Góðar fréttir úr höfuðborginni

reykjavik_bankastraeti_nordur512 Það hefur lengi vantað heildarskipulag fyrir miðbæ Reykjavíkurborgar, með einni undantekningu, sem er Grjótaþorpið og eru menn fyrst nú að vakna upp við vondan draum til að huga að þessu.  Þær sögur ganga fjöllum hærra að braskarar kaupi upp gömul hús, sem hafa menningarsögulegt gildi sem hluti af heildarmynd og sjái hag sínum best borgið með því að þau drabbist niður svo leyfi fáist til að byggja á dýrum lóðum. Nú sjást merki þess að borgararnir séu vaknaðir og séu að ýta við stjórnmálamönnunum. Góðverkssamtökin betri bær hafa málað yfir veggjakrot og sóðaskap í miðborg Reykjavíkur og er það vel. Okkur Reykvíkingum stendur ekki á sama, við viljum ekki slömm í miðbænum.
mbl.is Máluðu yfir veggjakrot í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er ríkisendurskoðun svívirt, misnotuð og nauðgað!

Ríkisendurskoðun hefur nú gefið Þróunarfélagi Keflavíkur "syndakvittun", eins og henni var ætlað að gera. Átti virkilega einhver von á öðru en að ríkisendurskoðun, sem er endurskoðandi reikninga Þróunarfélagsins gefi út umbeðið vottorð á eigin verk?  Ekki trúi ég  því en samt er þessu slegið upp sé frétt. Það virðist vera komin hefð á að ef eitthvað vafasamt er á ferðinni, sem stjórnmálamönnum þykir óþægilegt er ríkisendurskoðun kölluð til og látin gefa út syndakvittun t.d. þegar farið er yfir á fjárlögum. En svo eru auðvitað tilfallandi neyðartilvik eins og þegar ríkisendurskoðun var látin leggja blessun sína yfir sölu á 45,8% hlut í Búnaðarbankanum til Eglu og síðar hæfi Halldórs Ásgrímssonar við söluna árið 2005, sem ríkisendurkoðnun staðfesti.Smile

grimseyjarferja

 

 Grímseyjarferjumálið var bara smotterí  fyrir ríkisendurskoðun að skúra.


mbl.is Ekki skylda að bjóða eignir út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísitöluþrælarnir munu finna fyrir keyrinu, vonandi sligast þeir ekki

starving-prisoners-civil-war Enn hækka vextir upp úr öllu valdi.  Ég hitti gamlan lögfræðing í heita pottinum í gær sem hældi Davíð Oddsyni í hásterkt, hann stæði einn vaktina gegn verðbólgunni og keyrði upp stýrivextina. Það er mikið til í þessu, hann berst hetjulega í kviksyndi, án afskipta ríkisstjórnarinnar sem er með allan hugann við Afganistan og öryggisráðið. Þannig verður hann án nokkurra aðstoðar að laga til eftir alnafna sinn sem var forsætisráðherra og neitaði að fara að ráðum OECD sem ráðlögðu ríkisstjórninni að draga úr peningamagni í umferð, t.d. með því að fresta afnáms hátekjuskatts.  Nú verða vísitöluþrælarnir að greiða fyrir þann herkostnað.
mbl.is Sparisjóðir hækka vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vei yður þér verndartollheimtumenn og fjölmenningarlegu farísear

saving_l

Nú hafa alls 5 verndartollheimtumenn verið handteknir eftir árásina í Keilufelli s.l. laugardag. Sá síðasti var handtekin á Suðurnesjum af lífvörum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr Afganistanferðinni. Sérsveit ríkislögreglustjóra er þrautþjálfuð til ýmissa verkefna allt frá því að fást við Talibana og að handtaka verndartollheimtumenn. Rétt er að vara við því að ókunnugir geta ruglast á verndartöllheimtumönnunum og heiðarlegum iðnaðarmönnum, vegna verkfæranna sem þeir ganga með, sem eru m.a, járnstangir, slaghamrar, sleggjur og axir, svo eitthvað sé nefnt, sem þeir telja gagnlegt við innheimtu á verndartolli. Sem dæmi um að tollverðirnir nýta þessi tæki og tól sín ekki í friðsamlegum tilgangi má nefna að einn liggur stórslasaður með slæma áverka á höfði og samfallið lunga. Tvískinnungur fjölmenningarlegu faríseana felst m.a í því að ekki megi huga að öryggi þess góða fólks sem hingað kemur um langan veg til að leggja hönd á plóg atvinnulífsins og vernda það, með því að loka landinu fyrir verndartollheimtumönnum, sem herja á saklaust fólk. 

"Vei yður þér tollheimtumenn og farísear."


mbl.is Einn handtekinn eftir húsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er íslenski hermaðurinn?

Nú fjórum árum eftir að friður og ró komst á í 795 héruðum af 800 og í þessum 5 sem eftir voru væri minniháttar heimilisófriður virðist alt vera að fara í bál og brand að nýju eftir að íslenski hermaðurinn var sendur heim. Getur verið að íslenska ríkisstjórnin hafi verið of fljót á sér að senda liðsaflann frá Írak til Afganistan? Nú berjast allir á móti öllum.  Hvar er íslenski hermaðurinn?
mbl.is Enn hart barist í Basra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmenningarlegir verndartollar innheimtir í skjóli andvaraleysis

Þá vitum við það að erlend glæpagengi hafa komið auga á óplægðan akur hérlendis fyrir starfsemi sína, í skjóli andvaraleysis stjórnvalda.  Vegna Schengen samkomulagsins njótum við ekki kosta þess að vera eyja til að verja okkur fyrir óheftu innstreymi glæpamanna. Á sama tíma er stórlega 12cronulla_wideweb__470x415,0fækkað í lögreglunni á Keflavíkurvelli. Mér finnst stjórnvöldum beri ríkari ríkari ástæða til að stuðla að öryggi borgarana á Íslandi en að setja niður ættflokkadeilur í Afganistnan sem þau bera lítið skynbragð á.

Hvað finnst ykkur? 


mbl.is Innheimtu verndartoll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða Íslendingar settir á listann?

Það liggur beint við að álykta að yfirlýsing David Petraeus yfirmanns Bandaríkjahers, sé upptaktur að nýrri innrás í Íran.  Þessa yfirlýsingu verður  að lesa í samhengi við að  Bandaríkjamenn handtóku  íranska diplómata  og  Íranir handtóku  breska sjóliða sem þeir sögðu hafa farið inn fyrir landamæri sín.  Diplómatísk samskipti  eru við frostmark enda  kallaði  Bush  Iran eitt  þriggja  "Öxulvelda  Hins Illa"
Nú er fróðlegt að vita hvort  Ísland verður sett á lista  yfir innrásarþjóðir verði slíkur listi gerður?r173622_656566


mbl.is Segir Írana bera ábyrgð á árásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlend glæpagengi og fjölmenningarleg slagsmál

Yfirgnæfandi meirihluti útlendinga sem hingað koma til að vinna er gott og gengt fólk. En það eru gömul og ný sannindi að misjafn sauður getur leyst í mörgu fé og skiptir þá ekki máli uppruni fjárins. Til að aðskilja hafra frá sauðum lögðu Frjálslyndir til að heilbrigði og sakaferill erlendra aðila sem hingað flyttust yrði kannaður og hlutu að launum ramakvein vinstriflokkana sem ásökuðu Frjálslynda um rasisma. Jafnvel hinn prúði Geir Haarde tók þátt í þessu og þóttist sárna persónulega vegna þess að hann væri hálf norskur og þótti að sér vegið.  Morgunblaðið fylgdi í kjölfarið og strengdi þess heit að segja ekki frá uppruna meintra brotamanna. Þessi móðursýki er nú rénuð og raunveruleikinn blasir við. Heiðarlegir Pólverjar skelfast að fá lítinn en skuggalegan hóp samlanda sinna sem muni plaga þá og koma á óorði að ósekju. Morgunblaðið sem lofaði að leysa fjölmenningarleg vandamál með þögn birtir í dag fréttina: Viggo-Mortensen-LP_e_b531446b815d841fa57ff7ac29559923"Pólsk glæpagengi herja á aðra Pólverja hér"

 

Þessi lífvörður rússnesku mafíunnar er sagður vera illskeyttari en hann lítur út fyrir. Frjálslyndir vilja ekki að hann fái atvinnuleyfi hér. 


mbl.is Pólsk glæpagengi herja á aðra Pólverja hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nancy Pelosi ræði við íslensk yfirvöld um kvótakerfið

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings er mikill mannréttindafrömuður og hefur m.a. beitt sér fyrir úrbótum í Darfur og Tíbet og er það vel. Á Íslandi ríkir tvöfalt siðgæði, stjórnmálamenn víkja sér undan því að ræða það lénsskipulag sem tíðkast í sjávarútvegi, þar sem leiguliðar þurfa að greiða allt að 80% af andvirði aflans til kvótagreifa og af restinni þarf leiguliðinn síðan að greiða allan reksturskostnað. Á sama tíma eru þessir sömu stjórnmálamenn að flandra um allan heim og eyða hundruðum milljóna og jafnvel milljörðum, til að snapa atkvæði í öryggisráðið. Nú líður hratt tíminn sem íslenskum stjórnvöldum var gefin til að skýra hvernig þau hefðu leyssjomennt málið.442px-Nancy_Pelosi_official_portrait

 

 

Íslensir sjómenn binda vonir við Nancy Pelosi.


mbl.is Segja Pelosi skapvonda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilega páska!

 

 

Í gær fóru börn á öllum aldri um holt og móa að leita páskaeggja. Í dag brjóta börnin eggin sín og lesa málshætti. Páskalambið er borið fram með Ora grænum baunum og brúnuðum kartöflum og fjölskyldan hreiðrar um sig í stofunni og hlustar á messu sama hverrar trúar menn eru. Þá reikar hugurinn til Pílatusar, sem var heiðingi eins og ég en var þvingaður til að láta krossfesta Krist.  Skyldi hann hafa valið páskana í von um lýðurinn veldi Krist í stað Barrabasar? Spyr sá sem ekki veit.  Ég sendi kristnum vinum mínum og fjölskyldu bestu óskir um gleðilega páska.

 

Guðspjall Mrk 16.1-7        (sumir álíta að þarna sé að finna þungamiðju kristninnar)

Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust.
En hann sagði við þær: „Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjáið þarna staðinn þar sem þeir lögðu hann. En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann eins og hann sagði yður.“
mbl.is „Upprisan tákn gleði og vonar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband