Færsluflokkur: Fjölmiðlar

Komið og smakkið glillaðan makríl

Á sunnudaginn milli 14:00 og 17:00 verður á Ingólfstorgi boðið upp á grillaðan makríl, sem nýveiddur er í íslensku fiskveiðilögsögunni í óþökk Evrópusambandsins. Mætum á sunnudaginn með sól í sinni í þessa ókeypis matarveislu og njótum matarins undir ljúfum tónum.
mbl.is Heimssýn heldur makrílhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkamaður í víngarði Drottins

Ég tók sjálfur þátt í mótmælum, leit reyndar á það sem borgaralega skyldu. Kannski hefði Geir Jón gert það líka ef hann hefði ekki verið önnum kafinn við löggæslustörf. Það var afar fróðlegt og gagnlegt að hlusta á hann ræða málin af hreinskilni í Valhöll. Geir Jón er öðlingur einn af þessum þýðu lögreglumönnum sem vinna sína skyldu en vilja lagið hafa í mannlegum samskiptum. Það er mikil eftirsjá af honum úr lögreglunni en ég vona að hans skarð verði fyllt þó mikið holrúm sé.

Fallegt lag með lögreglukórnum


mbl.is Hreyttu svívirðingum í lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geithafri fórnað?

Lilja Mósesdóttir segir á Feisbók sinni að VG og Samfylking hafi keppst við að gefa veiða atkvæði út á innihaldslaus loforð um breytingar á kvótakerfinu. 

Til að hilma yfir þetta viljaleysi er líklega nauðsynlegt að fórna geithafri eins og gert var til forna.

Jón Bjarnason var nógu hrekklaus til að ganga í gildruna.


mbl.is Hlýtur að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið vill halda viðræðunum áfram.

Leiðari Fréttablaðsins í dag er með hefðbundnu sniði, hvatt til innlimunar Íslands í ESB og t.a.m. vitnað í skoðanakönnun sem blaðið lét gera. Hlutlausar kannanir sýna að mikill meirihluti Íslendinga vill ekki í Sambandið en allir leiðara- og pistlahöfundar Fréttablaðsins verja mestum kröftum sínum í að prédika innlimun landsins í EB. Fréttablaðið er hluti af 365, sem ekki er rekið með hagnaði. Því er tilgangurinn með útgáfu blaðsins sé augljós.


mbl.is Meirihluti vill halda viðræðum áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB setur löndunarbann

Varaformaður sjávarútvegsnefndar ESB: "Gríðarmikið magn miðað við að þjóðin er aðeins 320 þúsund manns"
mbl.is Tilkynnt um löndunarbann á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrengt að tjáningarfrelsi fyrir þinglok

 

 Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur einsett sér að þrengja að tjáningarfrelsi fyrir þinglok.

Blaðamenn eru að vonum áhyggjufullir 


mbl.is Ritskoðun ekki leidd í lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórglæsilegt framtak!

12462728503683Við hljótum öll að fagna því að eina útvarpsstöðin sem ekki er hagsmunatengd skuli hafa eflst svo mjög að hún sé nú af eigin rammleik að opna fréttastofu. Ég treysti því að almenningur muni taka þessu framtaki fagnandi.

Ég sendi Arnþrúði og öllu starfsfólkinu hamingju- og velfarnaðaróskir.

 

 


mbl.is Ný fréttastofa í loftið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru að frétta af hruninu.

Fjárlaganefnd Alþingis var að frétta að Ísland væri í skuldasúpusoup-kitchen-photo
mbl.is Efasemdir um spítalann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handvalin svör

Könnun MMR var mun stærri og því er það ekki rétt sem fram kemur í þessari frétt að könnunin sé birt í heild sinni.
mbl.is Meirihlutinn ánægður með Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar konur breytast í karla

Öngvar konur meðal eigenda fjölmiðla segir í ályktun fjölmiðlakvenna. 

imi_6213Menntamálaráðherra fer með eina hlutabréfið í RUV. Hann hlýtur að vera karl.

Kvótadrottningin í Vestmanneyjum er stundum sögð ríkast einstaklingur á Íslandi og á meðal annars stærstan hlut í Morgunblaðinu. Eitt sinn var hann með börn á brjósti.

Baugsfjölskylduna, sem á 365 miðla þarf ekki að tala um þar eru eintómir karlar. Því til sönnunar get ég nefnt að eiginmaður stjórnarformannsins er Jón Ásgeir.

En það er svo stutt síðan hin kvennalega Lilja Skafta keypti DV að hún gæti ekki hafa umbreyst í karl á svo skömmum tíma.  Það er líka óþarft að gleyma einu frjálsu og óháðu útvarpsstöðinni Útvarpi Sögu sem var síðast þegar ég vissi undir styrkri stjórn Arnþrúðar Karlsdóttur.arnrur_jpg_550x400_q95 

 


mbl.is Fjölmiðlakonur harma átök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband