Reynum að koma í veg fyrir landflótta

Verkefni dagsins hlýtur að vera að vernda atvinnuna og auka tekjur. Atvinna fólksins sem er á vinnumarkaði í dag er jafn mikilvæg og nýrra fyrirtækja. Opinberir starfsmenn eru ekki of haldnir af launum sínum en ég er ósammála Lilju Mósesdóttur um að tekjufall þeirra sé ef til vill meira en á almennum markaði. Taxtahækkanir hafa kannski verið hærri en öll vinna á frjálsum markaði er mun ódýrari, nema ef vera skyldi hjá skilanefndum bankanna.  Ágæt grein hér
mbl.is Óttast landflótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færeyingar og Íslendingar sameinist!

Davi%C3%B0_Oddsson_og_Halld%C3%B3r_%C3%81sgrimsson-1Nú er allt útlit fyrir að Danir muni greiða atkvæði gegn hagsmunum Færeyinga í þágu Evrópusambandsins með því að gera málamiðlun um hvalveiðar.  Vinir okkar Færeyingar eru æfir út í Dani fyrir þennan lúgahátt.  Við eigum að sameinast Færeyingum og fela þeim stjórn sjávarútvegs- og efnahagsmála sem þeir ráða mun betur við.

 Færeyskir stjórnmálamenn spretta úr atvinnulífinu og skammast sín ekki fyrir að spyrða fisk  ef engin eftirspurn er eftir þeim lengur, ólíkt íslenskum stjórnmálamönnum sem krefjast þess að verða sendiherrar eða seðlabankastjórar. Þetta ráðslag Íslendinganna þenur út utanríkisráðuneytið og hvetur til þess að sótt sé um aðild að öryggisráðinu þó það sé dýrt og Evrópusambandinu þó þjóðin tapi  á því.   c_documents_and_settings_andres_jonsson_my_documents_kratabloggi_kratabloggsmyndir_isg_og_evropa


mbl.is Færeyingar æfir út í Espersen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband