Færsluflokkur: Bækur
Vitinu komið fyrir Æsseifsinna?
Laugardagur, 5. desember 2009
Nú virðast stjórnarsinnar hafa fallist á að kanna málstað Íslendinga gegn því að sátt verði um þingstörfin. Ekki eru allir á eitt sáttir á þetta. Meðfylgjandi mynd er af æstum Æsseifsinna sem vill ekkert gefa eftir.
Samkomulag um afgreiðslu Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Naumur meirihluti skuldbindur kornabörn
Miðvikudagur, 2. desember 2009
Það er greinilegt að flokkarnir eru búnir að koma Æsseif í einhverja þrjósku sín á milli. Hagsmunir þjóðarinnar verða að víkja vegna þess að flokkarnir vilja hefna sín hver á öðrum. Fyrir liggur að Bretar og Hollendingar hafa hossast á Íslendingum. Margir telja að Samfylkingin vilji samþykkja hvaða skuldbindingar sem er til þess að þröngva þjóðinni í ESB. Samfylkingin hótar Vinstri grænum og Vinstri grænir vilja ekki fórna "vinstri stjórn" og eru tilbúnir að "selja ömmu sína" eins og sagt er til að halda völdum. Þá eru bæði Samfylkingin og VG sárir sjálfstæðismönnum fyrir að hafa setið hjá eftir að síðustu samningar voru lagað'ir af þessum flokkum.
Sameiginlega réttlæta ríkisstjórnarflokkarnir þessa afleitu samninga með því að fulltrúar ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks skrifuðu einhverja minnismiða í fáti.
Engu máli virðist skipta að Íslendingar geta að öllum líkindum ekki greitt þessar skuldbindingar og mikil hætta er á að þeir missi sjálfstæði sitt. Takist að borga þessar skuldbindingar þýðir það í besta falli fátækt og landflótta. Geggjunin er slík að vangaveltur færustu lögspekinga um hvort Æsseif brjóti gegn stjórnarskránni er ekki einu sinni rædd.
Þessu máli þarf að skjóta til þjóðarinnar sem ætlað er að borga.
Þingfundur þar til mælendaskrá er tæmd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hanna Birna í boði Landsbankans
Þriðjudagur, 1. desember 2009
Það er skýlaust brot á vanhæfisreglum stjórnsýslulaga og merki um pólitíska spillingu að Hanna Birna Kristjánsdóttir skuli hafa tekið ákvörðun um staðsetningu Listaháskóla við Laugaveg enda er upplýst að hún þáði peninga frá Landsbankanum. Ef einhver siðvæðing hefur átt sér stað ætti hún líka að ná til Reykjavíkurborgar. Sennilega er Ólafur F. Magnússon eini borgarfulltrúinn sem skilað gæti siðferðilegu heilbrigðisvottorði ef slík vottorð væru gefin út.
Vill að Hanna Birna víki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Skuldsetniga bautasteinn
Þriðjudagur, 1. desember 2009
Hávamál segja okkur að menn lifi í verkum sínum eftir sinn dag hvort sem þau eru til góðs eða ills.
Mér líst vel á bautastein um hvernig þingmenn greiða atkvæði en ekki endilega skussabautastein. Hættan er sú að hégómlegir þingmenn vilji komast á svona stein þó það hafi verið fyrir óþurftarverk.
Nær væri að geta allra og kannski ekki síst þeirra sem greiða atkvæði gegn Ísklafanum.
Vilja minnisvarða um samþykkt Icesave | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Ólygin sagði mér" Skorum á forsetann
Mánudagur, 30. nóvember 2009
14.300 manns hafa skráð sig á www.indefence.is - Við þurfum að ná 23 þús manns til að hafa 10% af kjósendum sem er viðmið í frumvarpi um þjóðaratkvæði. Íslendingar - koma svo, ná í 9000 manns í viðbót -!!!!
Steingrímur hagar sér eins og kjaftakerling segist vita leynilegar ástæður þess að skrifa eigi undir Æsseif. Rétt eins og læknir sem segir sjúklingi að það eigi að taka af honum fótinn en sjúklingurinn megi ekki vita af hverju.
Verður að klára Icesave af ótilgreindum ástæðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mögnuð bloggfærsla um óttann sem stjórntæki
Laugardagur, 28. nóvember 2009
Lesið þessa upplýsandi færslu um óttann og Samfylkinguna hér!
Samfylking með prófkjör í Mosfellsbæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áskorun til forseta Íslands
Föstudagur, 27. nóvember 2009
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bjúgverpill og hrunadans Myndband
Föstudagur, 27. nóvember 2009
Heimatilbúnir og tímabundnir erfiðleikar eru notaðir sem skálkaskjól til að ganga á framtíðna og fórna náttúruperlum og skerða þannig lífsgæði afkomenda okkar. Léttúðleg skuldsetning komandi kynslóða getur hæglega leitt til þess að þjóðin missi forræði á auðlindum sínum. Viðeigandi orð veruleikafirring og vanhæfni, um þann hugsunarhátt að neyta á meðan á nefinu stendur en láta framtíðina skeika sköpum.
Var það ekki einmitt þessi hugsunarháttur sem leiddi til hrunsins?
Svandís veruleikafirrt eða vanhæf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 07:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Spánverjar vilja sanngjarnan hlut við Íslandsmið"
Sunnudagur, 22. nóvember 2009
Ríkisstjórnin var ekki fyrr búin að senda inn umsókn í ESB en spánski utanríkisráðherrann fagnaði og sagði að Spánverjar vildu fá "sinn sanngjarna hlut við Íslandsmið"
Þessu mótmæltu íslensk stjórnvöld ekki enda er mjög gaman hjá Össuri núna.
Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
LÍÚ vill veðsetja makrílinn
Laugardagur, 21. nóvember 2009
LÍÚ vill meiri makríl en Jón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)