Velheppnað Íraksstríð endurtekið annarsstaðar
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Löngu áður en breska og bandarísku leyniþjónusturnar ákváðu að ljúga því að Írakar væru með gereyðingavopn og gætu gert mannskæða árás á Vesturlönd innan 45 mínútna hafði lítil hirð í kring um Búsk ákveðið að koma á lýðræði í Miðaustulöndum með vopnavaldi og var talað um að breiða út kristni í því sambandi. Það var því hvorki tilviljun né mismæli hjá Búsk að tala um "krossferð gegn Írak" eins og hann gerði fyrsta sólarhringinn, muslimum til mikillar skelfingar. Nú þegar breski utanríkisráðherrann strýkur og hjalar við Condoleezzu Rice, hlýtur hún að mala.
Útstilling á David Miliband, við sjávarsíðuna.
![]() |
Úbreiðsla lýðræðis besta ráðið gegn hryðjuverkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sægreifinn: Útlendingar sólgnir í hrefnukjöt
Miðvikudagur, 21. maí 2008
Ég brá mér í Sægreifann um daginn með tvo gesti frá Kóreu , sem ég bauð í mat og þeir völdu humarsúpu og hvalkjöt, sem þeim fannst hið mesta lostæti. Ég var svo heppinn að sjálfur sægreifinn var þarna á staðnum og upplýsti hann okkur um að flestir útlendir gestir spyrðu einmitt fyrst um hvalkjöt, sem ekki er furða því það er sannkallað heilsufæði sem Kjartan matreiðir af hreinni snilld. Í eftirrétt fengum við vel kæstan hákarl sem menn renndu niður með brennivínstári Í slútið skenkti Sægreifinn okkur Rauðu Eðalginseng þykkni Kóreumönnunum til óblandinnar ánægju. Síðan keyrði ég Kóreumennina til Selfoss þar sem þeir gistu. Það þarf ekki að orðlengja það að daginn eftir vöknuðum við eldsprækir og skoðuðum náttúruperlur uppsveita Árnessýslu.
Takk fyrir mig kæri eini og sanni sægreifi!
Og hér með skila ég allra bestu kveðjum og þakklæti frá Kóreubúnum sem segja að þetta hafi verið toppurinn á Íslandsheimsókninni.
![]() |
Fyrsta hrefnan veidd á Faxafló |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sjómenn segja sig úr Samfylkingunni
Þriðjudagur, 20. maí 2008

Ég hitti nokkra gamla skólabræður mínu úr Stýrimannaskólanum í hádeginu í dag. Það er alltaf glatt á hjalla þegar við hittumst, sem reyndar er ekki nógu oft, en tilefnið í dag var sérlega ánægjulegt: Nýútgefinn veiðikvóti á hrefnu en einn okkar er einmitt hrefnuveiðimaður. Umræddur félagi okkar hafði stutt Samfylkinguna og átti greinilega bágt þegar talið barst að skilningsleysi ráðamanna á þeim bæ gagnvart þessari atvinnugrein. Ég finn til með honum og öðrum betur meinandi samfylkingarmönnum við þessar aðstæður. Hann upplýsti okkur félagana þá um að ef það kæmi í ljós, innan 30 daga, að áhugi forystunnar á mannréttindum íslenskra sjómanna yrði fyrir borð borin myndi hann yfirgefa flokkinn og bauð hann velkominn í FF, þar sem honum á eftir að líða betur. Svipaða sögur hef ég heyrt viða af landsbyggðinni hjá sjómönnum og fjölskyldum þeirra.
Sjálfur þekki ég það að um allt land er mikill fjöldi ærlegs alþýðufóls sem stutt hefur Samfylkinguna og á fátt sameiginlegt með forystumönnum flokksins, sem skirrast ekki við að fórna hagsmunum sjómanna og landsbyggðarinnar allrar í þágu jafn fáfengilegs markmiðs og að komast í öryggisráðið.
![]() |
Hagsmunaaðilar fagna hrefnuveiðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Óþarfi að örvænta Óskar
Þriðjudagur, 20. maí 2008

Óskar Bergsson er að fara á límingunum vegna þess að einni jarðgufuvirkjun er hafnað af umhverfisástæðum.
Veit Óskar ekki að verið er að byggja Hellisheiðarvirkjun, sem á eftir að stækka um helming. Fyrirhuguð er virkjun við Hverahlíð og stefnt að rannsóknaborunum við Meitil og Gráhnjúka. Þar með verða víst heilar 5 jarðgufuvirkjanir á Hellisheiðar- Hengilssvæðinu. Einhverra hluta vegna hefur Óskar Bergsson alveg gleymt þeim. Óskar er ungur maður við hestaheilsu og ekki gleymnari en gengur og gerist. Skyldi þetta vera pólitísk kölkun?
![]() |
Segir flumbrugang einkenna samþykkt stjórnar OR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vaxandi óánægja með Samfylkinguna meðal sjómanna
Þriðjudagur, 20. maí 2008

Samfylkingin er sýnir það æ betur að hún er óþjóðhollur flokkur, sem er tilbúin til þess að fórna auðlindum landgrunnsins á altari Efnahagsbandalagsins. Íslendingar eiga trygga framtíð ef rétt er á málum haldið. Samfylkingin áttar sig ekki á að við eigum endurnýjanlega orku, nóg af vatni og auðugustu fiskimið heims en þetta eru einmitt þær auðlindir sem mun margar þjóðir mun skorta helst í náinni framtíð. Íslendingar eiga efnahagslegt sjálfsstæði sitt og velmegun undir auðlindum hafsins og að þær séu nýttar í jafnvægi. Ráðherrar flokksins hafa haldið því fram að það skaði hvalaskoðun ef Íslendingar borði hval. Hvað kemur næst? Megum við kannski búast við að sömu aðilar fari fram á að við hættum að borða hrossakjöt til að skaða ekki ferðaþjónustu tengda hestaferðum?
Utanríkisráðuneytið eyðir nú 11800.0000.000,oo- og er þá ekki innifalinkosnaður við að reyna að koma Íslandi í öryggisráðið. Maður hefur á tilfinningunni að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi hugmynd um hvaðan þeir peningar koma sem hún er að spreða.
![]() |
Óánægja með hrefnuveiðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hillary Clinton, Halldór og Davíð
Fimmtudagur, 8. maí 2008
Hillary Clinton heyr nú hetulega en vonlausa baráttu til að ná útnefningu demókrata til að verða forsetaefni þeirra og hefur í því skyni lánað sjálfri sér milljónir dollara. Hillary studdi innráisna í Írak á sínum tíma og skipaði sér á bekk með Halldóri Davíð og fleiri pólitíkusum af því sauðahúsi sem komnir eru í pólitíska úreldingu, annar sem formaður norrænu ráðherranefndarinnar og hinn sem æðsti yfirmaður seðlabankans. Innrásin og stríðið í Írak er óþurftarverk og það virðist vera
dragbítur þeim sem studdu það. Þeirra tími er liðinn.
![]() |
Clinton heldur baráttunni áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég ætla að kaupa undanrennuduft
Miðvikudagur, 7. maí 2008

![]() |
Birgðir af undanrennudufti þær minnstu í 10 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Háksólakennari nauðgar börnum sínum"
Þriðjudagur, 6. maí 2008

![]() |
Grunaður um kynferðisbrot gagnvart 5 börnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ríkisstjórnin er í neyslu. Krónan og úrvalsvítalan hækka eftir að botni verður náð.
Þriðjudagur, 6. maí 2008

![]() |
Úrvalsvísitalan lækkar enn frekar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimilin spara ríkisstjórnin þenur útgjöldin um 20%
Þriðjudagur, 6. maí 2008
Það er hið besta mál að heimilin skuli auka sparnað sinn til að mæta yfirvofandi kreppu. En útlagastjórnin sem er á eyðslufylleríi eykur útgjöld sín um 20% og kyndir verðbólgubálið og lætur Davíð seðlabankanum um að slökkva bálið með litlu handslökkvitæki sem á stendur hækkun stýrivaxta. Ekkert ráðuneyti hefur þó vaxið hraðar en utanríkisráðuneytið en áætlað er að það muni eyða 11.800.000.000 á þessu ári! Allt útlit er samt fyrir að sú tala verði miklu hærri, enda finnst útlagastjórninni þetta smásálarlega gagnrýni, miðað við þann gríðarlega árangur sem náðst hafi. Þannig hafi Ingibjörg Sólrún grafist fyrir um rætur langvinns ættflokkarígs í Afganistan. Þetta sé nauðsynleg tómstundaiðja fyrir hana og aðra meðlimi útlagastjórnarinnar til að gleyma efnahagsvandanum hér heima og sífelldu kvabbi um mannréttindabrot á sjómönnum.
Einn stærstu ættflokkanna eru Pastúrar.
Þessi bandaríksa móðir er ósátt við hernaðinn.
![]() |
Heimilin auka sparnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)