Færsluflokkur: Evrópumál
Svín með vængi geta líka flogið!
Mánudagur, 23. nóvember 2009
Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur kallað virta hagfræðinga til vitnis um að Íslendingar eigi ekki möguleika á að borga Icesave. Eftir pólitíska íhlutun tókst seðlabankanum samt í þriðju tilraun að búa til bjartsýnismódel þar sem þetta gekk upp. Svín með vængi geta líka flogið.
Þjóðin vill ekki fara í ESB. Þá er spurningin hvort Skattfylkingunni takist að snúa á þjóðina með því að skuldsetja hana inn í ESB með ÆSSEIF?
![]() |
Gæti sparað 185 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 06:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
"Spánverjar vilja sanngjarnan hlut við Íslandsmið"
Sunnudagur, 22. nóvember 2009
Ríkisstjórnin var ekki fyrr búin að senda inn umsókn í ESB en spánski utanríkisráðherrann fagnaði og sagði að Spánverjar vildu fá "sinn sanngjarna hlut við Íslandsmið"
Þessu mótmæltu íslensk stjórnvöld ekki enda er mjög gaman hjá Össuri núna.
![]() |
Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
LÍÚ vill veðsetja makrílinn
Laugardagur, 21. nóvember 2009
![]() |
LÍÚ vill meiri makríl en Jón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Norðmenn afnema skilyrði láns við Icesave!
Föstudagur, 20. nóvember 2009
Í umræðum á norska Stórþinginu í dag kom fram að í máli norska utanríkisráðherrans að Norðmenn setja ekki lengur samþykki Icesave sem skilyrði fyrir afgreiðslu lánsins. Þar með er fallin helsta röksemd stuðningsmanna Icesave fyrir því að frumvarpið skuli samþykkt
Einn af þeim sem ýtti þessum bolta af stað er Gunnar Skúli Ármannsson með því að rita framkvæmdastjóra AGS um skuldaþol Íslands og Icesave. Sá snéri sér út úr málinu með því að koma sökinni á Norðurlöndin. Þetta setti óþægilega pressu á stjórnmálamenn. Norski utanríkisráðherrann hefur nú brugðist við. Norski utanríkisráherrann Jonas Gahr
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Megi þeir stikna í Helvíti
Fimmtudagur, 19. nóvember 2009
Meðfylgjandi myndir sýna ótrúlaga grimmd. Ég sem hélt að ég væri umburðalyndur í trúmálum.
Konan hér að neðan var nýlega grýtt í Afganistan fyrir þá "sök" að mótmæla fyrirlitlegum og mannfjandsamlegum lögum um nauðganir. Af hverju eru V
esturlögnd að styðja svona ríkisstjórn?
Geir og Ingibjörg á góðri stundu, meðan þau voru með hugann við að komast í öryggisráðið. Ætli Geir hefði sett upp slæðu fyrir nokkur atkvæði?
![]() |
Tvítug kona grýtt til dauða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Pottabyltingin étur börn barna sinna
Þriðjudagur, 17. nóvember 2009
![]() |
Icesave afgreitt út úr nefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Vinnueftirlið skoði undarlega stóla alþingis
Mánudagur, 16. nóvember 2009


![]() |
Kýs líklega með Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ásmundi Daðasyni óskað heilla.
Sunnudagur, 15. nóvember 2009
Heimssýn, félagsskapur sem vill setja hagsmuni Íslands í öndvegi hefur aldrei haft brýnna erindi við íslenska þjóð en einmitt núna þegar óþjóðholl og spillt öfl hafa látið greipar sópa. Á þjóðþinginu og jafnvel í ríkisstjórn er fólk sem hefur þá framtíðarsýn að afsala sjálfstæðinu, auðlindunum og gera niðja sína að skuldsettum indíánum í eigin landi.
Ég komst því miður ekki á aðalfund Heimssýnar þar sem ég hafði löngu ákveðið að vera á 60 ára afmælishátíð Náttúrulækningafélags Reykjavíkur sem haldið var við fjölmenni í Hveragerði í dag. Þar eins og allstaðar þar sem fólk kemur saman eru framtíðarmál þjóðarinnar rædd. Og þegar það spurðist að Ásmundur hefði verið kjörinn formaður Heimsýnar var gerður að því góður rómur af þeim sem til hans þekktu.
Ragnar Arnalds hefur skilað frábæru starfi sem formaður Heimsýnar og skilar nú keflinu í hendur ungs hugsjónamanns.
Ég óska Heimssýn til hamingju og Ásmundi Einari Daðasyni velfarnaði og gæfu.
![]() |
Ásmundur Einar nýr formaður Heimssýnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýtt bréf Gunnars Tómassonar til alþingismanna
Sunnudagur, 15. nóvember 2009
Á bloggsíðu Sigurbjörns Svavarssonar er birt nýtt bréf Gunnars Tómassonar til Alþingis.
Þar eru forsendur Icesave skýrðar og viðbrögð stjórnvalda breskra og íslenskra rakin.
Augljóst er að Bretar og forysta Evrópusambandsins gerir allt aðrar kröfur til tryggingasjóðsins á Íslandi en sambærilegra sjóða í sínum löndum.Evrópumál | Breytt s.d. kl. 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Var ekki lofað hærra lánshæfismati ef Icesave yrði samþykkt?
Miðvikudagur, 11. nóvember 2009
Því var haldið fram að ef Æsseif yrði samþykkt myndi erlent lánsfé streyma til landsins, krónan styrkjast osf. osf. Þannig réttlættu stjórnmálamenn að Ísland tæki á sig áratuga skuldbindingar sem myndu ekki leiða erfiðleika yfir okkur heldur næstu kynslóð. Þessi skammtíma ávinninur er nú ekki að sýna sig öðru nær.
![]() |
Lánshæfismat ríkisins lækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |