Færsluflokkur: Menntun og skóli
Flugvélin tók Ásmund! Skúbb.
Miðvikudagur, 16. júlí 2008
Ásmundur Jóhannsson réri vaknaði snemma í morgun, með sól í sinni og klukkan 05:00 lét hann úr höfn við annan mann frá Sandgerðishöfn í góðu veðri og stefndi happafleyinu, Júlíu Guðrúnu á Flóann. Þeir voru í ágætis fiski aðallega ufsa og þorsk, þegar þeir voru truflaðir af flugvél Landhelgisgæslunnar TF Sýn og skipað að halda til hafnar. Tveimur tímum seinna eða k.l. 16:00 komu þeir að landi og þar biðu þeirra fílefldir lögregluþjónar. Aflinn var ágætur eða rúm 600 kíló af stórum og fallegum fiski.
Ég vonast til að geta birt myndir í kvöld úr veiðiferðinni.
Hér kemur fyrsta myndin af Ásmundi úr veiðiferðinni
Vinnandi menn þurfa að taka hraustlega til hatar síns.
Flugvél Landhelgisgæslunnar bar að þegar sægarpurinn og kvótabaninn var að matast.
Menntun og skóli | Breytt 17.7.2008 kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sjóferðabæn
Þriðjudagur, 15. júlí 2008
Landnáma greinir frá því að landvættir hafi fylgt Suðurnesjamönnum til róðra með góðum árangri. (bls. 193-198). Ég hafði í hyggju að heimsækja alþýðuhetjuna Ásmund Jóhannsson, sem rær gegn mannréttindabrotum frá Sandgerði taka myndir og ná tali af honum en hann var þá til sjós. Honum fylgdu mínar bestu óskir.
Sjóferðabæn:
"Ég heiti á landvættir að fylgja nú þeim góða dreng Ásmundi Jóhannssyni í þennan róður, hann megi afla vel og kraftur þeirra megni að kvótakerfið leggist af, svo hjálpi mér Freyr, Njörður og hinn almáttki Ás".
Alþýðuhetja rær gegn mannréttindabrotum frá Sandgerði
Mánudagur, 14. júlí 2008
Ásmundur Jóhannsson, fullorðinn Sandgerðingur hefur sagt lénsskipulagi í sjávarútvegi stríð á hendur. Ásmundur sem er grandvar og duglegur sjómaður um nokkurt skeið gert út aflamarkslausan bát sinn án þess að leigja kvóta af sægreifum. Fyrir vikið svipti Fiskistofa hann veiðileyfi sínu og hafa hótað honum. Hann lætur það sem vind um eyrum þjóta og mun fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu ef með þarf.
Ásmundur er hetja sem berst gegn þjófnaði og mannréttindabrotum eins og hann orðar það og okkur borgurum landsins ber siðferðisleg skylda til að styðja hann í þessari baráttu.
Mótmælir kvótakerfinu með veiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæjarstjóraskiptin í Grindavík, hver er kjarni málsins?
Sunnudagur, 13. júlí 2008
Ég réri frá Grindavík meðan ég var í Stýrimannaskólanum og er hlýtt til staðarins síðan, enda býr þar duglegt og gott fólk. Mörgum rennur til rifja hvernig Samfylkingin fer með almannafé í tengslum við bæjarstjóraskiptin. En það er ekki síður mikilvægt að væntanlegur bæjarstjóri þekki þann grundvöll sem bæjarfélagið og velgnengni þess byggir á.
Grindavík á sér merka sögu, sem Landnáma greinir frá: Fyrstu ábúendur Grindavíkur þeirra Molda- Gnúpur og Járngerðar, sem varð fimm barna auðið, synir þeirra voru miklir fiskimenn "enda fylgdu landvættir þeim til róðra". Meðal fjögurra sona þeirra var Hafur- Björn, sem var fyrsti þingmaður Grindvíkinga á Alþingi við Öxará árið 930. Hann naut fulltingis landvætta eins og áður greinir en var ekki síst frægur fyrir að koma upp geitarstofni í Grindavík, þrátt fyrir að eiga engan hafur en bergbúi leysti úr þeim vanda og varð hann auðugur bóndi.
Þetta rifjast upp fyrir mér nú þar sem tilvonandi bæjarstjóri séra Jónina Kristín Þorvaldsdóttir, vakti meðal þorpsbúa mikið hræðslufár varðandi athöfn í Sólarvéum, fyrir nokkrum árum. Hún taldi að það sérstaklaga ámælisvert að heiðinn maður, sem hlóð véið hefði komið að athöfninni og að þetta gengi ekki upp "þar sem Grindvíkingar væru margir fiskimenn". Þessi orð voru ómakleg enda er mér til efs að bergbúar og landvættir hafi komið meir að uppbyggingu nokkurs bæjarfélags ef marka má frásögn Landnámu.
Ég vona að tilvonandi bæjarstjóri, sem er aðkomumaður, kynni sér sögu staðarins og sýni landvættum og bergbúum tilhlýðilega virðingu, því það er lykillinn að velgengni bæjarfélagsins.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
Þjóðin þarf ekki meiri spillingu í landstjórnina.
Laugardagur, 12. júlí 2008
Þeir eru oft fróðlegir og skemmtilegir þættirnir þeirra Sigurðar G. Tómássonar og Guðmundar Ólafssonar lektors á Útvarpi Sögu á föstudögum. Í gær tók Guðmundur létta upprifjun á hvernig bönkunum var ráðstafað í þágu vildarvina og flokksgæðinga þeirra Halldórs og Davíðs sem réðu síðustu ríkisstjórn. Tilefnið var grein sem seðlabankaráðsmaðurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson skrifaði, þar sem hann var að agnúast út í grein eftir erlendan fræðimann sem taldi að hluti af efnahagsvanda Íslands stafaði af því að bönkunum hafi verið ráðstafað á einu bretti til manna sem enga reynslu hefðu af alþjóðlegum bankaviðskiptum. Guðmundur rakti þetta ferli í stórum dráttum t.d. hvernig VÍS var tekið úr Landsbankanum og hann seldur lægstbjóðanda. Lokaþáttur í ráðstöfun Búnaðarbankans var sá að þeir sem fengu að kaupa skuldbundu sig til að eiga bréfin í minnst 18 mánuði en Valgerður Sverrisdóttir veitti góðfúslega undanþágu frá þessu eftir 3 vikur frá undirskriftinni. Þetta sumir ættingjar samráðherra hennar sér og fóru út úr kaupréttinum með gríðarlegan hagnað með bréfaskiptum við VÍS án þess að hafa lagt fram eina krónu.
Nú eru framsóknarmenn orðnir leiðir á að vera fjarri kjötkötlunum og segjast vilja koma á festu.
Guðni er skemmtilegur og orðheppinn maður en flokkurinn þarf að gera upp fortíðina og fara í aflúsun.
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Skyldi Ingibjörg Sólrún leita í Kvennaathvarfið?
Fimmtudagur, 10. júlí 2008
Það dylst engum lengur að kossar Ingibjargar og Geirs eru ekki jafn heitir og innilegir og á meðan tilhugalífið stóð sem hæst. Ríkisstjórnin tók við í í góðæri og Ingibjörg naut hveitibrauðsdagana í einkaflugi með Geir um en gaf sér þó tíma til að kynna sér ættflokkadeilur í Afganistan. Nú er góðærinu að ljúka deilt er um heimilareikningana og heimiliserjur magnast. Einu efnahagsráðstafanirnar sem þau eru sammála um er að taka hugsanlega 500 milljarða króna lán í útöndum í óskilgreind verkefni. Börn beggja af fyrra hjónabandi eru byrjuð að kýta og þá er stutt í heimilisofbeldið.
Skyldi Ingibjörg Sólrún leita í Kvennaathvarfið?
Dómsmálaráðherra kemur af fjöllum en utanríkisráðherra frá Miðausturlöndum
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Dómsmálaráðherra hefur sagt að hann þekki ekki til máls Paul Ramsesar sem vísað var úr landi og sendur til Ítalíu á dögunum. Hann kemur sem sagt af fjöllum, það gerir utanríkisráðherra ekki, þvert á móti veit hún allt um málið enda nýkomin frá Sýrlandi og sagði að að það hefði vantað hina matskeindu þætti í meðferð málsins og skoraði á dómsmálaráðherra að taka í taumana. Þingmenn Samfylkingarinnar þ.m.t. varaformaðurinn Ágúst Ólafur Ágústsson hafa sent dómsmálaráherra áskoranir fyrir milligöngu fjölmiðla. Dómsmálaráðherra hefur samt ekki enn sem komið er fengið málið á sitt borð þannig að hann hefur a.m.k. ekki enn getað brugðist við áskorununum.
Það er gott hjá utanríkisráðherra að halda dómsmálaráðherra við efnið þegar kemur að mannréttindum og vonandi fær mál Paul Ramesar farsælar lyktir. Hitt þykir mér dapurt hvað utanríkisráðherra hefur, enn sem komið er, lítinn áhuga fyrir mannréttindum íslenskra sjómanna.
Voru mannréttindi sjómanna afgreidd með þessum kossi?
Ráðherra ókunnugt um málið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt 9.7.2008 kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hæstiréttur álítur meintan barnaníðing hættulegan börnum
Þriðjudagur, 8. júlí 2008
Hægt er að úrskurða menn í gæsluvarðhald af tveimur ástæðum þ.e. vegna rannsóknarhagsmuna og almannahagsmuna. Héraðsdómur hafði úrskurðað að maður sem grunaður er um gróft ofbeldi gagnvart börnum skyldi látin laus en Hæstiréttur Íslands snéri þeirri ákvörðun, vegna þess að rétturinn hefur talið að börnum stafi hætta af þessum manni. Úrskurður Hæstaréttar er væntanlega ekki líklegur til að valda deilum.
Mitt sjónarmið var að rétt væri að ræða þessa hluti opinskátt og jafnvel birta mynd af viðkomandi þar sem hætta væri á ferð. Ég viðurkenni fúslega að þetta orkar tvímælis.
Vegna ábendingar um að nafn og myndbirting geti skaðað þá sem síst skyldi, ættingja og jafnvel fórnarlömb, hef ef ég tekið það út og biðst ég innilega afsökunar á þessum vanhugsuðu mistökum mínum
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Talíbanar til Bíldudals og Bakkafjarðar?
Mánudagur, 7. júlí 2008
Ég á gamlan kunningja frá æskuárum mínum, sem læknar hafa greint með geðhvarfasýki en sem leikmaður orða ég það þannig að hann sé með frjórra ímyndunarafl en gengur og gerist. Þannig hefur hann átt í höggi við leyniþjónustu Sovétríkjanna sálugu og síðar rússnesku mafíuna, sem hann þekkir út í ystu æsar. Þessi þekking hans er svo yfirgripsmikil og nákvæm að undrun sætir en hún var þráhyggjukennd og því var ég feginn þegar hann tilkynnti mér að hann teldi að Putin myndi hafa í fullu tré við undirheimana. Þetta tengist allt lausn Samfylkingarinnar á kvótakerfinu eftir úrskurð mannréttindanefndarinnar. Nú var kjálkinn á mér farinn að síga. Í gær leit hann við hjá mér og hafði leyst mikla gátu og komið upp um gríðarlega mergjað samsæri. Nú hvað spurði ég? Af hverju heldur þú að Ingibjörg Sólrún hafi farið til Afganistan til að stúdera gamlar ættflokkadeilur? Ég hef víst sett upp ómeðvitaðan sauðasvip, þannig að hann sagði fullur meðaumkunar: Ég átttaði mig ekki á þessu heldur fyrr en samfylkingakonurnar fóru að setja upp íslömsk höfuðföt. Eins og allir vita þá eru sjávarþorpin að tæmast og húsin standa auð þess vegna ætlar hún að flytja inn Talibana og veita þeim pólitískt hæli. Þannig leysir hún kvótamálið og ættflokkríg í Pakistan og Afganistan í einum pakka, sagði hann hróður.
Líklega er þetta eina skynsamlega skýringin á atferli stjórnvalda. Eða hefur einhver aðra betri?
Fimmtán látnir og tugir særðir í Islamabad | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Efnahagsstjórnunin fær falleinkunn frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Sunnudagur, 6. júlí 2008