Fréttablaðið vill halda viðræðunum áfram.

Leiðari Fréttablaðsins í dag er með hefðbundnu sniði, hvatt til innlimunar Íslands í ESB og t.a.m. vitnað í skoðanakönnun sem blaðið lét gera. Hlutlausar kannanir sýna að mikill meirihluti Íslendinga vill ekki í Sambandið en allir leiðara- og pistlahöfundar Fréttablaðsins verja mestum kröftum sínum í að prédika innlimun landsins í EB. Fréttablaðið er hluti af 365, sem ekki er rekið með hagnaði. Því er tilgangurinn með útgáfu blaðsins sé augljós.


mbl.is Meirihluti vill halda viðræðum áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halldór mættur með geislabauginn

Halldór hélt blaðamannafund til að sýna nýja geislabauginn.
mbl.is Halldór mættur til skýrslutöku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB setur löndunarbann

Varaformaður sjávarútvegsnefndar ESB: "Gríðarmikið magn miðað við að þjóðin er aðeins 320 þúsund manns"
mbl.is Tilkynnt um löndunarbann á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi frétt er martröð fyrir aflóga pólitíkusa

Birting WikeLeaks afhjúpar að sendiráð eru fullkomlega óþörf. Þetta er eitthvað sem samtryggingarmenn allra flokka vilja ekki heyra.  Utanríkisþjónustan er þeirra dvalar-og elliheimili.
mbl.is Afhjúpar tilgangsleysi sendiráða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja spyrða Ísland við sökkvandi skip?

Betra að fara í flotgalla en að binda á sig sökku áður en menn hoppa í sjóinn.

Af hverju að sækjast eftir evru þegar það liggur fyrir að hún er feigðarflan?

 


mbl.is Telja ólíklegt að evran lifi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirlíking af vandaðri vöru er óráðvendni

Þetta er að minnsta kosti á gráu svæði þó ekki sé það jafn óforskammað og þegar heildverslunin Eggert Kristjánsson hf. markaðssetti eftirlíkingu af Rauðu Eðalginsengi, sjá hér.

Neytendasamtökin fengu kvartanir frá neytendum og sendu í kjölfarið sýnishorn keypt ér á landi til rannsóknar í faggiltri rannsóknarstofu í Þýskalandi, sem beitti þremur mismunandi aðferðum sem allar gáfu sömu niðurstöðu: Ekkert rautt ginseng var í vörunni!


mbl.is Ölgerðin ekki með einkarétt á appelsíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrengt að tjáningarfrelsi fyrir þinglok

 

 Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur einsett sér að þrengja að tjáningarfrelsi fyrir þinglok.

Blaðamenn eru að vonum áhyggjufullir 


mbl.is Ritskoðun ekki leidd í lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja misskildi Össur

Össur er furðufugl sem sést best á því að hann virðist hafa umtalsvert meiri áhuga á kynlífi fiska en manna. Auk þess er hann næst æðsti  höfðingi innan Samfylkingarinnar sem stefnir að inngöngu í ESB og gera Íslendinga að indíánum í eigin landi.  Indíánar kenna stórmenni gjarnan við dýr og því hlýtur það að vera af virðingu við Lilju Mósesdóttur að hann kallar hana meri. Þessi misskilningur kemur berlega fram hér

 

Sigurjón bróðir minn þekkir Össur vel og líkir honum við kenjóttan heimiliskött.

 

 

 


mbl.is Telur að Lilja eigi að sýna Össuri skilning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að Lilja Mós skuli reikna út vaxtagreiðslurnar fyrir þingheim

Lilja Mósesdóttir óttast að þingið taki skuldavandann ekki nógu alvarlega.

Máli sínu til stuðnings bendir Lilja á að ríkið þurfi að greiða 73 milljarða króna í vaxtagreiðslur á næsta ári en það jafngildir 8,33 milljónum á klukkustund, allan ársins hring. Miðað við að lítil íbúð í Reykjavík kosti 15 milljónir jafngildir vaxtabyrðin ríflega 13 íbúðum á sólarhring, allt árið.

 Jóhanna hefur hingað til lagt alt sitt traust á Hrannar en þegar dæminu er stillt svona upp ætti jafnvel Hrannar að skilja að verið er að stefna út í fúafen


mbl.is Lilja: „Var vöruð við rætni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúðkaup myrkurs og ljóss 9 dagar og 9 nætur

Ég heyrði í útvarpinu í morgun að ásatrúarmenn blótuðu Frey vegna þess að á jólunum sigraði ljósið.

Þetta er misskilningur því að með brúðkaupi Freys Njarðarsonar (sól- og frjósemisguðs) annarsvegar og Gerðar Gymnisdóttur (jötunmeyjar) var gerður eilífur sáttmáli um hringrás árstíðanna.

Veislan var höfðingleg en brúðhjónin létu það ekki trufla sig meðan þau elskuðust í 9 daga og 9 nætur undir skinnfeldi. 

Eftir það tók sól að rísa og voru það hin fyrstu jól. 


mbl.is Ásatrúarmenn blóta sólstöður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband