Ólafur F. Magnússon lætur verkin tala, góðar fréttir úr borginni

Ólafur F. Magnússon lætur ekki sitja við orðin tóm. Í dag var hrundið í framkvæmd aðgerðaáætlun til fegrunar höfuðborgarinnar, með sérstakri áherslu á miðbæinn að hans frumkvæði. Íbúar borgarinnar eru hvattir til að taka virkan þátt í þessu átaki og láta vita hvar skórinn kreppir. við viljum öll geta verið stolt af höfuðborginni okkar. Þetta átak fer vel af stað. Guð láti gott á vita. austurvollurselfoss-midbaer-skyring1Mynd_0167123

 

 


mbl.is Vilja bæta ásýndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk fyrir heimsóknina og athugasemdina Ingi, ef þú hlustar á fréttina heyrir þú að þetta átaksverkefni er hafið.  Þú getur strax séð einhverjar breytingar á húsum t.d. þar sem málað hefur verið yfir veggjakrot.

Sigurður Þórðarson, 3.4.2008 kl. 18:39

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Við skulum bara vona að verkin kjafti frá sem flestu

Ásdís Sigurðardóttir, 3.4.2008 kl. 22:21

3 Smámynd: Jens Guð

  Ólafur F.  er maður athafna en ekki einungis orða.  Þegar hann beitir sér í einhverjum svona málum þá eru þau tekin föstum tökum.  Það er meðal annars þess vegna sem við kusum hann.

Jens Guð, 4.4.2008 kl. 00:27

4 Smámynd: Kolbrún Jónsdóttir

Ég vona svo sannarlega að þetta skref í rétta átt skili góðum árangri. Ég er mjög ánægð umfjöllunina sem komin er um þetta efni.  Það er verið að ýta við Íslendingum, ekki veitir af.  Við verðum að geta sýnt ferðamönnum höfuðborgina okkar með stolti.

Kveðja frá Evrópu

Kolbrún Jónsdóttir, 4.4.2008 kl. 16:23

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ásdís, Jens og Kolbrún, takk fyrir athugasemdirnar sem ég er sammála og  tek heilshugar undir.

Sigurður Þórðarson, 5.4.2008 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband