Hneykslanleg kvennsemi Krisjáns Hreinssonar!

GGH8M8QP

 

Kvennahylli Kristjáns rómuð er

komast færri en vilja,

í kjörklefana  kvennaher

að krossa og hjarta hans ylja.

 

Kristjáni, heillaskáldi úr Skerjafirðinum er  óskað velfarnaðar í prófkjörsbaráttunni. 

 

Framboð Kristjáns flestir hér
fyrirgefa honum
en dæmalaust hann dáður er
og dýrkaður af konum.


mbl.is Sækist eftir 4. sæti í forvali VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Sigurður Þorsteinsson, 12.1.2010 kl. 11:23

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

gef mér að hann sé í réttu liði

Jón Snæbjörnsson, 12.1.2010 kl. 14:16

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Siggi! Hvað ertu að drekka? Andskotinn! Kanski ertu frelsaður sem er náttúrulega það sama og að vera á skallanum.

Að vísu er VG allt upp og niður bara jarðarfaramatur. Enn þú mátt ekki rugla málum saman svona. kanski hann sé með 10 hjákonur og ég bara tvær!

Ekki kýs ég manninn. bara af því að hann er með ranghugmyndir og þarf að fara til læknis út af því.

Ekki út af hversu mörgum kellingum hann ríður. Það má öllum vera sama um og hans einkamál.

Endilega færa pólitískar umræður á eitthvað annað plan enn þetta rugl... hann er þá alla vega heilbrigður að þessu leyti finnst mér..Það er til neitt hneyksli Siggi...og hefur aldrei verið till...

Óskar Arnórsson, 12.1.2010 kl. 18:07

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

..það er ekki til neitt hneyksli...átti þetta að vera...

Óskar Arnórsson, 12.1.2010 kl. 18:09

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Skáldin hafa oft leitað uppi hin ýmsu ráð til að finna kvenseminni árangursríkan farveg. Til dæmis hann Ólafur maskínuskáld. Stefán Jónsson segir frá honum í bókinni "Mínir menn." Ólafur var mótoristi á hinum ýmsu bátum í "Vermannahöfn" og átti eitt kvæði í fórum sínum sem hann hafði ort til stelpu sem hann var skotinn í þá stundina.

Ekki þurfti Ólafur að flytja stepunni kvæðið nema einu sinni áður en hún bauð honum undir sængina. Þegar því sambandi lauk greip Ólafur til kvæðisins næst þegar hann komst í næði hjá annari stelpu sem honum þótti mikið liggja við að fá gistingu hjá. Ólafur þurfti ekki annað en breyta nafni þar sem konan var nefnd í lok einnar línu.

Og svona gekk þetta þar til kvæðið lærðist í slitrum hjá hinum ýmsu meyjum Vermannahafnar og hætti að virka þegar hann hóf lesturinn í eyra stepu nokkurrar sem lært hafði slitur úr kvæðinu hjá vinkonu sinni sem Ólafur hafði sofið hjá. Eftir þann kinnhest dró að mun úr kvenhylli Ólafs maskínuskálds í Vermannahöfn.

Kristján Skerjafjarðarskáld, nágranni dóttur minnar og tengdasonar í Einarsnesinu (síðast þegar ég vissi) er hraðkvæður. Hann mun hitta margar grænklæddar álfkonur á nýhafinni vegferð inn í pólitískt eftirlaunaöryggi. Ekki munar hann neitt um að ríma ljóð í hvert sinn er hann þarf að bræða næm og rómantísk hjörtu kvenna af hinu óliíkasta standi.

Það er svo hans vandamál ef hann lendir í basli við reiða eiginmenn eða vonbiðla viðkomandi fónarlamba. 

Árni Gunnarsson, 12.1.2010 kl. 18:31

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.1.2010 kl. 19:21

7 Smámynd: Hannes

Mér finnst það sem fólk gerir í kvennamálum eigi að vera þeirra vandamál.

Hannes, 12.1.2010 kl. 22:55

8 Smámynd: Óskar Arnórsson

Kvennsemi er ekki vandamál, það er eiginleiki Hannes...

Óskar Arnórsson, 13.1.2010 kl. 00:26

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Karlinn er flottur, say no more.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.1.2010 kl. 01:02

10 Smámynd: Hannes

Óskar kvennsemi er stórvandamál og gefur manni fullt af veseni.

Hannes, 13.1.2010 kl. 01:06

11 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég elska stórvandamál og vesen Hannes. Áshildur er strax ástfanginn!

Óskar Arnórsson, 13.1.2010 kl. 01:16

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Takk öllsömun.

 Hannes og Óskar, ekki taka mig of alvarlega líklega er ég meira öfundsjúkur en hneykslaður.

Sigurður Þórðarson, 13.1.2010 kl. 09:59

13 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jón, þú gefur þér að hann sé í "réttu liði". Ég leyfði mér að slá á létta strengi og  ætla nú ekki að fara blanda flokkapólitík eða æsseif inn í þetta.

Málið er ekki flóknara en það að ég er búinn að kannast við Kristján lengi og veit að hann vill láta gott af sér leiða. 

Sigurður Þórðarson, 13.1.2010 kl. 10:09

14 Smámynd: Hannes

Sigurður það er óþarfi að öfunda hann. Það er frekar að vorkenna honum að vera svona háður þeim.

Hannes, 13.1.2010 kl. 19:41

15 Smámynd: Auður Matthíasdóttir

Aumingja Kristján er svooo bitur kommi að það er næstum pínlegt.  Kvenhylli hvað?  Sést ekki a.m.k. frá mínum bæjardyrum!  (er mjög næm fyrir karlmannlegri fegurð)

Siggi!  Þú ert miklu sætari.. 

Auður Matthíasdóttir, 23.1.2010 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband