Færsluflokkur: Evrópumál
Ástæðulaust að vanhelga 17. júní og minningu Jóns Sigurðssonar
Laugardagur, 22. maí 2010
Það etur aldrei orðið annað en óhappaverk að afsala Íslandi umráðum yfir fiskveiðiauðlindinni en það er sérstaklega ósmekklegt að hefja slíkt ferli á sjálfan þjóðhátíðardaginn, dýpra verður ekki sokkið.
Mér þykir vænt um að Stefán Jóhann, samfylkingarmaður, skuli hafa tekið þetta góða frumkvæði. Með sama hætti er dapurlegt að Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi skuli ekki átta sig á inntaki dagsins en telja hann þjóna þeim einum tilgangi að vera coke, pylsu og blöðruhátíð barna.
Varpi ekki skugga á 17. júní | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hámark siðblindunnar afhjúpað í Kastljósi
Föstudagur, 7. maí 2010
Vilja íslenskir þingmenn leyfa sér að þiggja mútur?
Miðvikudagur, 5. maí 2010
Eftirfylgni Íslands óviðunandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Forsetinn leggur á ráðin um eldgos!
Fimmtudagur, 29. apríl 2010
Stuðningsmenn Æsseif vita vel að forsetinn er líklegur til að magna seið til að stuðla að Kötlugosi
Forsetinn sniðgekk tilmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hárrétt hjá Ingibjörgu
Föstudagur, 9. apríl 2010
Auðvitað á að blása þessar EB viðræður af strax.
Þetta er jafnvel enn fánýtari sóun á almannafé en umsóknin um aðild að öryggisráðinu.
Betra að fresta ESB-viðræðum en halda þeim áfram í óvissu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ríkisstjórnin og Reykjavíkurborg áhugasöm um vegtolla
Miðvikudagur, 7. apríl 2010
Hugmyndir eru nú uppi bæði innan ríkisstjórnarinnar og hjá Reykjavíkurborg að ráðast í stórfellda tekjuöflun með vegtollum eftir kosningar. Þannig telja menn að megi ráðast á atvinnuleysisvofuna úr tveimur áttum:
Í fyrsta lagi með því að ráða fjölda fólks til starfa sem vegtollheimtumenn til að byrja með á höfuðborgarsvæðinu, þar sem umferðin er mest.
&
Í öðru lagi með því að nýta það gríðarlega fé sem þannig myndi safnast til framkvæda.
Það er auk þess góð röksemd fyrir þessu að það eru víða vegtollar innan Evrópusambandsins
Alfarið á móti vegtollum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íslensk stjórnvöld "gungur og druslur"
Föstudagur, 2. apríl 2010
Þetta eru hryðjuverkamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samfylkingin breimar á evrópufressi í von um skoffin og skuggabaldur
Mánudagur, 29. mars 2010
Nú breima blandaðir silfurrefir og skoffín af Tortólakyni á tamda og ótamda ketti til vinstri og hægri.
Guð veri oss næstur.
Dýrkeypt leit að köttum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ungliðarnir pissa upp í vindinn
Sunnudagur, 14. mars 2010
Þegar meira að segja samfylkingarfólk er farið að sjá að Evrópuumsóknin var misráðin koma ungliðar Framsóknar með afkáralega lofrullu um evrópustefnu Samfylkingarinnar.
Ungir sjálfstæðismenn sem ganga með slaufu og þekkja ekki mun á lýsu og ýsu eru líka handvissir um að engu megi breyta í sjávarútvegi. Ekki verður sagt um stuttbuxnadrengina að þeir séu föðurbetrungar.
SUF fagnar því að ESB viðræður séu í eðlilegum farvegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ekki amarlegt að komast í Parísarklúbbinn
Fimmtudagur, 11. mars 2010
Það hefur legið fyrir um nokkurt skeið að Ísland hefur reist sér hurðarás um öxl. Það er mikil meðvirkni að viðurkenna ekki að landið er löngu komið á hausinn og því er ágætt að hinir erlendu sérfræðingar skuli segja okkur þetta.
Það er heldur ekki hægt að leysa vanda atvinnulífsins með því að hækka skatta á það ekki frekar en að skera skott af sveltandi hundi og gefa honum.
Sérfræðingar segja að ríkið þurfi að leita til Parísarklúbbsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |