Lilja frumleg og áræðin

_H6L9037_ppÉg ætla ekki þykjast hafa vit á efnahagsmálum en við mjög erfiðar aðstæður þarf fagfólk með ferska hugsun og þor. Allt þetta hefur Lilja Mósesdóttir til að bera.

En jafnvel meðalskussi eins og ég veit að hækkun launatengdra gjalda og verulegar uppsagnir stuðla að dýpkun kreppunnar og jafnvel hruni og þar með minni skattstofnum.  Þegar öllu er á botninn hvolft þá er vandamlið það að við eyðum meir en við öflum.

Jón Bjarnason heldur á töfrasprotanum sem gæti leyst þetta mál með því að leyfa aftur  frjálsar handfæraveiðar.  DSC01549


mbl.is Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Rétt hjá þér, Lilja er sennilega eini sanni þingmaðurin á þingi sem er fylginn sjálfri sér og sínum skoðunum!!!

Guðmundur Júlíusson, 23.5.2010 kl. 23:59

2 identicon

Já það er hárrétt hjá þér að eitt af aðal vandamálum Íslands í dag er að ríkið eyðir mun meir en það aflar. Það verður að skera niður og/eða hækka skatta, og ef pólitíkusar segja eitthvað annað, þá er það ábyggilega bara til þess að fá atkvæði. Fólk þarf að vera raunsætt, og sjá í gegnum vitleysuna og skilja vandann. Viljum við virkilega vera háð erlendum lánum, t.d. frá AGS? Nei, amk ekki ég, og þess vegna þarf að fylla upp í 100 milljarða fjármálagat ríkissins. Þetta er erfitt mál, og það mun krefjast mikils af íslendingum, en ef einhver þjóð á að geta gert þetta þá eru það við.

Bjarni (IP-tala skráð) 24.5.2010 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband