Færsluflokkur: Menntun og skóli
Góð tillaga um myntsamstarf við Noreg
Fimmtudagur, 27. nóvember 2008
Í erindi Jónasar Haralds, þess aldna og merka fræðimanns, sem hann flutti nýlega um sögulega þróun krónunnar kom fram að krónan hefur lengst af ýmist verið tengd gullfæti eða öðrum myntum. Ástæðan sé sú að íslenska hagkerfið er dvergvaxið á alþjóðlegan mælikvarða og auðvelt skotmark fyrir vogunarsjóði. Vissulega hefur íslenska krónan liðið fyrir fyrirhyggjulausa efnahagsstjórn sérstaklega undanfarin 7 ár, sem einkennst hefur af slakri stjórn ríkisfjármála og eyðslu langt um efni fram. Það er því ekki við flotkrónuna eina að sakast þó saga hennar hafi nú endað með þjóðargjaldþroti. Það er ekki létt verk eftir bannkahrun að koma henni á flot við það bætist að úti standa 500 milljarðar króna í Jöklabréfum sem bíða eftir að komast úr landi. Þessi nýja flotkrónutilraun er því mjög erfið og tvísýn.
Norðmenn hafa ekki hag af því að ganga í ESB frekar en Íslendingar enda eiga þeir mikilvæg fiskimið. Þeim er því mjög í mun að halda í EES samninginn og það geta þeir ekki nema Ísland sé með. Norðmenn hafa því beinan ávinning af því að Ísland brotni ekki.
Norðmenn og Íslendingar eiga mikið samstarf bæði í EES og EFTA, þar er efnahagslegur stöðugleiki miklu meiri en í ESB auk þess þyrftum við ekki að óttast að Norðmenn myndu ásælast aluðlindir okkar eins og ESB löndin gera.
Vilja tengja íslensku krónuna við þá norsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Brunaverðir eða brennuvargar? Tjónvaldur eða slysavarfélag?
Sunnudagur, 23. nóvember 2008
Nú hefur það verið upplýst að seðlabankinn varaði Ingibjörgu Sólrúnu og Geir Haarde 6 sinnum við bönkunum frá því í febrúar án þess að þau brygðust við. Ingibjörg ákvað þó að kynna sér ættflokkadeilur í Afganistan en sem betur fer mistókst henni að koma landinu í öryggisráðið. Vöru þau brunaverðir eða brennuvargar? Alþjóðasamfélagið er nú að lána okkur gríðarlega fjármuni til að koma krónunni af stað og ríkisstjórnin þykist róa að því öllum árum ásamt vinaþjóðum okkar að auka tiltrú á krónunni. þá koma ungir samfylkingamenn og "kasta krónunni" Samfylkingin rær ekki í takt, hún rær á móti hagsmunum Íslands. Er Samfylkingin tjónvaldur eða slysavarfélag?
Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ísland hefur ekki efni á spilltum stjórnmálamönnum lengur
Sunnudagur, 23. nóvember 2008
Nú þegar sjálfstæðismenn eru búnir að koma landinu á hausinn högum við ekki efni á spilltum stjórnmálamönnum lengur. Þegar Færeyingar lentu í bankakreppunni afnámu þeir kvótakerfið og komust til bjargálna á ný og nú eru þeir aflögufærir.
Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!
Kvótann aftur til þjóðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vantraust: Oft var þörf en nú er nauðsyn
Föstudagur, 21. nóvember 2008
Þeir ógæfumenn sem hafa komið landinu á hausinn neita að taka ábyrgð á gerðum sínum og leggja verk sín í dóm kjósenda. Nú eru þessir sömu ógæfumenn að skuldbinda margar komandi kynslóðir til að axla drápsklyfjar vegna þeirra einkavinaspillingu, kæruleysis og óreiðu. Fyrir tilstilli þessara manna er Ísland skuldugast land í heimi, þessir sömu ógæfumenn þykjast einir geta stýrt björgunarleiðangri en það kalla þeir að safna enn meiri skuldum fyrir börnin okkar. Þorgerður Katrín segir að það séu spennandi tímar framundan fyrir sjálfstæðismenn! En þetta eru ekki góðir tímar fyrir þjóðina. Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!
Vantrauststillaga komin fram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færeyingar fjármagna sendiráð Íslands erlendis
Miðvikudagur, 19. nóvember 2008
það er einsýnt að Íslendingingar þurfa að draga úr útgjöldum við kostnaðrsamt félagslífi diplómata á erlendri grund, sem er að sliga þjóðina. Eftir að Færeyingar lögðu af kvótakerfið eru þeir vel aflögufærir og því fékk Ingibjörg Sólrún þá hugmynd að fá Færeyinga til að taka þátt í rekstri sendiráðanna með því að leigja þeim skrifstofuaðstöðu í íslensku sendiráðunum í Moskvu og Genf. Jørgen Niclasen núverandi utanríkisráðherra er fyrrv. Landsstýrismaður við fiskivinnumálum og fékk að stoð Jóns Kristjánssonar fiskifræðings til að leggja niður kvótakerfið. hann hefur lýst því yfir að annars hefðu þeir aldrei komist út úr kreppunni.. Jörgen er því mikill Íslandsvinur.og hefur heimsótt okkur í FF.
Íslensk sendiráð aðstoði Færeyinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
ESB brá hníf á háls Ingibjargar Sólrúnar
Mánudagur, 17. nóvember 2008
og hún brást ljúfmannlega við og enginn var hissa á því, þegar Evrópusambandið hótaði að rifta EES samningnum ef Íslendingar leituðu réttar síns. Hitt vakti meiri undrun að Geir Haarde sem hafði uppi mörg stór orð um að hann myndi aldrei láta kúga sig tók þátt í því með ISG að kyssa á vöndinn eftir að þau voru orðin leið á að kyssa hvort annað.
Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!
ESB hefði jafnvel sagt upp EES-samningi við Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 23:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Spillingaröflin ná völdum í Framsóknarflokknum
Mánudagur, 17. nóvember 2008
Guðni segir af sér þingmennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Brennuvargana burt úr slökkviliðunu!
Sunnudagur, 16. nóvember 2008
Það er hvorki heiðarlegt né skynsamlegt að spillingaröflin sem ráðstöfuðu þjóðarauðnum til velþóknanlegra ráði för lengur nú þegar þau hafa stýrt landinu í gjaldþrot með því að sitja aðgerðalaus hjá meðan hraukurinn óx. Kannski áttu þeir erfitt uppdráttar þar sem sumir þessara fjárglæframanna kostuðu prófkjörsbaráttu þeirra en það er ekki gild afsökun. Það er heldur ekki sanngjarnt gagnvart börnum landsins og komandi kynslóðum að brennuvar klæðist búningum slökkviliðsmanna og skuldsetji þær upp fyrir haus. Til þess eru þessir menn umboðslausir án undangengna kosninga. Áfram íslenska þjóð - burt með spillingarliðið!
Ávísun á risagjaldþrot ef lán fæst ekki frá IMF | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gott hjá Össuri að kyssa ekki á vöndinn
Fimmtudagur, 13. nóvember 2008
Maður varð furðu sleginn yfir aulahætti utanríkisráðherra að leggja það í hendur Breta hvort þeir athafni sig með sín hertól hérlendis. Þessi yfirlýsing hennar hlýtur að hafa misboðið öllum Íslendingum með snefil af þjóðarstolti. Álit mitt á Samfylkingunni óx mikið í dag að heyra Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segja fullum fetum að hann kyssti ekki á vönd kvalara sinna, eins og svilkona hans, hæstvirtur utanríkisráðherra. Össsur sagði réttilega að Íslendingum myndi misbjóða að breskir hermenn færu að athafna sig hér við þessar að stæður.
Kyssir ekki á vönd kvalaranna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dulbúnir ráðherrar í jólasveinabúning, þykjast koma af fjöllum
Þriðjudagur, 11. nóvember 2008
Það er ekki bara Ástþór Magnússon sem getur brugðið sér í jólasveinabúning þessa dagana. Nú hafa fjármála- og viðskiptaráðherra brugðið sér í slíkan búning og þykjast koma af fjöllum, já gott ef ekki Grænlandsjökli. "Þeir hafi ekkert frétt af Icesava fyrr en þeir komu til byggða fyrir ekki svo margt löngu". Sei sei nei þeir eru blásaklausir og grunuðu ekkert, hvað þá að þeir vissu neitt. Vita menn ekki að það er hvorki net eða GSM samband þarna uppi í óbyggðum? Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Ráðherrarnir koma af fjöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)