Margur verður að aurum api

Sagt er að þessi "drengur" hafi boðist til að vera tálbeita og selja upplýsinngar um vini sína fyrir fé.  Mörgum hefur orðið hált á að selja sál sína fyrir 30 silfurpeninga.


mbl.is Segir Sigurð átt að vera tálbeitu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

19,6%

Hvað ætli það sé nákvæmlega sem þessi 19.6% séu óánægð með? 
mbl.is Icesave eykur vinsældir forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síldin verður vöktuð fram í andlátið.

Svo krökkt er af síld í innanverðum  Breiðafirðinum að hún nær ekki andanum. Það er að nokkru leyti Hafrannsóknarstofnun að kenna því það var að hennar ráðum sem allsherjarráðherrann stöðvaði veiðar í haust og nú jaðrar við umhverfisslysi. Háhyrningar, fuglar og krabbadýr bjarga því sem bjargað verður.  En stjórnvöld hyggjast veitta fjármagni í  vöktun á síldina.  Guði sé lof fyrir að slökkvilið fær ekki fjármagn til að setja vöktun á hús meðan þau brenna.
mbl.is Setja upp vöktun í Kolgrafafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

26. greinin hefur sparað Íslendingum fúlgur fjár.

Þetta voru prófessorarnir Dr. Elvira Mendens og Stefán Már Stefánsson búin að segja. Það hefði annars verið meiri fjandinn að taka upp "collective punishment" gegn þjóð vegna aðgerða fárra. Nú ættu alþingismenn sem deila löggjafavaldinu með forsetanum að óska honum til hamingju.
mbl.is Ísland vann Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragnar Reykás tapar

Góðkunningi spaugstofuáhugamanna, Ragnar Reykás, blikar í samanburði við Steingrím Sigfússon
mbl.is Segir sig úr Vinstri grænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hælisleitendur reyna ítrekað að flýja Ísland en eru oftast handteknir

Mér er óskiljanlegt hvers vegna lögreglan þarf að vera með mikinn viðbúnað til að hafa hendur í hári manna sem ítrekað hafa reynt að flýja Ísland. Þetta er mikið sport hjá nokkrum einstaklingum sem jafnvel hafa sagt í blaða og sjónvarpsviðtölum reyna aftur.  Af hverju er ríkið að reka fangabúðir? Af hverju er fólki sem þess óskar ekki leyft að fara?
mbl.is Hóta að loka höfnum fyrir skipum Eimskips
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann getur þetta

Nú styttist í kosningar og kannski er það þess vegna. En það verður ekki frá Steingrími tekið að þarna sýndi hann betri hliðina og fyrir það er ég þakklátur.
mbl.is „Makríllinn fær ekki ókeypis hádegisverð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skarð

Það verður skarð fyrir skildi þegar Lilja Mósesdóttir hverfur af Alþingi. Fjölmargir stjórnmálamenn í öllum flokkum hafa leitað undir verndarvæng sérhagsmunaafla og kostunaraðila sem stýra fjölmiðlum. Gríðarleg magn aflandskróna í eigu vogunarsjóða ógnar lífsafkomu almennings næstu áratugi ef ekki verður brugðist við. Þessi viðfangsefni eru alvarlegri en svo að þau kalli á populisma og grín í formi "Bjartrar framtíðar".
mbl.is „Mikill sjónarsviptir að Lilju“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilviljun?

Tímatal Maya hofst fyrir 5.125,40 árum og því hefst ný skipan milli jarðar og himingeimsins í dag. Þennan sama dag fyrir óralöngu völdu Freyr Njarðarson (ás) og Gerður Gymnisdóttir (jötunmær) til að gefast hvort öðru og njóta ásta í 9 daga og 9 nætur til að koma á nýrri skipan og hefja nýtt upphaf, jól.

Vonandi verður ný skipan himins og jarðar okkur öllum farsæl.

Gleðileg jól.


mbl.is Upphafi nýrrar hringrásar í tímatali maya fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðildarferlið sett á ís

Meirihluti utanríkismálanefndar leggur málið fyrir þingið.  Tækifæri fyrir VG?
mbl.is „Þarf ekki að koma neinum á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband