Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Fagurt galaði fuglinn sá

Jens Stoltenberg stríkur Jóhönnu með hárunum.
mbl.is Segir Ísland á réttri leið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Bjarnason kominn með upp í kok

Laxafræðingurinn Össur Skarphéðinsson sagði ekki múkk þegar Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB lýsti því yfir að Íslendingar gætu ekki gert sér neinar vonir um að fá varanlega undanþágu frá sjávarútvegsstefnu ESB. Þetta þýðir á mannamáli að baráttan nánast alla síðustu öld er til einskis ef landið gengi í Evrópubandalagið. 

Það er gott hjá Jóni Bjarnasyni að stöðva þessa vitleysu strax.


mbl.is Jón vill hætta viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill þingmaður Samfylkingarinnar að ríkið styrki vogunarsjóðina?

Að öllu jöfnu þýðir dómur Hæstaréttar að í gengistryggðum lánum að gjaldeyrisstaða landsins batnar vegna minni skulda og vaxtabyrði til erlendra kröfuhafa. Dómurinn þýðir líka stórauknar tekur ríkisins vegna þess að fyrirtæki sem hafa haft háa fjármagnsliði munu greiða skatta af umtalsverðum hagnaði.Mordur_rnason_____jpg_280x800_q95_jpg_340x600_q95

Þess vegna kemur það á óvart að Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar vilji snúa við dómi Hæstaréttar og skuli bera því við að ósanngjarnt sé að skattgreiðendur borgi skuldir þeirra sem tóku gengislán.

Er nokkur önnur skýring á þessum málflutningi þingmannsins önnur en sú að hann vilji að skattgreiðendur borgi tap erlendra vogunarsjóða sem eiga bankana?


mbl.is Vill verðtryggingu á lánin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kína kastar líflínu til Íslands

c_documents_and_settings_ibm_my_documents_my_pictures_ssur_885375Utanríkisráðherra verður að manna sig upp í að klára fríverslunarsamninginn við Kína sem er búinn að vera nánast tilbúinn í nokkur ár. Hvað er hann að dreyma?euro-logotype

ZZZZ

Fríverslunarsamningur myndi veita veita Íslendingu öfluga stöðugagnvart Evrópusambandinu þegar það reynir að innlima Ísland.

Ef svo illa tækist til að Ísland yrði innlimað í Sambandið myndum við í fyrsta lagi tapa mikilvægum mörkuðum fyrir vörur sem við getum ekki selt í Evrópu.

(Allir fríverslunarsamningar falla niður, og markaðir munu lokast fyrir loðnuhrogn, hvalaafurðir sæbjúgu úthafskarfa ofl ofl.)

Í öðru lagi bannar Evrópusambandið allar veiðar á sjávarspendýrum sem éta 20 sinnum meira en við veiðum.

Í þriðja lagi missum við forræði yfir okkar mikilvægustu auðlind þ.e. fiskinum í hafinu.

Fylgismenn aðildar, virðast ekki vita af þessu og hafa þess utan ekki getað bent á neinn raunverulegan ávinning. Helst hefur verið talað um evru og lægra matarverð en það eru fuglar í skógi, sem erfitt er að sýna hvað þá að handsama.


mbl.is Gjaldeyrissamningur við Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollendingar vita að Íslendingar geta ekki borgað Icesave

Þó hluti ríkisstjórnarinnar telji að það sé leikur einn að greiða Æsseif þá vita Hollendingar betur.En hvers vegna er Bretum og Hollendingum svona mikið í mun að plata Íslendinga til að skrifa undir skuldbindingar sem þeir geta augljóslega aldrei greitt? 

Svarið liggur í augum uppi þeir vilja að Íslendingar greiði með því eina sem þeir eiga þ.e. auðlindirnar. 


mbl.is Íslendingar „geta ekki borgað Icesave"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru laun Más kjarni efnahagsvandans?

45f6b23468381e614fb23b0dcf6c8268_300x225 Ég hef takmarkaðar áhyggjur af því hvort Már Guðmundsson er með 400.000 kr meira eða minna í laun. Hitt er verra að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn sem stjórnar Seðlabankanum í reynd telji að það þurfi að kæla hagkerfið á Íslandi með háum stýrivöxtum.
mbl.is Breytt að ósk ráðuneytis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland framleiðir ekki fyrir vöxtunum

Vaxtastefna sem kennd er við  seðlabankans en í raun stjórnað er af AGS þýðir að Ísland framleiðir ekki fyrir vöxtunum. Þetta þýðir á mannamáli að skuldastaða Íslands versnar með hverjum degi sem haldið er áfram á þessari braut.

 


mbl.is Hefur kostað yfir 350 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarnir spila enn í lottó.

Alfur Seðlabankinn hefur fundið að því við bankna að þeir séu enn að taka ólöglega áhættu í viðleitni til að vinna upp tak undanfarina ára. SÁÁ er með meðferðarúrræði við spilafíkn en deildin er rekin m.a. fyrir sölu á álfinum.
mbl.is Bankarnir uppfylla ekki reglur FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja frumleg og áræðin

_H6L9037_ppÉg ætla ekki þykjast hafa vit á efnahagsmálum en við mjög erfiðar aðstæður þarf fagfólk með ferska hugsun og þor. Allt þetta hefur Lilja Mósesdóttir til að bera.

En jafnvel meðalskussi eins og ég veit að hækkun launatengdra gjalda og verulegar uppsagnir stuðla að dýpkun kreppunnar og jafnvel hruni og þar með minni skattstofnum.  Þegar öllu er á botninn hvolft þá er vandamlið það að við eyðum meir en við öflum.

Jón Bjarnason heldur á töfrasprotanum sem gæti leyst þetta mál með því að leyfa aftur  frjálsar handfæraveiðar.  DSC01549


mbl.is Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er stefnt að því að lifa á lánum

Íslenskir stjórnmálamenn fara um heimsbyggðina með betlistaf og bera fyrir sig blankheitum.

Á sama tíma berast fregnir um að Alþingi sé í óða önn að efla eftirlitiðnaðinn og veiðileyfaumstang í hvalveiðum jafnframt því sem komið verður í veg fyrir veiðar í sumar. 

Stjórnvöld verða að átta sig á að meiri umsvif hins opinbera samhliða minni tekju- og gjaldeyrisöflun er óheppileg þróun. 


mbl.is Óvissa um hvalveiðar vegna lagafrumvarps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband