Í dag er ég fullur í dag vil ég gefa

Finnst ykkur ekkert bogið við þá stjórnmálamenn sem halda því fram einn daginn að þeir séu fulltrúar ríkis sem býr við velmegun og ríkidæmi og láta allar sparnaðartillögur sem vind um eyru þjóta?  En koma svo eins og heimatrúboðsmenn með þá kenningu að landið eigi að ganga í ESB,  taka risalán og segja okkur til sveitar hjá alþjóðasamfélaginu.c_documents_and_settings_eythor_desktop_blog_is_geir_og_ingibjorg
mbl.is Mjög erfiðir tímar framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Genablöndun manna, hesta og kinda = ?

Otto Jespersen, heldur því fram að að Íslendingar séu afsprengi genablöndunar  sauðfjár, hesta og manna. Þar sé komin skýringin á því hvers vegna Íslendingar hafi komið sér í þetta ótrúlega skuldafen. Fyrir stuttu sagði frægur bandarískur hagfræðingur að ólíklegt væri að fólk sem valið væri með slembiúrtaki úr símaskrá gæti klúðrað fjármálum þjóðarinnar jafn illa og stjórnvöld.  Líklega hefur hann ekki vitað að þjóðin er afsprengi genasplæsingar úr sauðfé, hestum og mönnum.300px-Basic_human_anatomy_labeled sheepman Horseman
mbl.is Norðmenn draga Íslendinga sundur og saman í háði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hommar sem hata homma

Family%201Eitt sinn átti ég nágrana, hjón með tvö ung börn, milli okkar varð nokkur kunningsskapur og fórum við stundum saman í bæinn. Ég veitti athygli kenjum eiginmannsins sem gati ekki hugsað sér að fara á allmarga staði vegna þess að það væri stórhætta á að finna einhverja homma þar. Síðar fluttu hjónin í annað byrðarlag en um tveimur árum seinna hitti ég hana eina á ferð og dapra í bragði. Eiginmaðurinn hafði yfirgefið fjölskylduna og flutt heim til sameiginlegs vinar þeirra, sem kom út úr skápnum á sama tíma.

Myndin tengist ekki viðkomandi fjölskyldu

 


mbl.is Staðfestir ástarsamband við Haider
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Einar Guðfinnsson ábyrgur sjávarútvegsráðherra?

Það var mesta óhappaverk síðustu ríkisstjórnar að setja smábáta í kvóta sem leiddi til mikillar veðsetningar og vandræða í greininni auk brottkasts sem áður var óþekkt á smábátum.  Ég get því ekki verið sammála Einari K. Guðfinnssyni þegar hann lýsir sjálfum sér sem "ábyrgum sjávarútvegsráðherra".  Þá er dapurlegt að hlusta á ráðherrann leggja á ráðin um að auka kvóta. Þegar frændur okkar Færeyingar voru í mikilli efnahagskreppu fóru þeir þá leið að afnema kvótakerfi sem var sambærilegt við það íslenska, þetta leiddi til afnáms brottkasts og velsældar.

Gott fiskveiðistjórnarkerfi gengur út á að taka úr hafinu með hagkvæmum hætti það sem við teljum óhætt. En til þess þurfum við að vita hvað sé í hafinu og það verður ekki gert nema a.m.k. hluti flotans sé í sóknarstýringu.  Þetta eru almenn sannindi sem allir ættu að geta skilið. EKG, kýs að láta sem hann skilji þetta ekki og það er ekki ábyrgt þegar mikið liggur við fyrir íslenska þjóð. juli_2007_blanda_002

 

 Lausn efnahagsvandans hjá Færeyingum fólst í afnámi kvótans.


mbl.is Aukinn þorskkvóti ekki útilokaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn setur sérhagsmuni ofar þjóðarhagsmunum

Geir Haarde blekkti mig í gærkvöldi þegar hann kom fram í Kastljósinu og sagði að hann ætlaði ekki að láta kúga sig og steypa landinu í skuldafen. Þetta fannst mér ábyrg afstaða, svo ábyrg að mér fannst réttlætanlegt í nafni þjóðarsamstöðu að brennuvargarnir  fengju slökkviliðsbúning  og þjóðin stæði saman sem einn maður. Það var mér því áfall að hlusta á Einar K. Guðfinnsson í hádeginu, sem lýsti því yfir að það kæmi ekki til greina að gera neinar breytingar á kvótakerfinu. Þetta segir Einar þó hann viti að sjávarútvegurinn skuldar nú 400% af ársveltu sinni, veiði dragist stöðugt saman og  fjölmörg þorp að leggjast í eyði. ÞjValur á veiðumóðin hefur ekki efni á við þessar aðstæður að viðhalda kerfi sem felur í sér að mörgum milljörðum sé hent í hafið á hverju ári til þess eins að Sjálfstæðisflokkurinn geti þjónað sérhagsmunum.

Þess vegna verður að boða til kosninga sem fyrst.

Valur á veiðum


mbl.is Sjávarútvegurinn skuldum vafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar á þunnum ís og verða að fara varlega

Sigmar stóð sig frábærlega og Geir var ágætur líka. Fortíðin er að
baki,  nú verða Íslendingar að gæta sín og Geir áttar sig á því. Nú blasir alvaran við, jafnvel
Samfylkingunni, sem getur ekki leikið sér eins mikið í 
utanríkismálunum. Við
verðum að styðja stjórnvöld til allra góðra verka hvað sem okkur kann
að þykja um fyrri verk þeirra. Sjávarútvegurinn skuldar nú 400% af ársveltu sinni, vegna kvótakerfisins. Ef kostirnir eru þeir að lifa við þröngan kost eða steypa komandi kynslóðum í skuldafen ríkissjóðs þar sem meira enn fjórða hver króna fer í vexti af erlendum lánum í amk 50 ár, þá vil ég treysta Geir og vonandi flestum stjórnmálamönnum, til að taka rétta ákvörðun. Geri þeir það mun þjóðin standa með þeim.
mbl.is Við munum ekki láta kúga okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn rústar efnahag þjóðarinnar.

Dýralæknirinn og aðrir ráðherrar sjálfstæðisflokksins eru svo sjálfumglaðir að þeir hafa annað tveggja blásið á alla gagnrýni frá virtum hagfræðingum eða í besta falli stungið henni undir stól. Á skandínavískum netmiðlum hafa verið skoðanakannanir um hvort hjálpa eigi Íslendingum með því að lána þeim. Mjög skiptar skoðanir eru um það en jafnvel þeir sem vilja lána okkur segja að Íslendingar ættu að fá hæstu vexti. En hver er ástæða þessa?  Eru "vinir" okkar svona vondir eins og Geir Haarde heldur fram? Dr. Robert Z. Aliber segir þvert á móti að íslensku ríkisstjórninni og seðlabankanum sé ekki treyst. Þar hafi menn ámóta þekkingu á rekstri þjóðarbúsins og stjarnvísindum. Þegar mest á reið að hækka bindiskilduna var hún afnumin! "Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld," segir Aliber".

Einkathotur-rikisstj-geir_1152654354Er sjálfstæðismönnum í ríkisstjórn virkilega fyrirmunað að skammast sín?

Um Samfylkinguna þarf ekki að ræða hún  hefur fjarvistarleyfi enda var leiðtogi hennar að mestu í útlöndum 

 

 

Glaðbeitt á leið úr einkaþotu

 

39aRikisstjornGHHII

 Óhappastjórnin


mbl.is Stjórnvöld skilningslaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Framboð Íslands út í hött"

Nánast allir Íslendingar nema stjórnvöld og þeir embættismenn sem éta úr lófa þeirra, vissu og létu í ljós að framboð Íslands til öryggisráðsins væri ekki bara peningasóun heldur heldur uppskafnings- og spjátrungsháttur. Til hvers ætlar land með 320.000 íbúa að sækjast eftir því að ákveða við hvaða lönd eigi að fara í stríð við? Einkum og sérílagi þar sem landið hefur ekki aðra leyniþjónustu en greiningardeild eða annan her en Hjálpræðisherinn. Kannski hefði eina gagnið verið að halda utanríkisráðherranum og nánustu fylgifiskum í New York. Gallinn var sá að það hefði verið kostnaðarsamt. "Betri er hálfur skaði en allur"
mbl.is Framboð Íslands út í hött?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ríkisstjórnin semja Íslendinga í skuldir og fátækt?

1-SUN%20CITY-MCDONALD-heavy%20burden Sjálfstæðisflokkurinn er ekki aðeins að rústa þjóðfélaginu heldur virðast aðilar þar á bæ vera tilbúnir, til að kaupa sér stundarfrið, í samvinnu við Samfylkinguna,  með því að semja næstu kynslóðir í fátækt og skuldaklafa. Ég held að það væri heiðarlegast að viðurkenna að allt er brunnið sem brunnið getur og því er lýðræðislegast að halda kosningar þannig að almenningur fái að hafa eitthvað um það að segja hvort hann vill veðsetja fiskinn og orkulindirnar.
mbl.is Engin niðurstaða enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á að selja orkuna hæstbjóðanda

Þegar samið var um álverið á Reyðarfirði viku arðsemissjónarmið að einhverju leyti fyrir atvinnusjónarmiðum. En þó verðinu hafi kannski þess vegna verið haldið "leyndu" hefur ýmislegt síast út. Ef álverðið fer niður í rúma 1900 dollara fer Landsvirkjun að tapa á Kárahnjúkavirkjun. Álverðið fór hæst í 3300 dollara en er komið niður í 2100 á þremur mánuðum, þessi þróun má því alls ekki halda áfram  ef ekki á illa að fara. Orkuframleiðslan er í samfélagslegri eigu og það er hagur allra landsmanna að fá sem hæst verð. Þess utan getur ekki verið gott  fyrir Íslendinga að hafa öll eggin í sömu körfunni. Álver á Bakka er sjálfsagt hið besta mál. En hvað ef álverðið lækkar eða nauðsynlegt reynist að loka verksmiðjunni af öðrum orsökum?  Sameiginlegt umhverfismat þýðir að einungis má nota orkuna til álvers og ekki í neitt annað. Hefur einhver reynt að  útskýrahengill_220_2040888460 þetta fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur?
mbl.is Fylgjast náið með niðursveiflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband