Það eina sem ríkisstjórnin hefur gert til að bæta atvinnuástandið er að ráða Kristínu Árnadóttur, vinkonu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem sendiherra.
Ráðning Kristínar, sem sendiherra, er eina opinbera ráðstöfunin til að bæta atvinnuástandið.
![]() |
Tillögur um mikinn niðurskurð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eirðarlaus lóðatík, ábyrg fyrir verkleysi ríkistjórnarinnar.
Föstudagur, 12. desember 2008
aðspurður um hvers vegna ekki er unnið að því að stefna Bretum.
Ríkisstjórnin hefur í raun ekkert gert annað en að fara inn í bankana
sem hún veit ekki hvað hún á að gera við og slá lán síðan
kosningabaráttunni um öryggisráðið lauk. Þetta verður sennilega til að
Íslendingar tapa skaðabótaréttinum, þar sem þeir skila ekki inn gögnum.
Skýringin er að hluta til falin í því að Samfylkingin er eins og
lóðatík gagnvart ESB. Innan þeirrar girðingar eru nokkrir óstýrilátir hundar sem gjarnan vilja komast í fiskimiðin.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Ávarp til íslensku þjóðarinnar
Fimmtudagur, 11. desember 2008
Bækur | Breytt 12.12.2008 kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)