Hælisleitendur reyna ítrekað að flýja Ísland en eru oftast handteknir

Mér er óskiljanlegt hvers vegna lögreglan þarf að vera með mikinn viðbúnað til að hafa hendur í hári manna sem ítrekað hafa reynt að flýja Ísland. Þetta er mikið sport hjá nokkrum einstaklingum sem jafnvel hafa sagt í blaða og sjónvarpsviðtölum reyna aftur.  Af hverju er ríkið að reka fangabúðir? Af hverju er fólki sem þess óskar ekki leyft að fara?
mbl.is Hóta að loka höfnum fyrir skipum Eimskips
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bernharð Hjaltalín

Sammála þér, það verður að senda þett lið strax úr landi við fyrsta brot, ég fæ ekki að fara með barnabörnin mín til að skoða skipin og taka mynd af þeim við bryggjuna þó ég sé með yfir tíu ár í siglingum,, kostnaður við þetta dót er komin yfir 200. miljónir á ári.

á meðan er okkur stemt í hættu þar sem öll sjúkrahús eru að loka,

svei svei til Jóhönnu og Steingríms og co

Bernharð Hjaltalín, 25.1.2013 kl. 10:40

2 identicon

Fyrsta brot er við vegabréfsskoðun! Logið um nafn, aldur, jafnvel land og allt gert til að blekkja heimska vesturlandabúa. Allt þetta lið á FIT hefði átt að snúa við á staðnum og ekki hlusta á þetta "hælisleitarkjaftæði". Það vita allir hugsandi menn hvernig þetta lið er. Það er hvorki svelt eða ánauð sem þett fólk flýr.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 25.1.2013 kl. 11:26

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Það er ekki jafn einfalt og maður kynni halda að senda þá úr landi enda ekki víst að það sé í öllum tilvikum ljóst enda ferðast margir á fölskum skilríkjum auk þess að eyðileggja alla pappíra við komu til að ekki sé hægt að senda þá boðleiðir til baka.

Ekki það að endilega ætti að vísa þeim úr landio.

Fyrir ítrekuð innbrot ætti þó vissulega að dæma þá þá og taka það sem vitnisburð þá mál þeirra verða tekin fyrir sækist þeir eftir landvistarleyfi.

"Persona non grata" er síðan mögulegur þar eftir ef vitað er um upprunaland eða síðasta dvalarland.

Ekki er gæfuleg byrjun ef að síbrotamönnum verði veitt hæli þá eða ríkisborgararéttur.

Óskar Guðmundsson, 25.1.2013 kl. 11:30

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hérna á Suðurnesjunum er talað um að þetta lið sé að megninu til "SENT" hingað af skipulögðum glæpasamtökum, enda finnst manni frekar hæpið að fólk í neyð hafi ráð á því að kaupa sér flugmiða fyrir eitt- til tvö hundruð þúsund.

Jóhann Elíasson, 25.1.2013 kl. 12:56

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Er til of mikils ætlast að hælisleitandi skýri satt og rétt frá og virði lög þess lands sem hann sækir um hæli í meðan á umsóknarferlinu stendur? Eða er bara verið að búa til óþörf störf fyrir háskólafólk í stjórnsýslunni?

Sigurður Þórðarson, 25.1.2013 kl. 14:24

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þeir sem koma hingað á fölsuðum pappírum, ljúga til um uppruna sinn, aldur, sögu og hvaðeina, eiga að fá móttökur í samræmi við það. Eina framlag Íslands til þeirra; farseðill til baka.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.1.2013 kl. 16:31

7 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Svo er líka tvískinnungur varðandi "verndina".  Það mætti alveg eins halda því fram að þessir "vesturfarandi leitendur" séu beittir nauðung hérlendis en ekki vernd. 

Kolbrún Hilmars, 26.1.2013 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband