Færsluflokkur: Menning og listir
Ingibörg Sólrún staðhæfir að úrskurður mannréttindanefndar S.Þ. sé ekki úrskurður
Sunnudagur, 1. júní 2008
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Guðni Ágústsson fái málfarsverðlaun.
Miðvikudagur, 28. maí 2008
Ég geri það hér með að tillögu minni að Guðni Ágústsson fái málfarsverðlaun:
Samfylkingin sveik alþýðuna hún ætlaði að vera turninn sem stæði vörð um lífskjör almennings. Nú hvílir Samfylkingin rjóð og undirleit í faðmi Sjálfstæðisflokksins, blessuð litla stúlkan. Samfylkingin hefur forðast það svæði í pólitíkinni sem jafnaðarmenn á Norðurlöndum varða svo vel, Samfylkingin nefnir sjaldan láglaunastéttirnar, verkakonuna, sjómanninn og bóndann. Samfylkingin vill vera og er flokkur hinnar menntuðu elítu. Þess vegna hefur skírskotun Ingibjargar Sólrúnar verið að þrengjast. Við framsóknarmenn munum stilla upp til sóknar á skákborði okkar öflugri sveit karla og kvenna sem mun verja hagsmuni hins almenna borgara á Íslandi,"
Ríkisstjórn brostinna vona | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
59,4% sjálfstæðismann vilja fugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni.
Þriðjudagur, 27. maí 2008
Á sínum tíma þegar kosið var um veru flugvallarins í Vatnsmýrinni reyndist naumur meirihluti fyrir því að flytja flugvöllinn. Reyndar var málið illa kynnt og kosningaþátttaka var svo lítil að hún taldist ekki bindandi. En eftir því sem málið hefur verið rætt betur og fleiri fletir komið í ljós hefur stuðningur við áframhaldandi veru flugvallarins í Vatnsmýrinni vaxið. Aðrir staðir á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki staðist öryggiskröfur að mati flugmanna. Það er augljóslega hagræði að innanlandsflugið sé nálægt stjórnsýslunni og öryggisatriði að hann sé skammt frá hátæknisjúkrahúsi. Mikill og vaxandi meirihluti Reykvíkinga sem áttar sig á þessu, getur verið þakklátur Ólafi F. Magnússyni fyrir að standa fast við þetta kosningaloforð F-listans. Þar með meirihluti sjálfstæðismanna, sem eru sama sinnis, en ný foringjaefni flokksins, þau Hanna Birna og Gísli Marteinn, sem ganga ekki í takt við 59,4% kjósenda flokksins. Væntanlegur foringi flokksins mun ekki geta gengið þvert á vilja meirihluta kjósenda sinna. Meðal kosta flugvallarins eru: Aðflug af hafi, bestu veðurskilyrði, öryggisatriði vegna sjúkraflugs og þægindi vegna nálægðar við stjórnsýsluna.
Meðal kosta flugvallarins eru: Öruggissjónarmið og þægindi.
Meirihluti vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kreppan heldur innreið sína innan tíðar.
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Ótvíræð merki um að eftirspurn er að dragast saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Velheppnað Íraksstríð endurtekið annarsstaðar
Fimmtudagur, 22. maí 2008
Löngu áður en breska og bandarísku leyniþjónusturnar ákváðu að ljúga því að Írakar væru með gereyðingavopn og gætu gert mannskæða árás á Vesturlönd innan 45 mínútna hafði lítil hirð í kring um Búsk ákveðið að koma á lýðræði í Miðaustulöndum með vopnavaldi og var talað um að breiða út kristni í því sambandi. Það var því hvorki tilviljun né mismæli hjá Búsk að tala um "krossferð gegn Írak" eins og hann gerði fyrsta sólarhringinn, muslimum til mikillar skelfingar. Nú þegar breski utanríkisráðherrann strýkur og hjalar við Condoleezzu Rice, hlýtur hún að mala.
Útstilling á David Miliband, við sjávarsíðuna.
Úbreiðsla lýðræðis besta ráðið gegn hryðjuverkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sægreifinn: Útlendingar sólgnir í hrefnukjöt
Miðvikudagur, 21. maí 2008
Ég brá mér í Sægreifann um daginn með tvo gesti frá Kóreu , sem ég bauð í mat og þeir völdu humarsúpu og hvalkjöt, sem þeim fannst hið mesta lostæti. Ég var svo heppinn að sjálfur sægreifinn var þarna á staðnum og upplýsti hann okkur um að flestir útlendir gestir spyrðu einmitt fyrst um hvalkjöt, sem ekki er furða því það er sannkallað heilsufæði sem Kjartan matreiðir af hreinni snilld. Í eftirrétt fengum við vel kæstan hákarl sem menn renndu niður með brennivínstári Í slútið skenkti Sægreifinn okkur Rauðu Eðalginseng þykkni Kóreumönnunum til óblandinnar ánægju. Síðan keyrði ég Kóreumennina til Selfoss þar sem þeir gistu. Það þarf ekki að orðlengja það að daginn eftir vöknuðum við eldsprækir og skoðuðum náttúruperlur uppsveita Árnessýslu.
Takk fyrir mig kæri eini og sanni sægreifi!
Og hér með skila ég allra bestu kveðjum og þakklæti frá Kóreubúnum sem segja að þetta hafi verið toppurinn á Íslandsheimsókninni.
Fyrsta hrefnan veidd á Faxafló | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sjómenn segja sig úr Samfylkingunni
Þriðjudagur, 20. maí 2008
Ég hitti nokkra gamla skólabræður mínu úr Stýrimannaskólanum í hádeginu í dag. Það er alltaf glatt á hjalla þegar við hittumst, sem reyndar er ekki nógu oft, en tilefnið í dag var sérlega ánægjulegt: Nýútgefinn veiðikvóti á hrefnu en einn okkar er einmitt hrefnuveiðimaður. Umræddur félagi okkar hafði stutt Samfylkinguna og átti greinilega bágt þegar talið barst að skilningsleysi ráðamanna á þeim bæ gagnvart þessari atvinnugrein. Ég finn til með honum og öðrum betur meinandi samfylkingarmönnum við þessar aðstæður. Hann upplýsti okkur félagana þá um að ef það kæmi í ljós, innan 30 daga, að áhugi forystunnar á mannréttindum íslenskra sjómanna yrði fyrir borð borin myndi hann yfirgefa flokkinn og bauð hann velkominn í FF, þar sem honum á eftir að líða betur. Svipaða sögur hef ég heyrt viða af landsbyggðinni hjá sjómönnum og fjölskyldum þeirra.
Sjálfur þekki ég það að um allt land er mikill fjöldi ærlegs alþýðufóls sem stutt hefur Samfylkinguna og á fátt sameiginlegt með forystumönnum flokksins, sem skirrast ekki við að fórna hagsmunum sjómanna og landsbyggðarinnar allrar í þágu jafn fáfengilegs markmiðs og að komast í öryggisráðið.
Hagsmunaaðilar fagna hrefnuveiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Háksólakennari nauðgar börnum sínum"
Þriðjudagur, 6. maí 2008
Grunaður um kynferðisbrot gagnvart 5 börnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimilin spara ríkisstjórnin þenur útgjöldin um 20%
Þriðjudagur, 6. maí 2008
Það er hið besta mál að heimilin skuli auka sparnað sinn til að mæta yfirvofandi kreppu. En útlagastjórnin sem er á eyðslufylleríi eykur útgjöld sín um 20% og kyndir verðbólgubálið og lætur Davíð seðlabankanum um að slökkva bálið með litlu handslökkvitæki sem á stendur hækkun stýrivaxta. Ekkert ráðuneyti hefur þó vaxið hraðar en utanríkisráðuneytið en áætlað er að það muni eyða 11.800.000.000 á þessu ári! Allt útlit er samt fyrir að sú tala verði miklu hærri, enda finnst útlagastjórninni þetta smásálarlega gagnrýni, miðað við þann gríðarlega árangur sem náðst hafi. Þannig hafi Ingibjörg Sólrún grafist fyrir um rætur langvinns ættflokkarígs í Afganistan. Þetta sé nauðsynleg tómstundaiðja fyrir hana og aðra meðlimi útlagastjórnarinnar til að gleyma efnahagsvandanum hér heima og sífelldu kvabbi um mannréttindabrot á sjómönnum.
Einn stærstu ættflokkanna eru Pastúrar.
Þessi bandaríksa móðir er ósátt við hernaðinn.
Heimilin auka sparnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Málefnasamningurinn áréttaður
Mánudagur, 5. maí 2008
Í málefnasamningi núverandi meirihluta er kveðið á um að á kjörtímabilinu skuli ekki unnið að því að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Þetta vissu skosku arkitektarnir ekkert um, þvert á móti virðast þeir hafa haft hugboð um að flugvöllurinn ætti að fara. Það voru einungis 3 Íslendingar í dómnefndinni en þeir voru í stafrófsröð: Dagur B. Eggertsson, Gísli Marteinn Baldursson og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Ætli að sé ekki örugglega tilviljun að þessir þrír einstaklingar sem valdir voru af handahófi og allir eru yfirlýstir andstæðingar flugvallarins skyldu einmitt velja þessa skrýtnu tillögu og veita henni fyrstu verðlaun? Við skulum kalla hlutina réttum nöfnum, verðlaunin voru pólitísk úthlutun.
Ólafur segist ekki hafa skipt um skoðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |