Var logið að ráðamönnum Íslands??

Norðmenn eru felmtri slegnir yfir að Íslendingar hafi verið beittir hryðjuverkalögum af Bretum og Evrópusambandinu og þeir sjálfir hafi tekið þátt í að þvinga íslenska ráðamenn til að skuldsetja þjóðina fyrir skuldir bankanna og að afsala réttinum fyrir hönd íslensku þjóðarinnar til að leita til dómstóla. Þannig hafi Norðmenn aðstoðað ESB til að þrýsta á íslenska ráðamenn til að semja komandi kynslóðir í fátækt. Norska þingið fékk aldrei að vita um málið, þingmenn koma af fjöllum og almenningur er sleginn.

 

Frétt ABC um Hryðjuverkalögin  Hér 

Frétt ABC um afleiðingarnar og þátt Norðmanna:  Hér

 

 


mbl.is Norðmenn lýsa undrun á hryðjuverkalögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þannig hafi Norðmenn aðstoðað ESB til að þrýsta á íslenska ráðamenn til að semja komandi kynslóðir í fátækt.

Þannig mun Ásmundur 6% einnig lýta á málið. Einungis í ljósi þess væri arðbærast til framtíðar að losa okkur við regluverkið ESS og snúa viðskiptum með útflutningaafurðir annað. Innlimuð áður en þetta gerðist hefði þetta harla komist í heimspressuna svosem innan ESB færa fjarfestar[auðhringir] eignir sínar að sinni hentisemi.

Hinsvegar er þjóðin ekki hlutahafar að einkabönkunum og hirðir ekki hagnaðinn þegar vel gengur og ber því tapið þegar illa gengur. [Lándrottnar og hlutahafar].

Hinsvegar ber ábyrgðarmönnum hlutafélaga að leggja reksturinn niður þegar þeir sjá fyrir að hann stefni í þrot. Til að valda hluthöfum og lándrottnum sem minnstum [engum] skaða. Í stöðu Glitnis og Landsbanka [Í upphafi dauðadæmd starfsemi: hefur nú betur sannast]  þá átti slíkt að hafa farið fram minnst tveimur árum fyrir hrunið.  En högnuðust ábyrgðar aðilar á því?  Stjórarnir alls ekki í ljósi þeirra ofurlauna sem þeir telja sér til tekna í hverjum mánuði.  Pólitíkusarnir varla ef þeir vildu ná endurkjöri.

Auðvitað má segja að eftirlits aðilar og stjórnvöld beri vissa ábyrgð að koma ekki í veg fyrir n.

En að þvo hendur sínar og frýja þá sem græddu mest stjóranna og varpa glæpnum á þjóðina lýsir best samtryggingarkerfi spillingaraflanna hér innanlands sem hafa best vit á því hver er þjóðin á sínum tíma. 

ESB tapar engu: aðili í meiri greiðsluerfiðleikum hefur verri samningsaðstöðu í samningum almennt [enga þegar um þrot er að ræða] og ESB er tilfinningalaust viðskiptabandalag háð erlendum auðhringum [fjárfestum].  

Júlíus Björnsson, 14.1.2009 kl. 17:48

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þakka þér að vekja athygli á þessu, Sigurður.

ESB (EBé) er bévítans ofstjórnar- og yfirgangsfyrirbæri.

Líka í merkingunni Übergangsphenomen – það á eftir að líða undir lok.

Norðmenn eru að vonum hvekktir yfir því að hafa sofið á verðinum.

Og Júlíus segir það sem allir sjáandi eiga að vita.

Með góðri heilsan á nýju ári!

Jón Valur Jensson, 15.1.2009 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband