Færsluflokkur: Vísindi og fræði
"Þorskurinn alltf til vandræða"
Miðvikudagur, 27. febrúar 2013
Svokölluð fiskihagfræði sem kennd er í Háskóla Íslands gengur út á að hægt sé að ganga að öllum fiskitegundum vísum í hillukerfi vöruskemmu. Þess vegna þurfa fiskiskip að forðast fiskitegundir sem ekki eru til á skrá eða henda þeim.
Ráðið við þessu er ekki að auka sístækkandi eftirlit heldur afnema hvatann til að henda fiski.
Þorskurinn til vandræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kínverska ginseng- skákfjölskyldan í Rimahverfi
Mánudagur, 9. janúar 2012
Fyrst að verða Íslandsmeistari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hafró þakkað sólskinið en ekki regnið
Föstudagur, 4. júní 2010
Á þeim 25 árum sem kvótakerfið hefur verið við lýði er talið að þorskstofninn hafi minnkað um 50% en nú telur Hafró að stofninn sé örlítið stærri en á síðasta ári. Atli Gíslason formaður sjávarútvegsnefndar á ekki orð yfir hrifningu sína og segir þetta "augljós merki þess að Hafrannsóknarstofnun sé á réttri leið".
Fyrir skemmstu fannst engin ýsa í togararalli, Hafró hafði sem sé týnt ýsunni sem var um allan sjó fyrir þremur árum. Man einhver eftir því að Atli Gíslason hafi tjáð sig um það?
Hafró á réttri leið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það sem fiskihagfræðingarnir vita ekki
Fimmtudagur, 4. mars 2010
Sjávarþorpin eru þar sem þau eru vegna nálægðar við staðbundin fiskimið. Þetta vita fiskihagfræðingar ekki, þeir kunna heldur ekkert í líffræði en þeir kunna aftur á móti á Exel sem þeir geta matað með viðurkenndum hagfræðiformúlum og búið þannig til kökur, gröf, línurit og súlur.
Ekkert af .þessu hefur neitt með raunveruleikann að gera.
Fiskihagfræðingarnir létu misnota sig af kvótabröskurum til að réttlæta eyðingu sjávarþorpanna. Af hverju leggja þeir ekki til að slegið verði 5 sinnum á Suðurlandi og hætt að heyja í öðrum landshlutum?
Ragnar Árnason fiskihagfræðingur
Bannað að selja burt kvóta úr þrotabúum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Svín með vængi geta líka flogið!
Mánudagur, 23. nóvember 2009
Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur kallað virta hagfræðinga til vitnis um að Íslendingar eigi ekki möguleika á að borga Icesave. Eftir pólitíska íhlutun tókst seðlabankanum samt í þriðju tilraun að búa til bjartsýnismódel þar sem þetta gekk upp. Svín með vængi geta líka flogið.
Þjóðin vill ekki fara í ESB. Þá er spurningin hvort Skattfylkingunni takist að snúa á þjóðina með því að skuldsetja hana inn í ESB með ÆSSEIF?
Gæti sparað 185 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 06:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Álfar eru líka menn!
Mánudagur, 16. nóvember 2009
Það er rétt hjá herra Karli Sigurbjörnssyni að álfatrúin fylgir þjóðarsálinni.
Það skiptir engu hvort fólk er sannkristið eða trúir á vættir og Æsi, við erum flest álfatrúar. Ég er sammála biskupnum þegar hann segir eftir ömmu sinni að það þurfi að fara varlega í nánd við steina og hóla þar sem huldufólk býr.
Álfar eru líka menn!
Álfatrú Íslendinga til umræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Ég fauk í vinnuna. Undur og stórmerki!
Föstudagur, 9. október 2009
Ég gáði til veðurs í morgun og ætlaði að liggja í leti svona einn föstudag í óveðrinu en viti menn: Það kom allsnörp vindkviða sem feykti mér af stað og ég fauk alla leið í vinnuna og þar biðu mín verkefni.
Undur og stórmerki!
Snælduvitlaust á Kjalarnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Getgátur og dagdraumar
Föstudagur, 25. september 2009
Nú er skeggrætt um hvort fram hafi komið mögulegar getgátur um miklar olíulindir á Drekasvæðinu. Ekki kemur fram í frétt Morgunblaðsins um þetta mál kemur ekki fram hver hafi haft uppi þessar getgátur eða af hverju hann eða hún hefur gert það.
Það er samt misjafnt hvað svona getgátum er sýndur mikill áhugi. Til samanburðar þegar getgátur voru uppi um að mikil olía væri á Færeyska landgrunninu sóttu öll stærstu olíufélögin um leyfi til rannsókna. Eitt skúffufyrirtæki sótti um leyfi til rannsókna á Drekasvæðinu og er hætt við.
Kosturinn við að enginn leggi í rannsóknir er ótvírætt sá að á meðan getum við ornað okkur við getgátur og dagdrauma.
Getgátur um gríðarlegar olíulindir á Drekasvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ástir górillu og manns Varúð ! Ekki fyrir viðkvæma.
Mánudagur, 3. ágúst 2009
Það er þekkt úr dýraríkinu að spendýr sem öll eru talsvert skyld, eiga það til að flökta á milli tegunda í viðleitni sinni til að fjölga sér. Ekki má líta af hestum og ösnum nú eða köttum og tófum. Maðurinn er engin undantekning á þessu flippi spendýranna, hann er skyldastur öpum og HIV sýking kemur aðallega úr simpönsum en nú einnig úr górillum. Sama má segja um sárasóttina (sýfilis) sem kom til Evrópu úr lamadýrum í S-Ameríku sem siðmenntaðir kristnir Spánverjar lögðu undir sig.
Á stríðsárunum voru tveir amerískir úrvalshermenn staðnir að því að hafa samræði við kvígu og var þessi vísa þá ort:
Ef að þetta úrvalslið// iðkar kálfasmíði//Hverju ætli úrkastið//í Ameríkunni ríði?
Greindist með nýtt afbrigði HIV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvalkjötið í að borga Icesave?
Föstudagur, 19. júní 2009
Fyrstu langreyðarnar í land | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 07:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)