Sjá hér norska fréttaumfjöllum og bréf Jóhönnu á norsku.
Ótrúlega mikill merkingarmunur er á klögubréfinu sem forsætisráðuneytið sendi til Noregs og íslensku þýðingunni sem send var fjölmiðlum. Takið eftir að í norska bréfinu er beinlínis kvartað undan Lundteigen og sagt að honum sé kunn afstaða norsku stjórnarinnar en í íslensku þýðingunni er sagt að okkur sé kunnugt um afstöðu norsku stjórnarinnar. Hver þýðir bréf Jóhönnu á íslensku?
J"eg beklager at tage op en sag som har fået relativt stor opmærksomhed i Island, d.v.s. Per Olav Lundteigens erklæring til en Althingsmand fra det islandske Fremskridtsparti, Senterpartiets søsterparti, om at Norge er villig til at låne Island 100 milliarder norske kroner. Vi ved godt at Lundteigen taler for egen regning og kender godt den norske regerings holdning men det gælder ikke for alle her i landet og Fremskridtspartiet i Island beskylder regeringen for ikke at følge op på deres initiativ.
Til at undgå fortsat tvivl, vil jeg gerne spørge om den norske regerings holdning kan blive videre klargjort i svar til Lundteigens udspil? Er hans udspil realistiskt?
Jeg ville gerne få svar fra dig så tidligt som muligt.
Jeg glæder mig til det nordiske møde i Stockholm i slutning af denne måned.
Med venlig hilsen,
Jóhanna."
Íslenska þýðing forsætisráðuneytisins:
Kæri Jens
Ég endurtek hjartanlegar hamingjuóskir mínar með árangurinn í kosningunum en hér á Íslandi er ríkisstjórnin því miður að fást við fjölmörg erfið málefni.
Mér þykir miður að trufla með að nefna við þig mál sem hefur vakið talsvert mikla athygli á Íslandi, það er að segja yfirlýsingu Per Olav Lundteigens til alþingismanns íslenska Framsóknarflokksins, systurflokks Miðflokksins, um að Noregur sé reiðubúinn að lána Íslandi 100 milljarða norskra króna. Við gerum okkur vel ljóst að Lundteigen talar fyrir sig og afstaða norsku ríkisstjórnarinnar er okkur vel kunn. Það gildir hins vegar ekki um alla hér á landi og Framsóknarflokkurinn á Íslandi sakar okkur um að fylgja ekki eftir frumkvæði sínu.
Til þess að komast hjá frekari vafa, vil ég leyfa mér að spyrja hvort hægt sé að fá nánari skýringar á afstöðu norsku stjórnarinnar sem svari tillögu Lundteigens? Er útspil hans raunhæft? Mér þætti vænt um að fá svar frá þér við fyrsta tækifæri. Ég hlakka til norræna fundarins í lok þessa mánaðar.
Með kærri kveðju, Jóhanna