Færsluflokkur: Spil og leikir
Geggjaður borgarstjóri!
Sunnudagur, 27. apríl 2008
Hann er alveg geggjaður borgarstjóri þessi Ólafur F. Magnússon:
- Hann týnir engum minnismiðum en týnir þess í stað rusl til að gera umhverfið snyrtilegra.
- Á þeim stutta tíma sem hann hefur setið hefur hann skorið upp herör gegn niðurníðslu miðbæjarins, sem staðið hefur í allt of mörg ár og sumir telja stafa af slugsi en aðrir jafnvel að sé úthugsuð.
- Hann er líður engin mannréttindabrot og ekki heldur að búa til mannfrekt og fokdýrt apparat, til að sliga þrautpínda skatt- og útsvarsgreiðendur á samdráttartímum.
- Þegar borgarstjóri heldur því fram að lög verði ekki brotin varðandi Fríkirkjuveg 11. þá treystir fólk því.
Ekki farið á skjön við lög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Enn er ríkisendurskoðun svívirt, misnotuð og nauðgað!
Miðvikudagur, 26. mars 2008
Ríkisendurskoðun hefur nú gefið Þróunarfélagi Keflavíkur "syndakvittun", eins og henni var ætlað að gera. Átti virkilega einhver von á öðru en að ríkisendurskoðun, sem er endurskoðandi reikninga Þróunarfélagsins gefi út umbeðið vottorð á eigin verk? Ekki trúi ég því en samt er þessu slegið upp sé frétt. Það virðist vera komin hefð á að ef eitthvað vafasamt er á ferðinni, sem stjórnmálamönnum þykir óþægilegt er ríkisendurskoðun kölluð til og látin gefa út syndakvittun t.d. þegar farið er yfir á fjárlögum. En svo eru auðvitað tilfallandi neyðartilvik eins og þegar ríkisendurskoðun var látin leggja blessun sína yfir sölu á 45,8% hlut í Búnaðarbankanum til Eglu og síðar hæfi Halldórs Ásgrímssonar við söluna árið 2005, sem ríkisendurkoðnun staðfesti.
Grímseyjarferjumálið var bara smotterí fyrir ríkisendurskoðun að skúra.
Ekki skylda að bjóða eignir út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hvar er íslenski hermaðurinn?
Þriðjudagur, 25. mars 2008
Enn hart barist í Basra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gríðarlega árangursrík ferð
Miðvikudagur, 19. mars 2008
Það er sannarlegar vert að óska Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og íslensku þjóðinni innilega til hamingju með gríðarlega árangursríka ferð hennar til Afganistan. Þjóðfélagsástanið þarna er mjög flókið og litast af gömlum ættflokkaríg og það er ekkert áhlaupaverk að setja sig almennilega inn í það. Sjá meðfylgjandi mynd :
Áhrifasvæði ættflokkana eru merkt með mismunandi litum.
Það þarf enginn að reikna með því að hægt sé að setja sig inn í málin í einni ferð en önnur ferð verður vonandi farin sem fyrst. Ingibjörg reyndi að fá Hamid Karzai forseta til að styðja aðildarumsókn íslands að öryggisráðinu og hann var til í að hugleiða málið.
Utanríkisráðuneytið óx mikið í tíð Halldórs Ásgrímssonar en Ingibjörg fer vel af stað og það er engin ástæða til að ætla að hún muni standa sig verr.
Ferðin árangursrík" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Útrásin á krít - Kauphöllin hrynur - Árangur í Afganistan
Miðvikudagur, 19. mars 2008
Ríkisstjórnin hlustaði ekki á ráðleggingar OECD, sem hvöttu til aðhalds í rísfjármálum og að skattalækkunum yrði frestað. Davíð í seðlabankanum var skilinn einn eftir með vandann sem alnafni hans í forsætisráðherrastól skóp. Sameign þjóðarinnar hefur verið veðsett í útlöndum og Íslenska þjóðarbúið skuldar 1800 milljarða umfram eignir. Gengið heldur áfram að falla og bensínið hækkar örugglega aftur í kvöld. Góðu fréttirnar eru þær að Ingibjörg Sólrún er orðin margs vísari um rót gamalla deilumála milli ættflokka í Afganistan og gerir sér vonir um að ríkisstjórnin muni styðja aðild Íslands að öryggisráðinu. Samt vona ég innst inni að Afganir gerið það ekki því betra væri að nota peningana í að borga skuldir en fyrir setu í ráðinu
Neider Muhammed er stoltur af sverðinu
Þessir afgönsku lögreglumenn í Kabúl höfðu aldrei heyrt talað um öryggisráðið en eru samt til í að styðja Ingibjörgu í það.
Hrun í kauphöllinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt 20.3.2008 kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Af hverju ganga Íslendingar ekki í Noreg?
Laugardagur, 15. mars 2008
Refsivert að aðstoða skattayfirvöld - Mega skattayfirvöld stuðla að lögbrotum?
Miðvikudagur, 12. mars 2008
Gefin hefur verið út alþjóðleg handtökuskipun á hendur manninum sem stal trúnaðarupplýsingum og seldi þær til skattayfirvalda. Þetta mál vekur upp siðferðilegar spurningar t.d.:
Á að refsa manni fyrir það eitt að koma upp um refsiverðan verknað? (skattsvik)
eða
Er það verjandi að opinber skattayfirvöld, skipti við glæpamann og kaupi stolin gögn?
Hvað finnst ykkur?
Liechtenstein gefur út handtökuskipun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Óvinsæll seðlabankastjóri
Þriðjudagur, 11. mars 2008
Óvinsæll seðlabankastjóri |
Íslenska utanríkisráðuneytið slær á ótta talibana!
Miðvikudagur, 5. mars 2008
Svo sem kunnugt er stóð Talibönum mikil ógn af íslenska jeppagenginu, því er sérkennilegt svo ekki sé meira sagt að draga úr þessum mikla þrýstingi með því að senda óvopnaða menn í borgaralegum klæðum. Var Björn Bjarnason hafður með í ráðum?
Ógnvænlegur íslenskur friðargæsluliði.
Íslenskir friðargæsluliðar sendir til Afganistans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |